Knattspyrnufélagið Valur

Velkominn, gestur Leita | Mest lesið | Notendur | Innskráning | Nýskráning

ER Gulli kominn á leiðarenda ? Valkostir
Egerfan
Skráð: 12. July 2010 20:43
Staða: Alvöru Valsari

Skráði sig: 21.08.09
Bréf: 60
Staður: Rvk
Get ekki meir. Þvílík hörmung, hvað er í gangi ?
Það var allt að gerst hjá liðinu og svo bara eins og menn hafi lent framan á Kárahnjúkastíflu, bara allt stopp.
Þetta er farið að líta út eins og á síðasta tímabili.
Er þetta ekki rétta blandan af leikmönnum eða er Gulli kominn strax á leiðarenda með liðið ? Það er engin gleði, það er rifist inná vellinum og menn nenna ekki að hreyfa sig.
Hvað er að og hvað er hægt að gera til að laga þetta ?

Áfram Valur
Skaginn
Skráð: 12. July 2010 21:34
Staða: Súperstjarna

Skráði sig: 29.10.08
Bréf: 180
Staður: reykjavík
Það er ótrúlegt að staðan sé 0-0 í hálfleik en svo eftir 13 mínútur er staðan orðinn 3-0. Ég ætlaði á þennan leik enda var mér farið að hlakka til að sjá strákana vinna góðan sigur á nágrönnum sínum en þetta var eitthvað allt annað. Sem betur fer komst ég ekki á leikinn enda borgar enginn sig inná svona ósköp. Nú eiga strákarnir leik gegn FH næst og það er leikur sem verður að vinnast því annars erum við í neðri hluta deildarinnar. Áfram Valur og tímabilið er ekki búið þrátt fyrir þessa martröð.
hlidamadur
Skráð: 12. July 2010 21:56
Staða: Nýliði

Skráði sig: 12.07.10
Bréf: 0
Ekkert rugl. Þýðir ekkert að kenna þjálfaranum um þetta hérna. Nú er að rífa upp móralinn og stuðið. Það vantar líka stemmingu í Valsmenn á vellinum. Þetta var alveg grátlega lélegt - rétt er það - en menn mega ekki gefast upp. Allir þurfa að berjast - líka stuðningsmenn Vals. Áfram Valur!
bjossi
Skráð: 12. July 2010 22:07
Staða: Nýliði

Skráði sig: 19.05.09
Bréf: 4
Þegar við mætum með 3 djúpa miðjumenn og enga kantmenn þá erum við ekki að fara gera rassgat! Við getum ekki kennt Gulla um tapið þar sem við vorum ekki með okkar sterkasta lið til taks í kvöld. Nú er það bara að rífa sig upp, gleyma þessum bikar og huga að næsta leik í deildinni.
TonyK
Skráð: 12. July 2010 22:25
Staða: Nýliði

Skráði sig: 18.10.08
Bréf: -1
Staður: 105 RVK
Þessi frammistaða var hörmuleg í alla staði. Báðir hafsentar Fram voru í banni, en samt sem áður settum við nánast enga pressu á öftustu línu Fram. Svo lendum við 2-0 undir og þá tekur Gunnlaugur Viktor útaf og setur Guðmund Stein inná. Síðasta hálftíma leiksins erum við þá með 5 miðjumenn inná vellinum + Danna treyjukastara.

Ábending til Gunnlaugs, þegar við erum undir og þurfum að sækja, gerðu þá sóknarsinnaða skiptingu, ekki hjakka alltaf í sama farinu.

Vörnin okkar er bara sama djók og hún hefur verið síðustu tvö tímabil. Ég get ekki með nokku móti skilið afhverju Reynir Leósson er alltaf í liðinu þegar hann er heill, maðurinn er einfaldlega ekki í efstu deildar klassa, það hefur marg sýnt sig.
Egerfan
Skráð: 12. July 2010 22:59
Staða: Alvöru Valsari

Skráði sig: 21.08.09
Bréf: 60
Staður: Rvk
Ég er ekki að kenna Gulla um, heldur bara að velta þessu fyrir mér og skapa smá umræðu um þetta, það er jú þjálfarinn sem velur liðið sem spilar og stjórnar uppstillingunni þannig að ábyrgðin er hans.
Svo aftur á moti eru það leikmenninir sem þurfa að standa sig inná vellinum og það hafa þeir ekki gert í síðustu leikjum.
Þjálfarinn þarf að vera með skýrar línur og skipta inná þar sem við á til að styrkja liðið.

