|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 10.03.09 Bréf: 1 Staður: Reykjavík
|
Verðum við ekki að ræða þetta eitthvað?
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 28.10.08 Bréf: 31 Staður: Kópavogur
|
Spurt er verðum við EKKI að ræða þetta eitthvað ?
Ræða það að liðið getur bara spilað fyrri hálfleik Ræða það að liðið skorar EKKI mörk Ræða það að vörn og markvarsla er arfa légleg -
Áfram Valur
|
|
Staða: Alvöru Valsari
Skráði sig: 21.08.09 Bréf: 60 Staður: Rvk
|
Spurning um að skipta um plötu því önnur hliðin á þessari er orðin rispuð :-/
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 06.11.08 Bréf: 6
|
já þetta er sama sagan og í allt sumar. Ágætur fyrri hálfleikur og svo kemur mjög slæmur 15 mínútna kafli þar sem við höfum verið að fá á okkur 1-5 mörk.
Hættum að blekkja okkur - við erum í fallbaráttu!
Reynslulaus þjálfari og hugmyndalaus. Það batnaði til muna þegar "strikerinn" okkar fór útaf. Af hverju má t.d. Arnar Sveinn ekki prófa að fara aðeins fram?
Hvað á að gera þegar við fáum á okkur mark? Það er eins og liðið rotist við að fá á sig mark - kemur alltaf 2-3 mörk í kjölfarið,
Og svo er þetta eitthvað sem allir leikmenn vita - alvega sama hvar liðið er í deildinni þá megum við ekki tapa fyrir kr og hvað þá á heimavelli.
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 19.05.09 Bréf: 4
|
Samt sem áður (samk. viðtalið við Gulla á Vísi) stefnir maðurinn á ná 4. sætinu!
Wake up and smell the coffee, við erum í fallbaráttu.
Svo er ég ekkert sannfærður um það heldur að ég vilji hafa hann sem þjálfara næsta sumar. Hann hefur nokkra leiki til viðbótar til að heilla mig.
|
|
Staða: Súperstjarna
Skráði sig: 29.10.08 Bréf: 180 Staður: reykjavík
|
Eru einhverjir spennandi kostir í boði fyrir næsta tímabil
|
|
Staða: Alvöru Valsari
Skráði sig: 20.10.08 Bréf: 73 Staður: Reykjavík
|
Hvað gerðist segi ég nú bara? Á tímabili var ég að pæla að rölta inn og biðja um endurgreiðslu enda er glæpsamlegt að rukka fyrir svona. Hvernig getur í ósköpunum munað svona miklu á milli hálfleikja!?
Fór inn á fotbolti.net og sé viðtal við fyrirliðann sem segir að liðið séi bara ekki betra....haaaa!!??? Eitt dýrasta lið deildarinn og það er ekki betra en þetta? Hvað er fyrirliðinn að segja? Þarf að kosta meiru til? Hvað vill fyrirliðinn að verði gert.
Ég vill meina að þetta séi nokkuð gott lið sem að Valur hefur þarna. Sást greinilega á fyrri hálfleiknum þegar að þeir gersamlega yfirspiluðu kr á köflum. Stúkan í stuði, liðið í meðbyr og allt sem bennti til þess að Valsmenn myndu setja fyrsta markið. Það dugði þó ekki til því eitthvað gerðist í hálfleik sem er nær óskiljanlegt. Þetta var allavega rosaleg vatnsgusa sem menn fengu í andlitið.
Eitt sem mér þykir soldið skrítið er af hverju Valur samdi ekki við Garðar Jóhannesson þegar að það bauðst? Heyrði að það hafi ekki verið gert þar sem að hann gæti horfið snögglega en ég get ekki séð af hverju það væri eitthvað verra en Danni König....
ÁFRAM VALUR !!
|
|
 Staða: Meðlimur
Skráði sig: 13.10.09 Bréf: 28 Staður: Reykjavík
|
Ég hef ekki heyrt að Garðar hafi boðist þegar hann kom og spilaði korter með Stjörnunni. Ekki hefði það svosem verið skref framávið.
