|
|
Staða: Alvöru Valsari
Skráði sig: 21.08.09 Bréf: 60 Staður: Rvk
|
http://fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=94550Þá er það að gerast sem menn voru að tala um. Við erum greinilega með hörku hóp og því hægt að leyfa mönnum að ganaga til annara liða í deildinni. Ekki allveg sáttur við þetta verð bara að segja það, svo er Habbó farinn í Grindavík, Matti meiddur líklega út timabilið. Er þetta bara ekki allt í lagi, ég bara spyr ? Áfram Valur
|
|
Staða: Súperstjarna
Skráði sig: 29.10.08 Bréf: 180 Staður: reykjavík
|
Eflaust er Viktor Unnar að fara vegna þess að það er einhver styrkur á leiðinni, Habbo hefur nánast ekkert spilað í sumar og vor, og Matti á að ná einhverjum leikjum. Það kemur alla vega einn leikmaður til félagsns og eflaust verður hann sókndjarfur.
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 22.11.09 Bréf: 0
|
Þetta kemur mer bara ekkert a ovart. I fyrsta lagi þa vorum við að spila a moti fram i 8 liða urslitum a siðasta manudag. Danirnir tveir voru fullir fimmtudag, föstudag og laugardag og lentu þeir i slagsmalum lika niðri i bæ fyrir þennan leik. Baðir byrjuðu þeir leikinn enda vissi ekki gulli ne stjorn af þessu fyrr en eftir fram leikinn. Hvað gerðist voru danirnir settir i bann????? nei byrjuðu baðir a moti FH a meðan að viktor sat a bekknum og fekk ekki einu sinni sens. Fh lenti i svipuðu atviki fyrr i sumar og var sa leikmaður sem braut af ser tekin ur hop. Viktor er buinn að sitja a bekknum hja val nuna i 2 ar og hefur t,d aldrei fengið að spreyta sig i 90 min a islandsmoti. Gulli var spurður ut i þetta agavandamal i gær og sagði að það væri buið að tækla þetta mal, Eg spyr hvernig var þetta tæklað????? væntanlega latnir biðjast afsökunar og malið dautt, spurnig hvað hefði verið gert ef einhver islenskur leikmaður hefði gert þetta???? svo lendir bakvörðurinn nanast i slagsmalum við Arnar afþvi að Arnar sagði honum að drulla boltanum fram þetta er bara faranlegt. Allavega þetta kemur mer ekki a ovart að viktor se að fara hann er of goður leikmaður til að sitja a bekknum og fa ALDREI sens. Fekk reyndar sensinn a moti fram en var teki nn utaf a 50 min þegar við lentum 2-0 undir ( sniðugt þa að taka senter utaf) i stað þess að taka djupan miðjumann af velli. Eg er ekki sattur við að hann se að fara held að hann hefði allveg getað staðið sig svipað og danni ef ekki betur ef að hann hefði byrjað motið fra upphafi. Það er ekki eins og danni se buinn að vera einhver yfirburðar maður herna a islandsmotinu i sumar.
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 23.10.08 Bréf: 27 Staður: 101
|
Er Fletcher með einhver rök fyrir þessum ásökum hér um Danina ? Sé að Fletcher er nánast ekkert að stunda þetta spjallborð hér og set því spurningarmerki við það hvort hann sé stuðninsmaður Vals.
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 28.04.09 Bréf: 8 Staður: Reykjavík
|
Ég hef nú séð Fletcher bregða fyrir hérna nokkrum sinnum og ég efast ekkert um að hann sé Valsari.
Hins vegar þyrfti ég fá fleiri heimildir fyrir því að Danirnir hafi verið fullir þrjá daga í röð og lent í slagsmálum. Þetta er mjög alvarglegt ef satt reynist. Reyndar er Gulli búinn að viðurkenna að eitthvað er til í þessu og að það hafi verið tekið á því, hvort sem það hafi verið eitt fyllerí eða þrjú. Ég skil hins vegar ekki að þeir hafi verið í byrjunarliðinu því þá er verið að segja að menn geti verið fullir og allt í góðu bara. Þvert á móti er þetta nálægt því að vera ástæða til að segja upp samningi við þá. Ímynda mér að þetta fari ekki vel í aðra í búningsklefanum þegar þeir sjá þetta líðast og fyrir Viktor hefur þetta verið síðasta stráið.