Áfram Valur
hlidamadur
Skráð: 12. July 2010 23:08
Staða: Nýliði

Skráði sig: 12.07.10
Bréf: 0
Danni treyjukastari sýndi í síðasta leik í deildinni (þegar hann kastaði treyjunni) og í þessum á móti Fram hversu sterkur leikmaður hann er. Hann heldur bolta vel og berst eins og ljón - alltaf hætta þegar hann spólaðist áfram. Það vantaði gæði frá öðrum leikmönnum. Danni er frábær leikmaður!
Jónas
Skráð: 13. July 2010 00:23
Staða: Nýliði

Skráði sig: 13.07.10
Bréf: 0
Sorglegur fótboltaleikur af okkar hálfu í kvöld. Frammarar voru bara betri.
Hvað varðar Gulla þá er hann en sá eini fyrir starfið hann er að gera rétta hluti spurningin er bara hvort sumir leikmenn okkar eru ekki bara í standi fyrir úrvalsdeildina. Vörnin er vonlaus sem er að mörgu leit því að kenna að við erum með markmann sem hjálpar ekki til upp á að efla sjálfstraust hennar.
Hvað varðar suma leikmenn þá sér í lægi ungu leikmennina okkar þá verður Viktor að fara sína það þegar hann fær að spila að hann vilji fá byrjunarsæti í liðinu og Guðmundur þarf að fara á hlaupaæfingar fá stundum á tilfinninguna að stúkan sé að taka fram úr honum svo ef hann tapar boltanum þá skokkar hann rólega á eftir manninum sem tók boltan af honum. Ekki misskilja mig þessir strákar eru efni en það er ekki nóg að vera efnilegur...ég get fyrirgefið mönnum eins og Bjössa þegar hann klúðrar eða missir menn fram hjá sér og dratast á eftir þeim..hann er kominn á fertugsaldurinn og löngu búinn að sanna sig fyrir okkur á Hlíðarenda. Þessir ungu strákar eiga eftir að sanna sig...þeir eru efnilegir en margir strákar deyja út sem efnilegir vegna þess að þeir telja sig stærri en þeir eru. Sama má segja um Arnar Svein síðustu leikjum hefur farið meiri tími hjá honum í að tuða en að gera eitthvað. Það er draumur þessara ungu stráka að komast út og spila sem atvinnumenn en þeir fara ekki langt á þessu hugafari því miður...verða enn í úrvalsdeild til út sinn feril nema það sjáist geðveikis-barátta í þeim...Það eru til miljón og einn leikmaður eins og þeir í heiminum en það sem kemur íslendingum út er barátta og aftur barátta. ekki bara hæfileikar.

tek það fram að þetta er mín skoðun...


áfram Valur
brelog
Skráð: 13. July 2010 00:23
Staða: Nýliði

Skráði sig: 28.10.08
Bréf: 1
Staður: Reykjavík
Hef mikla trú á Gulla sem þjálfara og tel hann vera á réttri leið með liðið frá síðasta sumri. Hann hefur komið með rétta blöndu til leiks í sumar að mínu mati, en það er eins og svo oft áður að þegar fer að ganga illa þá er þetta fljótt að hrynja.

Upp á síðkastið hefur maður hinsvegar æ oftar velt því fyrir sér hversvegna maður er að borga sig inn á völlinn. Þetta spjallborð hefur verið álíka dapurt og varnarleikurinn í sumar og því finnst mér í lagi þegar svona þræðir eru stofnaðir til þess að skapa smá umræðu. Það er enginn að eyðileggja einhvern móral eða heimta að einhver verði rekinn. Gulli á að vera þjálfari Vals.

Hinsvegar hefur mér fundist hann hafa tekið nokkrar rangar ákvarðanir í síðustu tveimur leikjum. Í fyrsta lagi að taka Danni König útaf á móti Haukum, hann hefði átt að taka út miðjumann og setja sóknarmann inná. König er alltaf líklegur til þess að koma sér í færi og vill skora, þannig maður á að vera uppi á topp.

Síðan í kvöld var skrýtið að bjóða upp á fjóra fjóra tvo með enga kantmenn, og eins og einhver sagði hér að láta ekki reyna meira á miðvarðaparslaust Fram-liðið...það konu engar fyrirgjafir á tvo spólgraða framherja nánast allan leikinn.