Seinni hálfleikurinn var ekki góður, en það er eitt sem er að gleymast í barlóminum. KR-ingar, eins illa og manni er við að skrifa það, spiluðu afar vel síðari 45 mínúturnar. Bæði lið voru að glopra sendingum í fyrri hálfleik og Valsmenn sterkari, en KR komu eins og grenjandi ljón úr hléinu.
Hvað veldur því er ekki gott að segja og hægt að debata það fram og til baka. Við vitum ekkert um það af því að fæstir okkar eru inni í klefa fyrir leik, í hálfleik og eftir leik.
Sama með þetta 'Eitt dýrasta lið landsins' umræðu sem skýtur upp kollinum annað slagið - við vitum ekkert um það af því að við sjáum ekki um bókhaldið hjá þeim 12 liðum sem spila í deildinni. Aðeins að halda löppunum á jörðinni og styðja liðið áfram þó allir séu drullupirraðir á brokkgengu sumri.
Það sem ég vil sjá fyrir næsta tímabil er einfalt. Það er dobía af hungruðum strákum í næst efstu og þriðju efstu deild sem ég vil sjá á Hlíðarenda í bland við þá sem þegar eru komnir. Framherji með hraða, vinstri bak og einn miðvörður og við erum góðir. Ekki útlendinga sem spila bara hálft mótið vel og stinga af áður en það klárast og enga útbrunna jálka.
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 13.05.10 Bréf: 1
|
Var raunar ekki á leiknum, en miðað við það sem maður hefur heyrt, þá var fyrri hálfleikurinn mjög fínn. En þannig hefur það verið nánast í allt sumar. Ég er sammála því að þjálfarinn sé reynslu - og hálfhugmyndalaus. En, hvað er raunverulega að þessu liði okkar? Hvernig stendur á því að Viktor Unnar og Hafþór Ægir skuli spila eins og kóngar með nýju liðunum sínum en gerðu lítið sem ekkert þegar þeir voru hjá Val?
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 23.10.08 Bréf: 27 Staður: 101
|
Vörnin brást enn og aftur, sem er kannski ekki skrítið þegar að vinstri bakvörður er í miðverði og miðjumaður í vinstri bakverði, Kringar föttuð þennan veikleika í hálfleik og fóru að spila meira á Kjartann Henry hægra megin sem er stór og sterkur og okkar menn réðu ekki við hann. Einar Marteins var á bekknum og hann er hreinn miðvörður, hann var lánaður fyrr í sumar til þess að vera í leikformi þegar á þurfti. Einar hefði átt að detta í miðja vörnina í gær og Martin í vinstri bakvörðinn, í staðin erum við að spila mönnum út úr stöðum og það verður okkur að falli í gær.
Síðan er bara ótrúlegt að horfa upp á þennan Íra frammi, hann er greinilega í ömurlegu formi og hefur nánast ekkert upp á bjóða, liðið skánaði strax við að fá Guðmund Stein fram. Guðmundur er í fínu formi og á að byrja alla leiki núna, við höfum ekki aðra framherja og að þessi Íri sé þarna frammi á hans kostnað er hreint glatað.
Ég er hér að setja spurningarmerki við val Gulla í liðið, mér finnst að hann hafi gert slæm mistök í gær í leikmannavali. Vörnin var með auðsjáanlega veikleika sem varð liðinu algerlega að falli í fyrsta markinu. Við spiluðum með framherja í engu formi og hvað þá að hann hafi verið maður í að spila einhverjar 65 mín. Ekki hjálpaði það liðinu að hefja þennan seinni hálfleik með framherja sem var ekki með í leiknum, akkurat þegar við hefðum þurft að reyna halda áfram að halda boltanum frammi. Fyrstu mistökin eru að velja hann í liðin og önnur eru að taka hann ekki útaf í hálfleik.
Ég hef enn trú á Gulla en mér finnst eins og reynsluleysi hans hafi komið í ljós í gær. Einnig er frekar súrt að sjá aðeins einn uppalinn Valsara í liðinu í gær á meðan að mér finnst að það hafi bersýnilega verið gengið framhjá tveim uppöldnum Völsurum í gær.
Það voru ekkert svo margir jákvæðir punktar í gær, en mér lýst vel á Jón Vilhelm sem ég held að geti þróast í hörku leikmann.
