|
|
 Staða: Meðlimur
Skráði sig: 23.10.08 Bréf: 34 Staður: Rivertown
|
"Sturla Ásgeirsson, landsliðsmaður í handbolta, hefur gengið til liðs við Val fyrir átökin í N1 deild karla næsta tímabil. Sturla gerir eins árs samning við félagið en hann kemur til félagsins frá HSG Düsseldorf í Þýskalandi. Sturla hefur átt fast sæti í íslenska landsliðinu undanfarin ár og vann silfurverðlaun með liðinu á Ólympíuleikunum í Peking og brons á Evrópumótinu í Austurríki fyrr á árinu. Ljóst er að Sturla er mikill liðsstyrkur fyrir Val og bjóðum við hann hjartanlega velkominn á Hlíðarenda." tekið af www.valur.isÞetta eru flottar fréttir, sést að stjórnin er á fullu að vinna vinnuna sína við að styrkja hópinn eftir brotthvarf sterkra manna í vor. Ég hlakka til að sjá hann spila undir merkjum Vals næsta vetur.
|
|
 Staða: Meðlimur
Skráði sig: 17.10.08 Bréf: 40 Staður: Ipswich
|
Glæsilegar fréttir. Við verðum að vera með sterka menn í öllum stöðum á næsta tímabili.
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 28.10.08 Bréf: 31 Staður: Kópavogur
|
Þetta er mjög jákvætt að Sturla hafi skrifað undir - hvað er að frétta af Antoni ? eru menn enn við samningsborðið -
Áfram Valur
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 30.04.09 Bréf: 15
|
Þetta lítur vel út, verið að styrkja liðið markvisst og fljótlega verður handbragðu Júlíusar á þetta og ekki gerði hann slæma hluti með ÍR. En mér finnst vanta línumann, Sigfús og Ingvar hættir (ekki að SS hafi verið neinn línumaður á síðasta tímabili). Eins vantar sterkan miðjumann, Elvar og Anton meiri skyttur og Sigurður E. enginn miðjumaður. En fyrst Júlíus er byrjaður að laða að sér ÍR inga, hvar er Fannar Þorbjörnsson og er ekki Ingimundur að leita að liði?? kannski hæpið að krækja í hann. Eru ekki einhverjir efnilegir leikmenn í Selfossi, Víking eða Aftureldingu sem hægt er að ná í á miðjuna?? En ég er handviss um að það er bara toppbarátta framundan með Júlíus að stjórna skútunni :)
|
|
Staða: Súperstjarna
Skráði sig: 29.10.08 Bréf: 180 Staður: reykjavík
|
Ja ef Ingimundi langar heim þá er ekkert hæpið að hann fari í Val enda vill hann meiri baráttu en 1.deildin býður uppá með ÍR. Annars er ég sammála síðasta ræðumanni um að það vantar á línu og miðjumann. Annars þarf að hafa augun opinn fyrir ungu valsmönnunum sem munu spila stærra hlutverk á næsta tímabili sama þó 1-2 nýjir leikmenn komi í höllina.
|
|
Staða: Alvöru Valsari
Skráði sig: 21.08.09 Bréf: 60 Staður: Rvk
|
Gaman að fá Sturlu inn. ´Til hamingju með það
Áfram Valur
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 23.06.10 Bréf: 1 Staður: Kópavogur
|
Ég verð nú að vera ósammála um að það vanti miðju og línumann. Það vantar kannski varamenn í þessar stöður en mér finnst við hafa mjög góða fyrstu kosti í þessar stöður. Anton er miðjumaður að upplagi og þykist ég vita að hann vilji spila þar, og með Elvar og Erni sitthvoru megin við hann finnst mér það líta bara nokkuð vel út. Varðandi línumann þá finnst mér eiginlega fáránlegt að segja að okkur vanti línumann, við erum við Orra Frey sem er búinn að vera fyrirliði allra unglingalandsliðanna og staðið sig mjög vel þar. Mér fannst Óskar aldrei sýna honum nægilegt traust sem sýndi sig vel þegar hann fór að troða Fúsa inná völlinn í lok tímabilsins á einni löpp. En með nýjum þjálfara koma nýjar áherslur og ég trúi því að Júlíus eigi eftir að sýna Orra það traust sem hann á skilið og ég spái því að hann eigi eftir að vera lykilmaður í liðinu í vetur.