Síðan virðist bara vera tilviljun hvort Stefán eða Ross séu í bakverðinum. Skotinn er stöðugri, gerir færri mistök.

Viktor Unnar var svo sprækur í kvöld og hefði átt að fá að klára leikinn.

Við megum hinsvegar ekki gleyma því að við erum bara tveimur sigurleikjum frá toppnum, en það er álíka langt niður í ruglið...það reynir virkilega á liðið í næsta leik...og það verður erfitt að snúa þessu við...

Ætlar Baldur Ingimar og Matti að spila eitthvað meira í sumar, er einhver með það á hreinu?
Fletcher
Skráð: 13. July 2010 07:28
Staða: Nýliði

Skráði sig: 22.11.09
Bréf: 0
Hvað varðar suma leikmenn þá sér í lægi ungu leikmennina okkar þá verður Viktor að fara sína það þegar hann fær að spila að hann vilji fá byrjunarsæti í liðinu og Guðmundur þarf að fara á hlaupaæfingar fá stundum á tilfinninguna að stúkan sé að taka fram úr honum svo ef hann tapar boltanum þá skokkar hann rólega á eftir manninum sem tók boltan af honum. Hvað meinarðu jónas??????? Viktor hefur en þá ekki byrjað i deildinni þrátt fyrir að hafa átt mjög gott undirbuningstímabil þar sem hann var okkar markahæðsti maður og honum a eftir kom guðmundur. Viktor trygði okkur sigur í 32 liða úrslitum og viktor og guðmundur i 16 liða úrslitum þega við unnum 3-1. Persónulega fannst mer fáranlegt að taka viktor útaf i gær þvi mer fannst hann vera buinn að spila betur heldur en daninn en málið er að sjalsögðu er hann ekki i leikformi þar sem hann er bunn að fa svona 50 min i ALLT sumar. Mer finnst framkoma danans til hábornar skammar i siðasta leik allt i lagi að vera reiður og pirraðu en að fara úr treyjunni og henda henni finnst mer vera virkilega lelegt. En hannn er útlendingur og heldur að sjalsögðu sæti sínu i liðinu þó svo að hann se ekker að gera. Þegar þjalfari og stjórn koma með yfirlísingar fyrir mót og segja að nu verður liðið byggt a ungum mönnum en fara svo að kaupa 3 útlendinga í liðið rett fyrir mot hlytur að brjota sjalfstraustið hja þessum mönnum sérstaklega þegar menn fá svo bara 10 min i leik. Guðmundur er kannski ekki sá fljótasti i bransanum og mætti spila boltanum oftar en hann hefur goða tæk ni og hefur þegar skorað tvö mörk fyrir okkur. Og það er fáranlegt hja gulla að taka senter útaf þegar við erum 2-0 undir og þetta miðjuna.
doerik
Skráð: 13. July 2010 08:24
Staða: Nýliði

Skráði sig: 13.07.10
Bréf: 0
Staður: rey
Afhverju fær Hafþór Ægir ekki tækifæri frá Gulla? Hann kann að gefa bolta fyrir - er hann kannski e-h meiddur. Hlítur eiginlega að vera?
Tony Danza
Skráð: 13. July 2010 09:41
Staða: Nýliði

Skráði sig: 12.05.09
Bréf: 0
Ég veit ekki með Baldur en ég heyrði Gulla segja í viðtali um daginn að meiðslin sem Matti varð fyrir á móti FH fyrir mót hafi orðið til þess að hann muni mjög líklega ekkert spila á þessu tímabili, í besta falli eitthvað smá í lok ágúst.

Annars skil ég ekki alveg hvað allir eru brjálaðir út í Danni. Auðvitað er steikt að kasta treyjunni svona en hann vill augljóslega spila og skora. Það væri gaman að sjá fleiri leikmenn með svona mikla löngun í að vera inni á vellinum. Plús það að Danni var búinn að vera besti maður liðsins áður en hann var tekinn út af.

En það þýðir ekkert að gráta þennan leik, hann er búinn. Gleymum þessum bikar, það er hvorteðer svo leiðinlegt að fara á Laugardalsvöllinn.
No. 9
Skráð: 13. July 2010 10:23
Staða: Nýliði

Skráði sig: 28.03.10
Bréf: 1
hlidamadur skrifaði:
Ekkert rugl. Þýðir ekkert að kenna þjálfaranum um þetta hérna. Nú er að rífa upp móralinn og stuðið. Það vantar líka stemmingu í Valsmenn á vellinum. Þetta var alveg grátlega lélegt - rétt er það - en menn mega ekki gefast upp. Allir þurfa að berjast - líka stuðningsmenn Vals. Áfram Valur!