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 28.04.09 Bréf: 8 Staður: Reykjavík
|
Þetta er skrýtin deild. Valur er bara búið að tapa einum leik meira en 4 efstu og leikurinn í gær hefði alveg getað unnist í fyrri hálfleik en við nýttum ekki sjensana. Það breytir ekki því samt að lið á ekki að detta í sundur og mölbrotna trekk í trekk við að fá mark á sig.
En djöfull er þetta orðið þreytt að skíttapa fyrir KR á heimavelli ár eftir ár.
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 09.08.10 Bréf: 0
|
Þetta er bara djók! Þetta er ekki lið á vellinum heldur einhverjir einstaklingar og eru nokkrir að fá þarna fullmikið borgað miðað við getu. Valur verður bara að breyta um stefna. HÆTTA AÐ KAUPA LEIKMENN SEM GETA EKKI NEITT OG BYGGJA LIÐ Á UNGUM VALSMÖNNUM. Mér finnst karlalið Vals í fótbolta eins og A-landslið karla í fótboltanum... Eintómar stjörnur og einstaklingar sem nenna ekki að spila fótbolta.
Kjartan er ekki búinn að geta mikið í sumar, alveg ótrúlegt að hann skyldi vera A-markmaður og síðan er Haraldur Björnsson uppalinn Valsmaður hentur ekki einu sinni út úr byrjunarliði heldur hentur út úr félagsliðinu. Maðurinn er ungur og reynslulítill en hann er þvílíkt að standa sig með unglingalandsliðinu
Arnar Sveinn Geirsson er án efa einn efnilegasti leikmaður Valsmanna.... en vilja frekar hafa einhvern Skota sem veit varla hvar hann er staddur!
Ég er kannski dómharður valsari, en þetta er svo vitlaus stefna sem Valsarar eru að fara. Virkjum unglingastarfið, látum unga og uppalna valsstráka spreyta sig, ég vil miklu frekar horfa á unga stráka berjast um sæti í úrvalsdeild og berjast eins og ljón á vellinum í staðinn fyrir að horfa á einhverjar stjörnur sem nenna varla að vera þarna.
Ég er ekki að segja að þetta séu slæmir einstaklingar, þeir fúnkera bara ekki sem lið. Förum nú að breyta um stefnu og byggja mfl liðin í fótbolta, handbolta og körfubolta með ungum og sprækum valsiðkendum!
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 22.11.09 Bréf: 0
|
Siggi Cl er með svarið við spurningunni þinni. Viktor og hafþor voru aldrei inn i myndinni hja þjalfaranum og gulli bar ekkert traust til þeirra. t.d Viktor byrjaði einn leik i sumar (deild) og var tekinn utaf eftir 50 min. Sama með hafþor byrjaði mjög sjaldan og var oftast tekinn utaf. Nuna þegar að þessir leikmenn fa 90 min og finna traust fra þjalfara þa auðvitað blomstar þeir. Við viljum frekar treysta a utlendinga heldur en að nota þessa straka. KR leikurinn var algjör skandall og að sja þessa drengi gefast upp a eigin heimavelli og fyrir framan sina eigin ahorfendur er bara SKANDALL og finnst mer að leikmenn ættu að endurgreiða þeim ahorfendur sem borguðu sig inn a þennan helvitis leik.
|
|
Staða: Alvöru Valsari
Skráði sig: 20.10.08 Bréf: 73 Staður: Reykjavík
|
Finnst nú svolítið nauðsynlegt að taka upp hanskann fyrir Íranum. Hann er bara mjög góður á boltanum og komu nokkur hættuleg færi í gær upp úr því að hann fékk boltann í fætur og skilaði honum í fætur á samherja. Sást vel að leikmennirnir treysta honum fyrir boltanum og reyndu þeir oft að nota hann sem batta. Ekki slæmt að vera með þannig leikmann þegar að þú ert með 2 eldsnögga kanta.
ÁFRAM VALUR !!
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 23.10.08 Bréf: 27 Staður: 101
|
Hann á það að hann er ágætur á boltann og spilar honum ágætlega. En staðreyndin var bara sú að hann kom sér alltof sjaldan í þær stöður að geta fengið boltann í lappirnar til að spila honum og var það sennilega vegna þess að hann er í engu formi til þess að koma með einhvern hreyfanleika. Auk þess er hann aldrei líklegur til að skora sem striker á að gera. Valur á ekki að vera staður á miðju tímabili fyrir útlendinga að koma sér í leikform.