Gulli segir að búið sé að taka þessu, hvernig þá? Við eigum heimtingu á að vita það.
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 22.11.09 Bréf: 0
|
Eg er stuðningsmaður Vals og hef oft skrifað herna a spjallinu. Eg var vitni af þvi þegar þeir lentu i slagsmalum og var það a oliver þar sem annar daninn kyldi Björgvin gustafson handbolta landsliðsmarkmann þar sem þeir attu einhver orðaskipti og svo var þetta fljotlega stoppað. Eg sa þa lika a laugardag vel i glasi en þetta með fimmtudaginn fretti eg og get þvi ekki sagt að það hafi verið 100% en það var leikmaður vals sem sagði mer það. Eg er ekki að segja að eg vilji losna við þa en mer finnst nu helviti hart að aðrir leikmenn þurfa að sætta sig við að þurfa að sitja a bekknum þegar menn haga ser svona og það se ekkert gert. Það vita þetta flest allir fjölmiðlamenn enda var gulli spurður ut i þetta i viðtali a fotbolti.net eftir leikinn þo svo að það hafi ekki verið sagt nakvæmlega hvað hefði gerst. Svo að þetta er ekki einhver lygi sem eg er að koma með her enda vildi eg nu helst ekki vera að tala um þetta þar sem það er buið að tækla þetta af stjorn og þjalfara. Kom mer bara svo a ovart að sja þa baða i byrjunarliðinu i gær og svo þegar maður las það að viktor unnar væri liklega að fara.
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 13.07.10 Bréf: 0
|
Satt að segja skil ég ósköp vel að Habbó sé farinn því miður þróaðist hann ekki í þann leikmann sem menn vonuðust. Það getur hinsvegar verið þjálfuninni að kenna hjá félaginu. Sama segi ég um Viktor. Það virðist stundum gleymast hér á spjallborðinu að Viktór fékk tækifæri í byrjunarliðinu í öllum biklarleikjum okkar. Það sem hann sýndi þar gaf ekkert til kynna að hann vildi fá sætið...Sagan segir að hann hafi verið með stæla því hann var ekki fastamaður í liðinu og loks þegar hann fékk tækifærið þá sýndi hann aldrei það sem vænta mátti af honum. Engin barátta í honum...Veit það allavega að blikarnir eru ekkert fúlir að hann fór í Val...
Hins vegar ef það er verið að reyna ná í nyja menn þá þarf að losa pening einhversstaðar og þessir tveir eru þeir augljósustu til að láta fara..
hvað danina varðar þá verður að hafa vissa aga á leikmönnum ég er algerlega á því..hvað spilamennsku þeirra varðar þá eru þeir búnir að vera með bestu mönnum okkar í ´sumar. það verður hinsvegar líka að muna að menn eru mis-jafnir innan liðsins...þetta er jú atvinnumannalið eða semi-atvinnumannalið. Aldrei unnið á vinnustað sem allir starfsmenn er jafnir ...
|
|
Staða: Súperstjarna
Skráði sig: 29.10.08 Bréf: 180 Staður: reykjavík
|
Það er leiðilegt að ,,atvinnumennirnir'' dönsku Dannig König og Martin Petersen séu fullur þrjá daga fyrir mikilvægara leiki. Þeir hafa samt spilað nokkuð vel en alls ekki verið frábærir. Gulli og stjórnin eiga auðvitað að taka á þessu og leysa þetta. Það að kýla Bjögga er slæmt. Það þarf að styrkja hopinn aðeins og auðvitað væri hægt að leysa dönsku strákana undan samningi en persónulega er mér alveg sama þó þeir séu fullir þar að segja ef Valur vinnur leiki sína.
