Knattspyrnufélagið Valur

Velkominn, gestur Leita | Mest lesið | Notendur | Innskráning | Nýskráning

Valur - Grindavík á Sunnudaginn Valkostir
Ási Sveinss
Skráð: 6. August 2010 22:08
Staða: Alvöru Valsari

Skráði sig: 20.10.08
Bréf: 73
Staður: Reykjavík
Jæja fallegu Valsmenn, Grindavík á sunnudaginn klukkan 1915 og loksins getur maður sest aftur í gamla góða sætið sitt á Hlíðarenda.

Eftir erfiða 2 mánuði er skiljanlega pirringur í mönnum og skal ég trúa því að hann séi mestur innnan leikmannahópsins. Það er þó engin ástæða til að trúa öðru en að Atli Sveinss og Sigurbjörn sýni gott fordæmi og hjálpi mönnum að beina þeirri orku í leikinn og snúa genginu við.

Þegar að svona á hólminn er komið þá þarf ekki nema einn sigurleik til að breyta andanum og stíga upp sem aldrei fyrr. Því er mikilvægt að sem flestir mæti á völlinn svo að Stuðningsmenn og Liðsmenn geta sameinast í eina sæng og mæta sem sterk heild gagnvart baráttuglöðum grindjánum. Allir sem að hafa hugsað sér að vera heima í stað þess að mæta á leikinn ættu að mæta með bros á vör og og standa sterkir eins og sönnum Valsmönnum sæmir!

ÁFRAM VALUR !!!!!

ÁFRAM VALUR !!
Skaginn
Skráð: 7. August 2010 11:24
Staða: Súperstjarna

Skráði sig: 29.10.08
Bréf: 180
Staður: reykjavík
Já þetta er spennandi leikur og Grindavík með eitt flottasta varnarpar landsins, sterkan sóknarmann ef ekki menn en ég held að Valur á heimavelli gefi mikið og því segi ég 3-1 f. Val (Guðmundur Steinn-Jón Vilhelm- Arnar Sveinn) og Ondo með mark þeirra gulu
Trifon
Skráð: 7. August 2010 12:20
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 23.10.08
Bréf: 6
Staður: RKV
Já það er vonandi að Valsmenn mæti nú á völlinn og myndi smá stemmningu. Það skiptir mestu máli að styðja liðið þegar á móti blæs, það er lítið mál að láta bara sjá sig á stöku úrslitaleikjum.

það er vonandi að strákarnir snúi þessu dæmi nú við, þeir hljóta sjálfir að vera mest pirraðir yfir úrslitum síðustu leikja.
Loftur
Skráð: 7. August 2010 13:57
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 23.10.08
Bréf: 27
Staður: 101
Strákarnir hljóta að vilja sanna sig ærlega eftir útreiðina seinast, hef trú á að ungu Valsararnir sýni styrk sinn á Hlíðarenda og vinni baráttusigur.
Notendur að skoða þetta bréf
Guest


Þú getur ekki skrifað bréf.
Þú getur ekki svarað bréfum.
Þú getur ekki eytt þínum skrifum.
Þúgetur ekki breytt þínum skrifum.
Þú getur ekki búið til kannanir.
Þú getur ekki tekið þátt í könnunum.

SoClean Theme Created by Jaben Cargman (Tiny Gecko)
Knúið af Yet Another Forum.net, útgáfa 1.9.1.8 (NET v2.0) - 29.03.08
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.