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 11.05.10 Bréf: 1 Staður: reykjavik
|
Írinn er fínn. Vantar leikform. tel samt að hann sé frekar 442 striker svona afturliggjandi með einn stórann og sterkan með sér eða einn mjög snöggan sem hann getur lagt upp á. Verð að viðurkenna að ég er ekkert sérstaklega ánægður með þessa ungu stráka sem eru að koma upp hjá okkur vissulega efnilegir en mér finnst vannta baráttu í þá....
svo spyr ég hvernig er staðan á 2 flokk hjá okkur eru einhverjir svo svakalega góðir til að spila á... Hvar stendur 2 flokkur? Í hvaða deild eða styrkleika flokki? og þá hverjir eru þar sem geta mögulega sýnt eitthvað?
Væri ágætt ef einhver góðhjartaður gæti frætt mig á þessu finn það ekki neinstaðar.
berjast Valur Berjast
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 19.05.09 Bréf: 4
|
jhv skrifaði: svo spyr ég hvernig er staðan á 2 flokk hjá okkur eru einhverjir svo svakalega góðir til að spila á... Hvar stendur 2 flokkur? Í hvaða deild eða styrkleika flokki? og þá hverjir eru þar sem geta mögulega sýnt eitthvað?
Væri ágætt ef einhver góðhjartaður gæti frætt mig á þessu finn það ekki neinstaðar.
Spurning um að leita hjá knattspyrnusambandinu sem jú heldur þessi mót! :) http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=20903
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 11.05.10 Bréf: 1 Staður: reykjavik
|
Takk fyrir þetta bjössi. var búinn að reyna finna þetta á ksí vefnum fann ekki neytt.
Samkvæmt þessu hefur 2 flokk. leikið 12 leiki unnið 5 gert 1 jafntefli og tapað 6. skorað 19 mörk og fengið á sig 19.
Þegar tafla markahæðstu manna er skoðuð er enginn Valsari á henni og fer hún í leikmenn sem haf skorað 4 mörk eða fleiri. það segir okkur að ekki er að finna "Killer" striker í 2. flokki einnig sýnir þessi tafla okkur að einungis Stjarnan hefur skorað færri mörk en við og er hún í neðsta sæti. (skorað 15 mörk)
Ég held að menn séu nokkuð sammála um að okkur vantar striker einhvern sem skorar mörk að staðaldri fyrir okkur. sama tafla sýnir hins vegar (og það verður líka að hrósa) að vörnin okkar þar er að skila sér vel. einungis KR og FH sem eru fyrir ofan okkur eru að fá færri mörk á sig. spurningin er hins vegar hvort þeir strákar sem eru að spila í 2 flokki séu nógu líkamlega sterkir fyrir úrvalsdeildina?
Einni spurningu er þó ósvarað getur einhver frætt mig á því hvort að það séu leikmenn í 2. flokk sem vert er að taka eftir og þá hverjir eru kostir þeirra? Endilega fræða mig á því strákar í 2. flokki sem eru að lesa þetta. þessi pæling er ekki sett fram til að særa neinn eða gera lítið úr þeim strákum sem leika þar.
með vals kveðju
jónas
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 28.10.08 Bréf: 1 Staður: Reykjavík
|
Fín og þörf umræða. Held það sé tvennt sem við Valsarar þurfum að spyrja okkur að. Annað atriðið snýr að punkti sem kom hér að framan og lítur að því hversvegna Habbó og Viktor Unnar séu að spila eins og kóngar þegar þeir fara frá Val. Ég vil einnig minna menn á að einn besti leikmaður deildarinnar í sumar, vann sig inn í landsliðið, Ólafur Páll Snorrason, var leikmaður Vals ekki fyrir löngu síðar. Þá var hann arfa slakur en hefur heldur betur fundið sig. Hvers vegna?