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 28.04.09 Bréf: 8 Staður: Reykjavík
|
Skaginn skrifaði: persónulega er mér alveg sama þó þeir séu fullir þar að segja ef Valur vinnur leiki sína. Það væri auðveldara að fyrirgefa þetta ef Valur væri að vinna þessa leiki en þeir hins vegar ekki unnið leik í langan tímann þannig að það er ekki hægt að afsaka danina með því. Þeir hafa staðið sig vel að mörgu leyti en það hafa líka aðrir gert og það er ekki hægt að hafa sér reglur fyrir þá eins og virðist vera.
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 22.11.09 Bréf: 0
|
Jonas Vill nu benda þer a eitt að þu segir að viktor hafi byrjað alla bikarleikina okkar????? hvernig væri nu að reyna að fylgjast með liðinu ef þu ert að gagryna leikmenn? i fyrsta lagi þa byrjaði viktor a moti aftureldingu og skoraði þar sigurmarkið. I leiknum a moti Viking kom hann inn a 105 minutu i stöðunni 1-1 og skoraði þa. Fekk svo loksins að byrja inn a moti fram en var tekinn utaf a 50 minutu. Ef þu veist eithvað um fotbolta jonas þa hlyturðu að sja að strakurinn er ekki i neinu spilaformi en er samt buinn að skora 2 mörk. Hann er buinn að byrja einn leik i sumar og eins og eg sagði aðan þa var hann tekinn utaf a 50 minutu. Hann var mjög goður a undirbuningstimabilinu en hefur fengið mjög faar minutur eftir að danni kom. Það getur velverið að blikarnir seu sattir við að hann se i Val en hann kom nu fra Reading en ekki blikunum þegar hann kom i val. Habbo er eg kannski meira samala ekki allveg verið nogu goður en samt goður fotbolta maður þar a ferð.
|
|
Staða: Alvöru Valsari
Skráði sig: 20.10.08 Bréf: 73 Staður: Reykjavík
|
Danirnir eru ekkert einu mennirnir í þessu liði eða sem hafa verið sem mættu slappa aðeins af á djamminu svona yfir hásumarið. Þetta er bara hluti af íslenskri knattspyrnu og verður það áfram. Danirnir óheppnir að þetta hafi komist upp enda óheppilegt fyrir þá en miðað við spilamennskuna í bikarnum gegn fram mætti halda að það hafi verið liðsfyllerí....
ÁFRAM VALUR !!
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 13.07.10 Bréf: 0
|
minn kæri Fletcher ég skal alveg vera sammála þér að skrifa röng hlaup og mishepnaðar sendingar á litla spilamennsku...en þegar 20 strákur hleypur ekki eins og vitleysingur og berst eins og ljón allan leikinn þegar hann fær tækifærið þá hefur hann ekkkert að gera í byrjunarlið Vals....sama á um marga fleiri unga og efnilega drengi á Íslandi sem eru góðir en ætlast til að þeir fái bara allr upp í hendurnar því þeir eru svo góðir...Þú skrifar hér undir nafninu Fletcher sem er nú kannski ekki besti fótboltamaðurinn í heimi en það verður ekki tekið af þeim manni sem þú kýst að nefna þig eftir hér á spjallborðinu furst þú skrifar ekki undir þínu eigin nafni, að sá drengur berst eins og ljón fyrir félagið sitt með baráttu og hlaupum eftir andstæðingnum ef hann missir boltan og sýnir það í hverjum leik að hann vill fá að vera í byrjunarliðinu í hverjum einasta leik...
hvort menn skora mörk er ekki það sem ég gagnrýni það er sá andi sem menn sýna í leikjum.....hjá Viktori hafur hann ekki vakið hjá mér aðdáun því miður...
far vel og allt
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 18.10.08 Bréf: -1 Staður: 105 RVK
|
Það er greinlega verið að gulltryggja það að Danni fulli treyjukastari muni spila 90 mínútur í hverjum einasta leik það sem er eftir að tímabilinu. Hann getur verið í agavandamálum og kastað treyjum í bræði og hvað gerir Gunnlaugur Jóns og stjórn knattspyrnudeildarinnar? Jú, auðvitað það eina í stöðunni, fjarlægir alla samkeppni!