Áfram Valur !!!
|
|
Staða: Súperstjarna
Skráði sig: 29.10.08 Bréf: 180 Staður: reykjavík
|
Já mikið til í þessu hjá Markaz en ef Ernir og Elvar spila sem varnarmenn þá gæti það bitnað á sókninni. Nú hefur verið umræða um Ingimund og það er frábær línumaður sem getur brugðið sér í sóknina en líklegast vill hann reyna að spila úti enda nokkrum klössum yfir mörgum línumanninum hérlendis. Það þarf því ekkert að vera einhver landsliðsmaður heldur kannski stór og sterkur leikmaður sem smá reynslu t.d Ægir úr Gróttu og svo eru margir aðrir líklegir. Málið er bara að Ernir var meiddur allt tímabilið og Baldvin hefur verið mjög óheppinn í meiðslum og ef þessir leikmenn detta í áframhaldandi meiðsli þá þarf leikmenn í þeirra stað. Ég er viss um að Júlli á eftir að nota ungu strákana mikið en þegar illa gengur er gott að hafa reynslu á bekknum eða öfugt
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 01.07.09 Bréf: 21 Staður: Rvk
|
Ég held að Ingimundur hafi aldrei nokkurn tíman spilað línu á ævinni. Þess vegna er mjög furðulegt að segja að hann sé "frábær línumaður".
|
|
Staða: Súperstjarna
Skráði sig: 29.10.08 Bréf: 180 Staður: reykjavík
|
Ja hvaða stöðu ættum við kalla stöðuna hans. Hann er alla vega varnarmaður að upplagi og eflaust ein ástæða þess að hann hafi ekki spilað inn við línu er að Róbert er töluvert sterkari í þeirri stöðu. Alla vega með landsliðinu. Annars er hópurinn að styrkjast eða fjórir nýjir komnir eða Sturla, Finnur ingi, Anton, og nú Einar Örn. Liðið er engu að síður lakara en í fyrra en það á eftir að styrkjast enn frekar
|
|
Staða: Alvöru Valsari
Skráði sig: 21.08.09 Bréf: 60 Staður: Rvk
|
Liðið lakara en í fyrra. Ég set stórt ? Við það 1. Sigurður Eggertson, fínn þegar hann er heill en nær þó aldrei nema 10 min spilandi max í leik. 2. Sigfús frmmari Sigurðsson. hefur aldrei fundið sig almennilega með Val, því miður spliaði ekki stórt hlutverk hjá Val. 3. Stæðsti hlekkurinn sem hverfur á braut er Fannar okkar. Frábær leikmaður sem kallar ekki alt ömmu sína og er alltaf hungraður í sigur, finnst þó að Fannar ætti að geta farið í betri lið en þýsku 2.deildina. á örugglega eftir að standa sig þar. 4. Arnór Gunnarsson. skemmtilegur leikmaður á uppleið, finnst samt sem hann sé ekki a velja á réttan hest eins og með Fannar, ætti að geta gert betur. 5. Óskar Bjarni, frábær maður í sinu starfi og á örugglega eftir að vera Júlíusi innan handar.
Þá leikmenn sem eru komnir held ég að séu hungraðir í að sanna sig í Val, Anton og Einar uppaldir og frábærir leikmenn. Ingimundur frábær Varnarmaður. Ernin að koma aftur inn eftir meiðsli og á vonandi eftir að vera heill í vetur Þekki því miður ekki nógu vel til Finns Inga en eflaust sterkur leikmaður.
Sá um daginn að Júlli er strax byrjaður að pína strákana sem verða væntanlega í hörkuformi þegar mót byrjar. Svo má að sjálfsögðu ekki gleyma Sveini, Atla og ungu gaurunum sem voru viðloðandi liðið í fyrra. Verðum klárlega í toppbaráttu.
Áfram Valur
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 01.07.09 Bréf: 21 Staður: Rvk
|
Ástæða þess að hann er ekki að spila línu í landsliðinu er að hann er ekki línumaður, og já Róbert er þar af leiðandi mun sterkari en hann á línunni sem og hinir línumennirnir sem eru valdir í landsliðið. Ingimundur fór í atvinnumennsku sem skytta og því myndi ég segja að hann væri skytta. http://www.sport.is/handbolti/2010/06/26/elvar-fridriksson-til-lemvig/Þetta er hins vegar ansi stór frétt.
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 25.06.10 Bréf: 1
|
Það verður alveg nýtt byrjunarlið á næsta tímabili frá því í úrslitakeppninni. Ef Valur á að verða Íslandsmeistari næsta vor (á 100 ára afmæli félagsins) þarf að bæta við sterkum leikmönnum.
|
|
Staða: Alvöru Valsari
Skráði sig: 21.08.09 Bréf: 60 Staður: Rvk
|
Já Elvar til Danmerkur. Gangi þér vel í Danaveldi Elvar.