Gulli setti sér einnig markmið fyrir sumarið, eins og margir aðrir. Það markmið er eitthvað það undarlegasta sem ég hef reyndar heyrt. Að skapa sterka liðsheild í sumar. Miðað við frammistöðuna í gær langar mig að spyrja hvort menn hafi á tilfinningunni að þessu markmiði hafi hann náð með þennan hóp?
Hvað gera menn sem ná ekki markmiði sínu?
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 10.03.09 Bréf: 1 Staður: Reykjavík
|
Ég held að þegar allt kemur til alls þá snúist þetta um hugarfarið sem ríkir hjá stjórn félagsins sem virðist ennþá vera að hægt sé að kaupa árangur. Þegar yfirlýst stefna hjá félaginu er að byggja upp lið og liðsheild þá hleypur maður ekki til 10 mínútum fyrir mót og lánar efnilega uppalda leikmenn og kaupir leikmenn sem fá að hafa klásúlu í samningum um að þeir megi yfirgefa félagið á miðju tímabili. Maður þarf ekki að vera langskólagenginn til að sjá það í hendi sér að það er ekki rétta leiðin til að byggja upp lið til framtíðar.
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 25.08.10 Bréf: 0
|
Borko skrifaði:Ég held að þegar allt kemur til alls þá snúist þetta um hugarfarið sem ríkir hjá stjórn félagsins sem virðist ennþá vera að hægt sé að kaupa árangur. Þegar yfirlýst stefna hjá félaginu er að byggja upp lið og liðsheild þá hleypur maður ekki til 10 mínútum fyrir mót og lánar efnilega uppalda leikmenn og kaupir leikmenn sem fá að hafa klásúlu í samningum um að þeir megi yfirgefa félagið á miðju tímabili. Maður þarf ekki að vera langskólagenginn til að sjá það í hendi sér að það er ekki rétta leiðin til að byggja upp lið til framtíðar. Hvernig væri nú að kynna sér málin Borko: Ef skoðuð er leiksýrsla frá síðasta leik kemur í ljós að 5 leikmenn eru úr 2.flokk félagsins + 2 nýkomnir úr 2.flokk (Einar og G.Steini). Ég renndi í gegnum skýrslur frá öðrum leikjum/liðum og við erum bara með mjög hátt hlutfall af strákum sem eru gjaldgengir í 2.flokk í hóp hjá okkur. p.s stjórn ákveður ekki hvern skuli lána og hvern ekki það hlýtur að vera þjálfarinn sem að auki hlýtur að leggja fram óskir um hvaða leikmenn hann vilji sjá koma og fara.................... Valur KR Byrjunarlið 1 Kjartan Sturluson (M) 2 Stefán Jóhann Eggertsson 3 Martin Meldgaard Pedersen 5 Atli Sveinn Þórarinsson (F) 14 Jón Vilhelm Ákason fæddur ´86 15 Rúnar Már S Sigurjónsson fæddur ´90 18 Arnar Sveinn Geirsson fæddur´91 - gjaldgengur í 2.flokk 19 Diarmuid O'Carroll 20 Ian David Jeffs 21 Haukur Páll Sigurðsson fæddur ´87 27 Þórir Guðjónsson fæddur ´91 - gjaldgengur í 2.flokk Varamenn 10 Baldur Ingimar Aðalsteinsson 11 Matthías Guðmundsson 12 Einar Marteinsson 17 Guðmundur Steinn Hafsteinsson 22 Ásgeir Þór Magnússon (M) er í 2.flokk 26 Magnús Örn Þórsson er í 2.flokk 30 Fannar Örn Kolbeinsson er í 2.flokk
|
|
 Staða: Meðlimur
Skráði sig: 17.10.08 Bréf: 15
|
Ég hef nú gagnrýnt stjórnina hér á spjallinu, en nú ætla ég aðeins að koma þeim til varnar og velta fyrir mér hvers vegna við erum með útlendinga í liðinu (svo getur verið að ég hafi kolrangt fyrir mér).
Ég held að þeir sem stjórna séu að horfa til Breiðabliks um hvernig ungir strákar koma inn og blómstra. Þeir eru í toppbaráttu í sumar og með eitt besta fótboltalið landsins, mikið til byggt á ungum strákum. Í ár er enginn útlendingur í hópnum þeirra.