Nú get ég alveg verið sammála því að Viktor hefur ekkert verið að heilla gríðarlega en tækifærin hafa ekki verið neitt voðalega mörg. Danni fulli treyjukastari fær hinsvegar endalausa sjensa sama hvað hann klúðrar miklu.
Það sjá það allir sem vilja sjá að það eru leikmenn í þessu Valsliði sem eru eingöngu í liðinu á einhverju orðspori og hve dýrir þeir eru á fóðrun.
|
|
Staða: Alvöru Valsari
Skráði sig: 20.10.08 Bréf: 73 Staður: Reykjavík
|
Svo sem ekki verið að fjarlægja Viktor...hann vill fara og er mjög ákveðinn í að fara.
ÁFRAM VALUR !!
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 12.05.09 Bréf: 0
|
Danni hefur kannski verið mistækur en hann hefur verið með betri mönnum í þessu liði það sem af er sumri. Hann klúðrar þónokkrum færum í hverjum leik en í flestum tilfellum eru það færi sem hann kemur sér sjálfur í.
Annars hef ég ekki farið í bæinn margar helgar í sumar án þess að sjá Viktor Unnar.
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 28.05.10 Bréf: 0
|
það þarf ekki að vera að viktor unnar sé fullur í bænum ef hann hefur verið þar það er hægt að skemta sér edrú og danirnir ættu að taka það til sín ef þetta er satt sem sagt er um þá. Það er aðsjálfsögðu skandall ef þeir eru fullir og ekkert gert í því annars fynnst mér fúllt að viktor sé að fara en vonandi fer liðið að gera góða hluti
ÁFRAM VALUR :)
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 23.10.08 Bréf: 27 Staður: 101
|
Er Viktor, Pandóra ?
|
|
 Staða: Stjórnandi
Skráði sig: 17.10.08 Bréf: 14
|
Sælir Valsmenn.
Mér barst eftirfarandi bréf frá Berki formanni Knattspyrnudeildar Vals með ósk um að setja það hér inn. Í stað þess að eyða svona kjaftasöguþræði var ákveðið að svara fyrir það sem hér stendur.
Kæru Valsarar, Í ljósi þeirrar umræðu sem má finna í þessum þræði vil ég koma eftirfarandi á framfæri. Fyrir það fyrsta á spjallborð félagsins að vera vettvangur fyrir líflegar og uppbyggilegar umræður um allt sem viðkemur félaginu. Það er hins vegar afar bagalegt og öllu félaginu til vansa þegar spjallborðið verður vettvangur fyrir kjaftasögur, getgátur og upphrópanir, eins og klárlega er tilfellið í þessum þræði. Neikvætt umtal byggt á kjaftasögum getur aldrei verið félaginu til góða og frelsið til að tjá sig á netinu er auðvelt að misnota. Umræðan um það hvort félagið eigi að halda úti spjallborði í sínu nafni á rétt á sér þegar ítrekað koma upp dæmi um misnotkun, þar sem ekki er skrifað undir nafni en hins vegar frjálslega farið með staðreyndir og menn nafngreindir í því sambandi. Í síðustu viku komu upp agavandamál í meistaraflokki karla sem tengdist dönsku leikmönnunum. Án þess að það verði upplýst hvað nákvæmlega kom upp skal tekið fram að það sem fram kemur í þessum þræði eru verulega ýktar kjaftasögur. Málið var tekið föstum tökum af yfirstjórn félagsins og knattspyrnudeildar, leikmennirnir tóku út sína refsingu og málið afgreitt af hálfu allra aðila. Það er mikilvægt að allir sem félaginu tengjast snúi bökum saman þegar svona kemur upp og styðji við liðið í blíðu og stríðu. Stjórn knattspyrnudeildar stendur heilshugar á bak við liðið og óskar þess að allir félagsmenn geri slíkt hið sama. Mér blöskrar að því sé haldið fram að ástæðan fyrir hugsanlegu brotthvarfi Viktors Unnars sé að hann sé stanslaust að stunda næturlífið í Reykjavík. Þar liggja aðrar ástæður að baki og engin illindi á milli félagsins og leikmannsins. Að síðustu vil ég þakka öllum stuðningsmönnum fyrir sína þátttöku í stuðningi við öll lið félagsins, um leið og ég minni á stórleik kvennaliðsins gegn Þór/KA í undanúrslitum bikars á laugardag. Áfram Valur! E. Börkur Edvardsson Formaður knattspyrnudeildar Vals
Vonast ég til að svona kjaftasöguumræða leggist af á þessu spjallborði sem fyrst.
