Knattspyrnufélagið Valur

Velkominn, gestur Leita | Mest lesið | Notendur | Innskráning | Nýskráning

Mikilvægur sigur gegn Fylki. Valkostir
Ragnar
Skráð: 17. August 2010 09:59
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 25.05.09
Bréf: 6
Eftir allt svartsýnistal hér á síðunni þegar illa hefur gengið held ég að það sé í lagi að HRÓSA leikmönnum fyrir mikilvægan sigur gegn Fylki í gærkvöldi. Sjálfur var ég ekki á vellinum en vefmiðlar sem og markaþættir gáfu þá lýsingu að þetta hefði ekki verið "góður" fótboltaleikur, það er aukaatriði.

Það sýnir karakter og styrk að koma frá 0-5 tapi og halda hreinu í næstu tveimur leikjum, og það að vinna úti er alltaf jákvætt.

Vonandi verður meiri jákvæðnis-umræða í kringum meistaraflokk karla hér eftir, þetta átti alltaf að vera lærdóms/þróunarstarf í sumar og það virðist vera að þetta toppsæti í byrjun móts hafi gefið smá falsvon.

En áttum okkur á því Valsmenn að síðustu 2-3 ár hafa að meðaltali 7+ leikmenn yfirgefið hópinn og aðrir komið, og það tekur tíma að byggja upp heilsteypt lið eftir slíka leikmannaveltu.

Valskveðja

Ragnar Vignir.
Heiða í Dal
Skráð: 17. August 2010 10:20

Staða: Meðlimur

Skráði sig: 13.10.09
Bréf: 28
Staður: Reykjavík
Sammála þessu - betra veganesti í KR leikinn en sigur og hreint mark í Árbæ er vandfundið.
Ási Sveinss
Skráð: 17. August 2010 13:38
Staða: Alvöru Valsari

Skráði sig: 20.10.08
Bréf: 73
Staður: Reykjavík
Finnst það eiginlega bara hlægilegt að Kjartan Sturluson fái ekki M í mogganum! Það mátti varla sjá á milli hvort hann eða Haukur Páll stóðu sig betur í leiknum og hefði hann vel getað fengið M. Kristján Valdimarsson fær 2 M sem ég svona get ekki alveg skilið. Miðað við það hefði Haukur Páll átt að fá 2 M enda stjórnaði hann miðjunni og stöðvaði margar sóknir Fylkis.

ÁFRAM VALUR !!
Loftur
Skráð: 17. August 2010 14:04
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 23.10.08
Bréf: 27
Staður: 101
Held að það verði að hrósa Gulla fyrir að breyta rétt, liðið er kannski ekki það skemmtilegasta í deildinni núna en þetta sýnir viss klókindi hjá Gulla að setja vörnina í forgang og byrja á því að stoppa í götin þar. Haukur var frábær og er gríðarlega mikilvægur, Kjartann var einnig góður en manni fannst liðið þó vanta hraða fram á við. Verð að segja að maður sér eftir Alberti Inga, klókur framherji sem Valur hefði að ósekju gefa fleiri tækifæri á sýnum tíma.
Loftur
Skráð: 17. August 2010 14:05
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 23.10.08
Bréf: 27
Staður: 101
Held að það verði að hrósa Gulla fyrir að breyta rétt, liðið er kannski ekki það skemmtilegasta í deildinni núna en þetta sýnir viss klókindi hjá Gulla að setja vörnina í forgang og byrja á því að stoppa í götin þar. Haukur var frábær og er gríðarlega mikilvægur, Kjartann var einnig góður og er að eiga sitt besta tímabil síðan 07.

En okkur vantar ískyggilega framherja, Verð að segja að maður sér eftir Alberti Inga, klókur framherji sem Valur hefði að ósekju gefa fleiri tækifæri á sýnum tíma, held að Valur meigi fara lýta i kringum sig eftir ungum Íslenskum framherja.
Borko
Skráð: 17. August 2010 18:39
Staða: Nýliði

Skráði sig: 10.03.09
Bréf: 1
Staður: Reykjavík
Þetta var gott og dýrmætt. Meira svona.
Notendur að skoða þetta bréf
Guest


Þú getur ekki skrifað bréf.
Þú getur ekki svarað bréfum.
Þú getur ekki eytt þínum skrifum.
Þúgetur ekki breytt þínum skrifum.
Þú getur ekki búið til kannanir.
Þú getur ekki tekið þátt í könnunum.

SoClean Theme Created by Jaben Cargman (Tiny Gecko)
Knúið af Yet Another Forum.net, útgáfa 1.9.1.8 (NET v2.0) - 29.03.08
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.