En þetta hefur ekki alltaf verið svona. 2007 og 2008 voru 5 útlendingar í hópnum þeirra og þeir spiluðu allir í byrjunarliði að staðaldri. Árið 2009 var 1 útlendingur í hópnum (kom til liðsins í maí og spilaði bara 3 leiki) og eins og áður sagði, enginn í ár.
Að jafnaði eru 18-19 ára strákar ekki tilbúnir í að spila 24 leiki í efstu deild á Íslandi. Það eru þó undantekningar á þessu, en heilt yfir, þá er mjög erfitt að stíga skrefið úr 2. flokki upp í meistaraflokk á þessum aldri og ég held að útlendingarnir séu hérna til að styrkja og styðja ungu strákana þangað til þeir eru tilbúnir í slaginn heilt tímabil. Þeir verði svo færri og færri eftir því sem ungu strákarnir styrkjast og verða betri.
Ef við værum með lið af tómum guttum yngri en 21, þá yrði nú árangurinn ekki til að hrópa húrra fyrir held ég ...
Lítum á Arnar Svein. Hann byrjaði mjög sterkt, skoraði mörk og var algjört sensation í byrjun, en dalaði svö töluvert. Liðin lærðu inn á hann, byrjuðu að dekka hann betur og gefa honum minna pláss. Hann þurfti að aðlagast þessu og hefur allur verið að koma til undanfarið. Það eru ekki margir strákar á þessum aldri sem myndu þola svona álag, en hann hefur staðið undir því og þeim væntingum sem við áhorfendur vorum farnir að gera til hans. Við megum ekki gleyma því að hann er bara 19 ára gamall og það er mjög erfitt að halda stöðugleika í leik sínum á þessum aldri.
Ég styð það hins vegar að gefa strákum tækifæri, og væri meira en til í að sjá Einar spila meira í miðverði og færa Pedersen út í bakvörinn og Guðmund Stein byrja fleiri leiki. Tóti á kantinum er líka spennandi leikmaður sem gaman verður að fylgjast með.
Að byggja upp lið með leikmenn á þessum aldri er þolinmæðisverk og ég held við ættum að gefa Gulla það space og sjá hvað úr verður. Við eigum efnilega leikmenn og ef rétt er haldið á málum, gætum við verið í sömu stöðu og Breiðablik eftir 1-2 ár.
|
|
Staða: Alvöru Valsari
Skráði sig: 20.10.08 Bréf: 73 Staður: Reykjavík
|
Kristján Hauksson var náttúrulega seldur og Reynir Leósson keyptur og var það víst bara fyrir tilstilli stjórnar án samráðs við þjálfara. Eftir því sem ég hef heyrt þ.e.a.s.
Ég held að það sem fari mest í taugarnar á mönnum er stéttarskiptingin innan Vals. Það hefur oft virkað þannig að hinn almenni Valsari séi bara helst ekkert velkominn inn á svæðið. Það hefur þó batnað mikið síðustu 2 árin og er stöðugt að batna. Ég held að það myndi leysa mikið ef stjórn knattspyrnudeildar myndu opna starf sitt að ákveðnu leiti og færa hópinn þéttar saman að því leiti. Gætu til að mynda haldið "opinn stjórnarfund" nokkrum sinnum yfir Íslandsmótið þar sem að menn hefðu tækifæri á að skyggnast inn í það sem stjórn Knattspyrnudeildar tekst við og bera fram spurningar.
Boðað var til fundar við stuðningsmenn í fjósinu fyrir kr-leikinn sem varð ekkert af en það var að virðist vegna mistaka en ekki vanrækslu að neinu leiti. Vonandi að það verði á skemmtilegri tíma sem fyrst.
