Knattspyrnufélagið Valur

Velkominn, gestur Leita | Mest lesið | Notendur | Innskráning | Nýskráning

Endurvekjum Væringja Valkostir
Audunn
Skráð: 3. August 2010 11:42
Staða: Nýliði

Skráði sig: 03.08.10
Bréf: 0
Staður: Rvk
Frá árunum 1919 til 1923 tók Valur ekki þátt í Íslandsmóti í knattspyrnu. Árangurinn hafði ekki verið viðunandi og sú ákvörðun var tekin að einblína um sinn eingöngu á þjálfun yngri flokka félagsins, sem nefndir voru Væringjar. Þessi ákvörðun fékk sig margfalt borgað til baka því eftir þessa fjarveru Valsmanna á Íslandsmóti vannst hver titillinn á fætur öðrum, sem gerði félagið að einu allra sigursælasta félagi landsins, þrátt fyrir að hafa á að skipa mun yngra liði en hin liðin sem mættu til leiks. Á 25 ára afmæli Vals var skrifuð grein í Morgunblaðið þar sem stiklað var á stóru í sögu félagsins. Þar var tekið fram að góðum árangri Valsmanna mætti eflaust þakka að alltaf hafði mikið kapp verið lagt á þjálfun yngri leikmanna félagsins.

Það á að vera aðlaðandi að vera í Val. Ungir og efnilegir leikmenn eiga að leitast við að koma til félagsins til að hljóta betri þjálfun frá góðum og metnaðarafullum þjálfurum og undir handleiðslu þeirra vita þeir að þeim bíður góð framtíð. Meistaraflokksþjálfarar fylgjast stíft með framgöngu mála og taka virkan þátt í þjálfun unglinganna. Ef leikmenn standa sig nógu vel fá þeir tækifæri til að æfa og leika með meistaraflokk félagsins. Valur á að vera framúrskarandi félag með það markmið að leiðarljósi að hlúa vel að unglingastarfi félagsins, vegna þess að þar er framtíðin.

Sköpum í takt við söguna og búum til framtíð fyrir unga Valsmenn.
Notendur að skoða þetta bréf
Guest


Þú getur ekki skrifað bréf.
Þú getur ekki svarað bréfum.
Þú getur ekki eytt þínum skrifum.
Þúgetur ekki breytt þínum skrifum.
Þú getur ekki búið til kannanir.
Þú getur ekki tekið þátt í könnunum.

SoClean Theme Created by Jaben Cargman (Tiny Gecko)
Knúið af Yet Another Forum.net, útgáfa 1.9.1.8 (NET v2.0) - 29.03.08
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.