Gæti ekki verið meira sammála þér með að það vanti stemmingu! Það heyrist varla í Völsurunum á þessum leikjum. Virðist ekki skipta máli hvort það sé á útivelli eða heimavelli, það vantar alltaf þessa stemmingu og stuðning sem að liðið þarf augljóslega á að halda núna.
Verum 12. maðurinn og látum sjá okkur í rauðu!

Áfram Valur!
Trifon
Skráð: 13. July 2010 10:43
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 23.10.08
Bréf: 6
Staður: RKV
Er ekki liðið bara jafn slakt og stuðningsmennirnir....það virðist vanta algerlega alla stemmningu í Valsmenn á pöllunum þetta árið...hvar eru Stuðarar?
Loftur
Skráð: 13. July 2010 13:08
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 23.10.08
Bréf: 27
Staður: 101
Danirnir tveir voru langbestu leikmenn liðsins í gær, aðrir voru undir pari þó Rúnar hafi eflst og er spennandi leikmaður fyrir okkur Valsara. Ákvörðunin að hafa Hauk Pál á kantinum er óskiljanleg og það kom hreinlega ekert út úr honum auk þess sem liðið sársaknaði hans á miðri miðjunni. Það sem vantaði í gær er kantspil en við höfðum tvo kantmenn á bekknum í gær og fannst mér skrítið að þeir skyldu ekki koma inná. En það var s.s alltaf vitað að tímabilið yrði smá prófraun og við erum með unga stráka, en ef maður horfir á næstu leiki kemst maður ekki hjá því að verða smá smeykur um að liðið geti sogast neðar.
Ási Sveinss
Skráð: 13. July 2010 16:05
Staða: Alvöru Valsari

Skráði sig: 20.10.08
Bréf: 73
Staður: Reykjavík
Gulli hefur að mínu mati stækkað vídd valsliðsins á jákvæðann hátt. Eina sem maður velti fyrir sér er hvort að hann hefði mátt vera aðeins heitari á línunni í gær. En hvað er að gerast með varnarleik liðsins? Hvar er Heiða í Dal núna?

ÁFRAM VALUR !!
Heiða í Dal
Skráð: 14. July 2010 12:16

Staða: Meðlimur

Skráði sig: 13.10.09
Bréf: 28
Staður: Reykjavík
Nú Ási bara farinn að sakna Heiðu sinnar :)

Ég er nú bara í vinnunni að reyna að ná úr mér þessum leik, sem ég nóta bene fór af þegar vallarklukkan sýndi 60 mínútur.

Valsarar.is voru að spá í Hauki Pál í miðverðinum sá ég, og ég er búinn að vera að melta það. Mér finnst það ekki alvitlaus hugmynd, það gengur allavega ekki að hafa hálfmeiddan (eða hvað það er) Reyni í miðverðinum.

Ég er farinn að þrá clean sheet...
bjossi
Skráð: 14. July 2010 13:16
Staða: Nýliði

Skráði sig: 19.05.09
Bréf: 4
Til hvers vorum við að fá Stefán Jóhann Eggertsson til liðsins ef við treystum honum ekki einu sinni fyrir bakverðinum? Ég tími ekki að missa Hauk af miðjunni, þannig að ég vil frekar sjá vörnina svona: Pedersen - Ross - Atli - Stefán.
Heiða í Dal
Skráð: 14. July 2010 16:07

Staða: Meðlimur

Skráði sig: 13.10.09
Bréf: 28
Staður: Reykjavík
Ég vil hafa Stebba áfram í bakverðinum, en lýst ekki á Atla, Martin og Greg sem hina þrjá vegna hraðaskorts.

Af hverju ekki að hafa þetta svona bara:
Kjartan

Stebbi - Haukur Páll - Atli Sveinn - Greg
Martin
Bjössi - Rúnar
Arnar - Danni - Einhver


Fá þá sendingagetuna hjá Martin aftast á miðjuna, aðeins meiri hraða í vörnina og Rúnar í verðskuldað byrjunarliðssæti!

Það hefði ég nú haldið.

