Knattspyrnufélagið Valur

Velkominn, gestur Leita | Mest lesið | Notendur | Innskráning | Nýskráning

Gangi þér vel í norge Begga Valkostir
Svenni
Skráð: 8. June 2010 17:21
Staða: Stjórnandi

Skráði sig: 17.10.08
Bréf: 130
Staður: Reykjavík
Berglind Íris Hansdóttir, landsliðsmarkvörður Íslands í handknattleik, hefur skrifað undir tveggja ára samning við norska félagið Fredrikstad. Berglind hefur leikið allan sinn feril með Val, sem á vormánuðum tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta sinn í 27 ár, en vangaveltur um utanför létu á sér kræla undir lok síðustu leiktíðar. Unnusti Berglindar, Bjarni Ólafur Eiríksson, leikur knattspyrnu með Stabæk.

„Ég er mjög ánægð og hlakka til að spila með Fredrikstad og hjálpa liðinu að ná markmiðum sínum,“ er haft eftir Berglindi á vefsíðunni Norsk Topphandball. „Ég valdi Fredrikstad vegna þess að áætlanir þeirra eru mjög spennandi, ég hef trú á að liðið eigi eftir að festa sig í sessi í úrvalsdeildinni. Þjálfarateymið er gott og ég trú á að þetta teymi hjálpi mér að taka framförum.“

Fredrikstad varð í þriðja sæti norsku 1.deildarinnar á síðustu leiktið og tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni eftir umspil við Gjövik Og Vardal, sem varð í næstneðsta sætii úrvalsdeildarinnar. Forráðamenn Fredrikstad ætla ekki að tjalda í úrvalsdeildinni til einnar næstur, hafa bæði ráðið nýjan þjálfara og styrkt leikmannahópinn og eru himinlifandi með nýja markvörðinn.
„Við erum himinlifandi með að Berglind valdi að spila með okkur,“ er haft eftir talsmanni félagsins. „Það voru nokkur félög sem sýndu henni mikinn áhuga og þetta val hennar er okkur mikið ánægjuefni. Berglind er frábær markvörður sem á eftir leggja lóð sín á vogarskálarnar og hjálpa okkur að ná markmiðum okkar.“

Tekið af sport.is







Hliðardálkur


Leit
Leitarstrengur
Skaginn
Skráð: 8. June 2010 17:58
Staða: Súperstjarna

Skráði sig: 29.10.08
Bréf: 180
Staður: reykjavík
Já dettur þá Sunneva sem aðalmarkmaður Vals eða þarf stjórnin að fara að leita af markmanni. Írís Björk er sterk en eflaust verður hún áfram hjá Fram. Eflaust verður horft út einsog síðast þegar Begga fór til Danmerkur.
Björgvin Ármannsson
Skráð: 9. June 2010 02:27

Staða: Meðlimur

Skráði sig: 23.10.08
Bréf: 34
Staður: Rivertown
Flott hjá Beggu að velja mitt lið í Norge, ég bjó í Fredrikstad í 3 ár. Gangi henni og Bjarna allt í haginn.
Egerfan
Skráð: 9. June 2010 17:01
Staða: Alvöru Valsari

Skráði sig: 21.08.09
Bréf: 60
Staður: Rvk
Berglind innilega til hamingju með samninginn þinn og gangi ykkur allt í haginn úti í Noregi.
Sunneva er samningsbundin fram og fór til baka úr láni þann 1.júní.
Skilst að sú sem var varamarkmaður í fyrra er Sunneva meiddist hafi fengið einhvern neista og sé byrjuð að æfa á fullu og stefni á að vera með áfram.
Íris skrifaði á dögunum undir nýjan samning við fram. Allvega biður stjórnar og þjálfara erfitt verk fyrir höndum að fylla það skarð sem Berglind skilur eftir sig.


Áfram Valur
Notendur að skoða þetta bréf
Guest


Þú getur ekki skrifað bréf.
Þú getur ekki svarað bréfum.
Þú getur ekki eytt þínum skrifum.
Þúgetur ekki breytt þínum skrifum.
Þú getur ekki búið til kannanir.
Þú getur ekki tekið þátt í könnunum.

SoClean Theme Created by Jaben Cargman (Tiny Gecko)
Knúið af Yet Another Forum.net, útgáfa 1.9.1.8 (NET v2.0) - 29.03.08
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.