Knattspyrnufélagið Valur

Velkominn, gestur Leita | Mest lesið | Notendur | Innskráning | Nýskráning

3-1 tap í eyjum. Valkostir
Egerfan
Skráð: 25. July 2010 19:30
Staða: Alvöru Valsari

Skráði sig: 21.08.09
Bréf: 60
Staður: Rvk
Jæja þá er það ljóst 3-1 tap í eyjum fyrir tryggva guðmunds og félögum.
Gaman að því er það ekki.

eyjamenn greinilega með sterkt lið. Nú verður eitthvað jákvætt að fara að gerast það þarf greinilega að styrkja liðið eitthvað.

Áfram Valur
HB
Skráð: 25. July 2010 20:31
Staða: Nýliði

Skráði sig: 25.06.10
Bréf: 1
Er ekki óþarfi að styrkja liðið núna? Er ekki viturlegra að spara peningana fyrir næsta ár?
Skaginn
Skráð: 25. July 2010 22:27
Staða: Súperstjarna

Skráði sig: 29.10.08
Bréf: 180
Staður: reykjavík
Það þarf að styrkja liðið því þó það hafi orðið tap þá er 3 sætið er dottið úr sögunni. Valsmenn verða að fara vinna leiki
p-sæm
Skráð: 26. July 2010 05:20

Staða: Súperstjarna

Skráði sig: 16.04.09
Bréf: 125
Staður: Reykjavík
Það þarf nú varla að styrkja hópinn neitt. Þessir drengir sem við höfum eru alveg nógu góðir en það er eitt sem vantar - klára færin! Þar sem ég er erlendis þurfti ég að láta nægja textalýsingu og þetta er það sem ég las á mbl.is:

35. mín: Algjört dauðafæri hjá Baldri. Hann lék á Eið Aron inn í vítateig ÍBV og var einn gegn Alberti í miðjum teignum. Skotið var hins vegar lélegt en engu að síður gerði Albert vel í því að verja.

37. mín: Ian Jeffs slapp í gegn eftir laglega sendingu frá Danni König. Jeffs tók sér góðan tíma en of mikinn tíma því James Hurst náði að vinna boltann með laglegri skriðtæklingu. Varamannabekkur Valsara heimtaði vítaspyrnu en það gerði Jeffs ekki, enda aðeins glæsilegur varnarleikur hjá Hurst.

41. mín: Fín sending frá Baldri Ingimari Aðalsteinssyni úr hornspyrnunni, Atli Sveinn fékk frían skalla við markteig en skallaði naumlega framhjá. Eyjasmennn stálheppnir að vera ekki tveimur mörkum undir

45. mín: Baldur Ingimar fór illa með enska bakvörðinn James Hurst og negldi að marki úr þröngu færi. Skotið fór hins vegar hátt yfir en Baldur hefði betur sent fyrir markið.

Hálfleikur: Valsmenn eru verðskuldað yfir í Eyjum þegar flautað er til hálfleiks. Valur hefur leikið með vindinn í bakið en þegar leikurinn hófst var aðeins hæg gola en nú hefur aðeins bæst í vindinn. Þótt Valsmenn hafi haft heppnina með sér í markinu, þá hafa þeir verið mun betri úti á vellinum og auk þess skapað sér fleiri og hættulegri færi. Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV gekk þungbúinn til búningsklefa í hálfleik. Nú hita þeir Ásgeir Aron Ásgeirsson og Damien Justin Warlem upp og koma væntanlega inn á í síðari hálfleik.

Ég lít síðan frá skjánum í 10 mínútur og eyjamenn eru búnir að skora 2 mörk. Múrsteinsveggur Einhver heppnisstimpill svo yfir boltanum sem fór yfir marklínuna og menn geta ekki skorað úr opnum færum.
Sigurlaus júlí er ansi rýr uppskera en nú er mikilvægt að halda haus því næsti leikur er ekkert auðveldari en það eru blikarnir á kópavogsvelli. Vona að hinir rauðklæddu fjölmenni því liðið þarf á okkar stuðning að halda til að knýja fram sigrana.

Koma svo, Áfram Valur!



Koma Valur - stolt Reykjavíkur - skorum mörkin og vinnum alla leiki!!
Notendur að skoða þetta bréf
Guest


Þú getur ekki skrifað bréf.
Þú getur ekki svarað bréfum.
Þú getur ekki eytt þínum skrifum.
Þúgetur ekki breytt þínum skrifum.
Þú getur ekki búið til kannanir.
Þú getur ekki tekið þátt í könnunum.

SoClean Theme Created by Jaben Cargman (Tiny Gecko)
Knúið af Yet Another Forum.net, útgáfa 1.9.1.8 (NET v2.0) - 29.03.08
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.