Ási Sveinss
Skráð: 14. July 2010 16:24
Staða: Alvöru Valsari

Skráði sig: 20.10.08
Bréf: 73
Staður: Reykjavík
Ef Jón Villhelm og Viktor Unnar fara núna í glugganum er þá ekki kjörið að reyna að fá varnarmann til liðsins. Þessar vangaveltur sýna að vörnin hjá Valsliðinu er afskaplega þunn og raun pínulítið klaufalegt miðað við jafn dýrt lið og Valsliðið er...

ÁFRAM VALUR !!
Loftur
Skráð: 14. July 2010 19:07
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 23.10.08
Bréf: 27
Staður: 101
Er einhvað verið að tala um að þessir tveir fari í glugganum ?. Sé ekki þörf á því að þeir fari, Viktor klárar samning sinn eftir tímabilið og var í byrjunarliði í seinasta leik, ef hann vill losna þá er það bara honum frjálst eftir tímabilið. Jón Vilhelm er nýkominn og er búinn að vera meiddur í þokkabót.

Haukur Páll er alltof dýrmætur miðjunni , það væri fáranlegt að taka hann þaðan líkt og gegn Fram. Einnig væri ekki ráð að taka Pedersen úr vinstri bak enda eini sem getur krossað alminnilega vinstra megin. Veit s.s ekki alminnilega hvað skal gera við vörnina en við þurfum að smíða okkar stakk með henni og hafa tvo djúpa miðjumenn til að bakka hana upp.
Valþór
Skráð: 15. July 2010 15:56
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 17.10.08
Bréf: 14
Staður: 105 Reykjavík
Annars sá maður aðeins til Haraldar Björnssonar í markinu hjá Þrótti á móti KR, og hann lítur djöfulli vel út.
Hann kemur vonandi aftur á Hlíðarenda áður en langt um líður.
p-sæm
Skráð: 6. August 2010 02:04

Staða: Súperstjarna

Skráði sig: 16.04.09
Bréf: 125
Staður: Reykjavík
Þegar ég skrifa þetta er ekki kominn sigur í deild síðan 14. júní gegn Selfossi á Hlíðarenda og núna síðast var það slátrun gegn Breiðablik 5-0. Greinilegt að andleysið og uppgjöf er algjört hjá liðinu sem virðist brotna saman um leið og þeir fá á sig mark. Nú er margur Valsmaðurinn vel pirraður en ég vil koma á framfæri einu sem hefur verið að pirra mig. Það er þjálfarinn sjálfur hann Gunnlaugur og það er þrennt sem pirrar mig

1) Hann virðist aldrei skipa mönnum fyrir. Á leikjum sem ég hef séð hef ég mjög sjaldan heyrt í Gulla gefa skipanir inná völlinn. "Þú gerðu þetta, taktu hlaupið, farðu hér, vertu þar!" hvað sem er. Menn eru að tapa, ekki alveg fullvissir hvað á að gera þá er gott að fá smá ráðgjöf frá þjálfaranum. Maður man náttúrulega að Willum var duglegur með þetta, hoppandi og skoppandi í skýlinu og brjálaður og allt það sem skilaði kannski ekki alltaf tilætluðum árángri (hann fór líka fulllangt með þetta) en hann vildi koma einhverju á framfæri sem hann var ósáttur með eða sá að hægt væri að gera betur. Stundum þarf bara að öskra inná völlinn hvort sem það er hrós, skammir eða peppa menn upp þegar þeir lenda undir en þetta hef ég ekki séð frá Gulla og ég set bara spurningamerki við þetta.

2) Hálfleiksræðan. Þetta er eitthvað sem ég held að allir Valsarar séu að pæla í núna. Okkar menn koma inní leiki greinilega með hausinn í lagi. Til í tuskið, eru með baráttu og vilja, fá færi, skora jafnvel og spila vel. Svo kemur hálfleikur. Núna undanfarið er eins og Gulli hafi sett klóna inná völlinn því við áhorfendur sjáum allt annan leik frá okkar liði.
2-0 yfir gegn fram í hálfleik -- endar 2-2
1-0 yfir gegn fh í hálfleik -- endar 1-1
0-1 yfir gegn íbv í hálfleik -- endar 3-1
1-0 undir gegn breiðablik í hálfleik, vaðandi í færum og ennþá vel inní leiknum -- endar 5-0
Ekki skil ég hvað gerist inní búningsklefanum í hálfleik. Maður hefur alveg séð lið lenda 2-3 mörkum undir í leikjum og vinna það upp í seinni hálfleiknum og það byggist mikið á því hvað þjálfarinn segir við sitt lið í hálfleik. Koma með ný plön, peppa menn upp, breyta örlítið leikskipulaginu, fara yfir hvað fór úrskeðis í fyrri hálfleik en hvað? Við sjáum bara okkar með brotna niður trekk í trekk þangað til þeir gefast algjörlega upp. Þetta er eitthvað sem einfaldlega verður að laga því ég hef ekki séð mjög góðan seinni hálfleik síðan við völtuðum yfir fylki á Hlíðarenda.