Valskveðja, Árni Gunnar Ragnarsson, Vefstjóri valur.is
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 22.04.09 Bréf: 13
|
'Oþarfi að vera með blömeringar á Viktor. Sjálfur reiknaði ég með að Viktor myndi vaxa sem leikmaður hjá Val ,en það hefur ekki gerst. Seinnast í Haukaleiknum sást vel hve mikið vantaði upp á getu Viktors í efstu deild gegn botnliði, hvað sem seinna verður, þrátt fyrir ágætis tilburði í Vikingsleiknum. Megi honum ganga vel í framtíðinni.
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 28.05.10 Bréf: 0
|
nei ég er ekki viktor unnar langt frá því mér fynnst þetta einfaldlega góður leikmaður. ég var einfaldlega að benda á ef viktor hefur verið á næturlífi er hægt að skemta sér án áfengis svona verða einmitt kjatasögur til höldum bara áfram að stiðja okkar menn :)
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 23.10.08 Bréf: 27 Staður: 101
|
Varst þú ekki (Pandóra) með blammeringar á Dönsku leikmennina sem ýta undir kjaftasögur, það fær mann til að trúa að þú sért hlutdrægur í þessu?
|
|
Staða: Súperstjarna
Skráði sig: 29.10.08 Bréf: 180 Staður: reykjavík
|
Flott bréf hjá Berki. Eflaust getur stjórnin vel á þessu og líklegast eru engin illindi í brotthvarfi Viktors. Með dönsku strákana þá vita þeir eflaust manna best hvernig þeir tækla þetta. Ég vona svo bara að liðið fari að vinna leiki, þessi endalausu jafntefli eru ansi þreytandi og draga liðið bara niður tölfuna.
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 22.11.09 Bréf: 0
|
Eg held nu að það seu engin illindi með brothvarfi viktors og með danina þa er maður bara full ut i þa þegar þeir haga ser svona og maður getur vel truað að þetta skapi leiðindi a æfingum. Danirnir eru bunir að standa sig agætlega og eg sagði að eg vildi ekki losna við þa. En eg skil vel vel að viktor vill fara enda hefur hann ekki fengið mikinn sens, ju kannski vantar barattu hja honum og svona en mer fannst hann verðskulda fleiri sensa i byrjun mots. Reyndar hefur maður ekkert heyrt meir kannski er hann ekkert að fara. En flott að formaðurinn skildi svara þessu þo svo að hann vilji ekki segja hvað gerðist eða hvernig þeim var refsað. Hann segir reyndar að þetta se storlega ykt :) Eg var a staðnum ekki þeir og eg se enga astæðu fyrir að fara að ljuga um þessa straka þar sem maður er stuðningsmaður Vals. Maður vill samt ekki að þeir hagi ser svona þar sem Valur er að borga þeim að eg held storfe fyrir að hafa þa her.
|
|
Staða: Alvöru Valsari
Skráði sig: 20.10.08 Bréf: 73 Staður: Reykjavík
|
Flestir leikmenn liðsins kosta stórfé að mínu mati. Sérstaklega þegar litið er til þess að þetta ár átti að marka byrjun á uppbyggingarstarfi og átti ekki að vera nein krafa um árangur. Vonandi að það losni um til að fá erlendan varnarmann núna þannig að hægt verði að auka breiddina á vörninni. Finnst svolítið vera að fara hálfa leið í þessu...
ÁFRAM VALUR !!
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 25.06.10 Bréf: 1
|
Viktor kominn á Selfoss. Gangi honum vel þar.
|
|
|
Guest |