Já viðurkenni það að nú fer aðeins um mann en ég hef fulla trú á Valsliðinu swem er að taka við.
Áfram Valur
|
|
Staða: Súperstjarna
Skráði sig: 29.10.08 Bréf: 180 Staður: reykjavík
|
Egerfan skrifaði:Liðið lakara en í fyrra. Ég set stórt ? Við það 1. Sigurður Eggertson, fínn þegar hann er heill en nær þó aldrei nema 10 min spilandi max í leik. 2. Sigfús frmmari Sigurðsson. hefur aldrei fundið sig almennilega með Val, því miður spliaði ekki stórt hlutverk hjá Val. 3. Stæðsti hlekkurinn sem hverfur á braut er Fannar okkar. Frábær leikmaður sem kallar ekki alt ömmu sína og er alltaf hungraður í sigur, finnst þó að Fannar ætti að geta farið í betri lið en þýsku 2.deildina. á örugglega eftir að standa sig þar. 4. Arnór Gunnarsson. skemmtilegur leikmaður á uppleið, finnst samt sem hann sé ekki a velja á réttan hest eins og með Fannar, ætti að geta gert betur. 5. Óskar Bjarni, frábær maður í sinu starfi og á örugglega eftir að vera Júlíusi innan handar.
Þá leikmenn sem eru komnir held ég að séu hungraðir í að sanna sig í Val, Anton og Einar uppaldir og frábærir leikmenn. Ingimundur frábær Varnarmaður. Ernin að koma aftur inn eftir meiðsli og á vonandi eftir að vera heill í vetur Þekki því miður ekki nógu vel til Finns Inga en eflaust sterkur leikmaður.
Já er Ingimundur kominn í Val. Heyrði bara að Valur hefði áhuga á honum en ekkert beint frá honum. Með þá sem eru farnir Arnór er án efa einn af þrem bestu mönnum deildarinnar í fyrra ásamt Sigurbergi og kannski Bjarna Fritz. Fannar hefur verið einn af betri mönnum Val síðustu ár og leyst það skarð sem Baldvin hefur skilið eftir í meiðslunum. Elvar er á góðum degi ein besta skytta landsins
Sá um daginn að Júlli er strax byrjaður að pína strákana sem verða væntanlega í hörkuformi þegar mót byrjar. Svo má að sjálfsögðu ekki gleyma Sveini, Atla og ungu gaurunum sem voru viðloðandi liðið í fyrra. Verðum klárlega í toppbaráttu.
Áfram Valur Já er Ingimundur kominn í Val. Heyrði bara að Valur hefði áhuga á honum en ekkert beint frá honum. Með þá sem eru farnir Arnór er án efa einn af þrem bestu mönnum deildarinnar í fyrra ásamt Sigurbergi og kannski Bjarna Fritz. Fannar hefur verið einn af betri mönnum Val síðustu ár og leyst það skarð sem Baldvin hefur skilið eftir í meiðslunum. Elvar er á góðum degi ein besta skytta landsins. Sigga er frábær gleðigjafinn en hefur ekki náð að beita sér fullkomlega vegna meiðsla. Aðrir eða Óli Zico, Gunni Jó, Fúsi, og Siffi er ekkert mjög mikill missir í vegna þess að þeir hafa ekki sýnt það sem þeir geta vegna meiðsla eða annarra hluta. Það þarf að styrkja liðið aðeins ekkert með einhverjum 2 landsliðsmönnum en það þarf góða menn fyrir góða menn
|
|
Staða: Alvöru Valsari
Skráði sig: 21.08.09 Bréf: 60 Staður: Rvk
|
|
|
Staða: Súperstjarna
Skráði sig: 29.10.08 Bréf: 180 Staður: reykjavík
|
Já ég hafði líka trú um að hann kæmi ekki heim enda er hann aðeins þrítugur og enn í fullu fjöri og auðvitað vill landsliðsmaður vera sem lengst úti. Það þýðir ekkert að gráta það sem var hvort sem ekki orðið. Ég hef samt trú á að það komi alla vega einn til þrír aðrir leikmenn í hópinn. Þeir sem eru komnir eru Finnur Ingi ungur og efnilegur, Sturla landsliðsmaður þarf ekkert að segja meira um það, Anton mjög sterkur leikmaður bæði í vörn og sókn, og Einar sem er ?. Fyrir er Ernir búinn að vera mikið meiddur, Baldvin sömuleiðis, Orri mjög efnilegur varnarmaður og svo aðallega ungir strákar. Það segir sig sjálft það þarf að styrkja þennan hóp enda alla vega 5 fastamenn farnir og þrír-fjórir sem hafa komið sterkir af bekknum
|
|
|
Guest |