Annað sem fer í taugarnar á mönnum eru hvernig fjármunir félagsins hafi verið meðhöndlaðir. Menn hafa margar og misjafnar skoðanir en sú sem hefur verið algengust að mínu mati er hversu miklum peningum hefur verið sólundað í ekkert. Valur hefur á undanförnum árum yfirboðið önnur lið þegar að samið hefur verið við leikmenn og var heldur engin breyting þar á í nafni "uppbyggingar". Valstékkinn hefur verið hvað feitastur á markaðnum og skyggt á hina tékkana þegar að leikmenn ætla að ákveða sig. (Annað sem trekkir líka er fyrirmyndar aðstaða og sjúkraþjálfari sem virðist geta gert múmíu leikhæfa.) Þarna hafa misjafnir leikmenn komið enda verða menn að hugsa meira um peningahliðina komnir yfir þrítugt. Þetta hefur gefið Knattspyrnufélaginu Val leiðinlegt orð sem annars er félag byggt af heiðursmönnum miklum. Var skondið að heyra sögur af Sr. Friðrik Friðrikssyni í kirkju um daginn þegar að talað var um hvernig hann sóttist aldrei eftir veraldlegum eignum og átti sjaldnast pening eða þak yfir höfuðið. Maður brosti nú svolítið út í annað þegar að maður hugsaði út í öll þau laun sem greidd hafa verið til leikmanna sem voru með öllu óþarfir og fáir skildu hvers vegna var samið við.
Stjórn Knattspyrnufélagsins hefur samt leitt margt gott af sér til uppbyggingar á Hlíðarenda. Búið er að stækka afreksstarf Knattspyrnudeildar til muna og auka þjónustu við unga og efnilega leikmenn. Kom það og fleira fram á aðalfundi félagsins fyrri hluta árs 2010.
Þetta er sjálfu sér allt gott og gilt en það verður samt alltaf þannig að menn þurfa að svara fyrir mistök. Bíð allavega spenntur eftir að nýr fundur með stjórninni verði boðaður.
ÁFRAM VALUR !!
|
|
 Staða: Meðlimur
Skráði sig: 17.10.08 Bréf: 15
|
Ási Sveinss skrifaði:Ég held að það sem fari mest í taugarnar á mönnum er stéttarskiptingin innan Vals. Það hefur oft virkað þannig að hinn almenni Valsari séi bara helst ekkert velkominn inn á svæðið. Það hefur þó batnað mikið síðustu 2 árin og er stöðugt að batna. Ég held að það myndi leysa mikið ef stjórn knattspyrnudeildar myndu opna starf sitt að ákveðnu leiti og færa hópinn þéttar saman að því leiti. Ég er sammála þessu, starfið þarf að opna miklu, miklu meira. Hvernig væri t.d. að birta ársskýrslur allra deilda og félagsins í heild á heimasíðunni, þá er hægt að sjá í hvað peningarnir eru að fara. Þetta er jú félagið okkar, félagið samanstendur af borgandi meðlimum sem eiga rétt á að fá upplýsingar um það sem gerist í sínu eigin félagi. Ási Sveinss skrifaði:Stjórn Knattspyrnufélagsins hefur samt leitt margt gott af sér til uppbyggingar á Hlíðarenda. Búið er að stækka afreksstarf Knattspyrnudeildar til muna og auka þjónustu við unga og efnilega leikmenn. Kom það og fleira fram á aðalfundi félagsins fyrri hluta árs 2010. Þetta líst mér vel á og styrkir þær hugleiðingar sem ég setti fram hér að ofan varðandi ungu leikmennina ...
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 11.05.10 Bréf: 1 Staður: reykjavik
|
vissulega hefur margt gott verið gert hjá okkur undanfarin ár. Eitt sem menn verða að hafa hugfast þegar talið kemur að uppbyggingu liðs þá tekur það mörg ár. Bæði Blikar og FH til að mynda voru að fara upp og niður um deildir á meðan þeir voru að byggja upp. Persónulega held ég að við þurfum að horfa svolítið til FH-inga sem hafa verið duglegir við að leita uppi unga og efnilega leikmenn útum allt land. Við höfum ekki þann fjölda sem Blikar hafa haft úr að moða sem tileinkast bara af stærð hverfanna sem tilheyra okkur. annað sem skiptir einnig miklu máli er að sá þjálfari sem er með 2 flokkinn berji ákveðna hugsun eða vinnulag hjá þessum strákkum. veit það að Pétur Péturs hefur víst verið snillingur að slá úr strákum hroka og stæla og láta þá vita að þeir eigi ekkert skilið. (þið vitið hvernig ungir og efnilegir drengir láta stundum og svo með mis-þægilega foreldra á eftir sér að passa drenginn)
|
|
|
Guest |