3) Skiptingar. Æ ég er kannski að fara fulllangt með þetta. Stundum virka skiptingar og stundum ekki en einhverra hluta vegna vill maður sjá breytingar á liðinu um leið og það er greinilegt að eitthvað er að klikka. Segi þetta aðallega eftir blikaleikinn. Gulli átti að gera skiptingu strax eftir þeir skora annað markið sitt. Þess í stað skiptir hann eftir 3. markið og tekur út fremsta mann og setur annan í staðinn. Engin rótering, engin breyting á leikskipulagi. Bara halda áfram, nákvæmlega eins og áður. Engan veginn að gera sig.

Þetta er hans fyrsta tímabil með Val svo maður gefur honum náttúrulega sénsinn áður en maður afhausar hann en þetta eru atriði sem þarf virkilega að laga. Og ég vil vitna í Bjarnólf úr íslensku mörkunum á RÚV en hann sagði að við erum ekkert að falla, getum slakað á og hann má endilega leyfa ungu mönnunum að fá sénsinn. Þetta er dagsatt, tímabilið svosem búið hjá okkur, enginn titill allavega en við getum alveg gert smá atlögu að evrópusæti og nú má svo sannarlega hrista upp í hlutunum en það var þetta sem Willum og/eða Atli Eðvalds gerðu ekki í fyrra þótt það væri vilji allra stuðningsmanna.

Næst er það leikur gegn Grindavík. Loksins heimaleikur eftir 3 útileiki í röð gegn efstu þremur liðunum. Grindvíkingar fóru illa með framara og unnu þá 3-0 svo þeir fara fullir sjálftrausts inn í þennan leik meðan okkar menn fara í leikinn eftir 5-0 slátrun. Nú er bara að sjá hvort Gulli tekst að sparka aðeins í rassa, hækka aðeins raustina og peppa okkar menn upp svo þeir séu nú tilbúnir í þennan baráttuleik. Endurvekjum stemninguna sem var svo góð hér í byrjun sumars, bæði innan vallar og í stúku og hvetjum okkar menn áfram.

Koma svo Áfram Valur!



Koma Valur - stolt Reykjavíkur - skorum mörkin og vinnum alla leiki!!
Max
Skráð: 6. August 2010 11:31
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 01.07.09
Bréf: 7
Staður: 101 Rvk
Ég er ekkert búinn að gleyma tímabilinu 2001. Valur er í bullandi fallbaráttu þangað til þeir vinna leik.
Pétur Óli
Skráð: 6. August 2010 11:35
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 29.05.09
Bréf: 6
Staður: Rvk
Það er ótrúleg þessi deyfð í seinni hálfleik. Ég er sammála p-sæm, það er eins og hálfleiksræða Gulla sé ekki að virka. Ég var svosem ekkert of hrifinn að fá Gulla, lítið reyndan þjálfara, en víst menn tóku þá ákvörðun þá verðum við bara að halda okkur við þá ákvörðun.

Það er ekki til neins að skipta um þjálfara og það er ekki til neins að vera að tala um fallbaráttu. Við erum með miðlungslið og erum um miðja deild.

Við höfum verið inní leikjum en misst þá niður eftir hálfleikskaffið, þar liggur kannski vandinn. Af hverju mæta sum lið dýrvitlaus eftir hálfleik, en önnur lið mæta áhugalaus?

Er ekki bara kominn tími á að byggja upp? Leyfum ungum leikmönnum að spreyta sig. Ef við gerum það þá er þetta tímabil ekki alveg ónýtt.
Notendur að skoða þetta bréf
Guest


Þú getur ekki skrifað bréf.
Þú getur ekki svarað bréfum.
Þú getur ekki eytt þínum skrifum.
Þúgetur ekki breytt þínum skrifum.
Þú getur ekki búið til kannanir.
Þú getur ekki tekið þátt í könnunum.

SoClean Theme Created by Jaben Cargman (Tiny Gecko)
Knúið af Yet Another Forum.net, útgáfa 1.9.1.8 (NET v2.0) - 29.03.08
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.