Knattspyrnufélagið Valur

Velkominn, gestur Leita | Mest lesið | Notendur | Innskráning | Nýskráning

Formaður knd. Spurt & Svarað Valkostir
borkur
Skráð: 25. August 2010 18:27
Staða: Nýliði

Skráði sig: 25.08.09
Bréf: -1
Sælir allir,

Ljóst er að sumarið hefur verið erfitt hjá meistaraflokki karla og spurningar/vangaveltur hafa verið að koma t.d hér fram um hitt og þetta sem snýr að knattspyrnu karla hjá Val. Það er mér bæði ljúft og skylt að svara spurningum hér á þessum spjalþræði. Endilega komið með spurningar og ég mun gera mitt besta til að svara þeim.

Valskveðja,
Börkur

p.s ég mun setjast niður síðar í kvöld og svara en endilega byrjið að setja inn spurningar og/eða vangaveltur.
Gisliólafs
Skráð: 25. August 2010 18:30
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 02.03.09
Bréf: 7
Staður: Reykjavík
Hvernig kom það til að Viktor Unnar fékk að fara þegar Köning var með klásúluna sem reyndi svo á í samninginum sínum? Ætluðu menn bara að vona það besta um að Köning fengi engin tilboð?
Audunn
Skráð: 25. August 2010 19:12
Staða: Nýliði

Skráði sig: 03.08.10
Bréf: 0
Staður: Rvk
Af hverju er ekki lagt meiri áhersla á að rækta upp eigin leikmenn heldur en að fá leikmenn frá öðrum félögum?
valur2004
Skráð: 25. August 2010 19:49
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 06.11.08
Bréf: 6
Er verið að skipta um þjálfara?
Frakkinn
Skráð: 25. August 2010 19:50
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 17.10.08
Bréf: 8
Staður: Milly la Foret, Frakkland
þróttir | mbl.is | 25.8.2010 | 19:28

Þjálfaraskipti hjá Val?

Fram kom í fréttum Sjónvarpsins, að áhugi er á því innan knattspyrnudeildar Vals að fá Guðjón Þórðarson, fyrrverandi landsliðsþjálfara, til að taka við úrvalsdeildarliði Vals. Þá sagði Sjónvarpið að Gunnlaugi Jónssyni, núverandi þjálfara, hafi verið boðið að hætta nú þegar.

Valur er í 8. sæti í Pepsi-deildinni en liðið tapaði síðasta leik sínum 4:1 fyrir KR.



Ef það er eitthvað til í þessari frétt þá er kominn tími fyrir stjórn knd Vals að láta sig hverfa!!


Valskveðja

Frakkinn
brelog
Skráð: 25. August 2010 20:02
Staða: Nýliði

Skráði sig: 28.10.08
Bréf: 1
Staður: Reykjavík
Flott Börkur.

Umræða á svona spjallvefjum verður oft svolítið skrýtin. Menn gagnrýna, létta á sér og segja kannski hluti sem þeir hefðu betur sleppt.

Vona því að þessi þráður verði málefnanlegur.

Í fyrsta lagi langar mig að vita hvort eitthvað sé til í því að Guðjón Þórðarson sé að taka við Valsliðinu.

Spurning mín varðandi það er því þríþætt.
1. Hefur stjórn knd Vals rætt við Gunnlaug Jónsson um að hann hætti störfum.
2. Ef svo er, hefur Gunnlaugur gefið ykkur svar.
3. Hefur verið rætt við Guðjón Þórðarson um að taka við liðinu/ eða einhvern annan, hvern þá?

Í öðru lagi væri gaman að heyra frá þér hvaða væntingar stjórn knd Vals gerði til liðsins í sumar, og hvort árangurinn sé eftir því?

Og ein í lokin. Hvernig upplifir stjórnin stemmninguna í hópnum?

með Valskveðju,
Breki
Rumsfeld
Skráð: 25. August 2010 20:12
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 28.10.08
Bréf: 31
Staður: Kópavogur
Ég trúi því ekki að það hafi verið markmið að Valur myndi ná 8.sæti í deildinni -

Stjórnin þarf að svara þessu með þjálfaramálin STRAX -

Áfram Valur
TonyK
Skráð: 25. August 2010 20:31
Staða: Nýliði

Skráði sig: 18.10.08
Bréf: -1
Staður: 105 RVK
Ég verð nú að viðurkenna að ég er ennþá hálf ringlaður yfir þessum fréttum hjá RÚV.

Getur það virkilega verið að stjórn knattspyrnudeildar ætli virkilega að íhuga það að reka Gunnlaug til að koma Gaua Þórðar að?

Getur það virkilega verið að stjórn knattspyrnudeildar ætli virkilega að ráða mann sem hefur engum árangri náð siðan hann hætti hjá Stoke (N.B. fyir 8 árum!)?.

Getur það virkilega verið að stjórn knattspyrnudeildar ætli virkilega að ráða mann sem á alltaf í einhverjum illdeilum við alla í kringum sig?

Getur það virkilega verið að stjórn knattspyrnudeildar ætli virkilega að enga ábyrgð taka á ruglinu í kringum meistaraflokk karla í knattspyrnu?
King
Skráð: 25. August 2010 20:40
Staða: Nýliði

Skráði sig: 26.05.09
Bréf: 0
Sæll Börkur

Fyrst vil ég segja við valsmenn að vera kurteisir við menn sem vilja starfa "frítt" fyrir Val. Þetta er sami formaður og tók þátt í endurreisn Vals sem endaði loks með langþráðum titli sem við höfðum ekki séð í 30 ár......

Nú er hætta á því að Valur sogist í sama farið og á árunum 1993-2003 þar sem við soguðumst í miðja deild síðan fall með þeirri niðurlægingu sem því fylgdi

Ég tel að miðað við núverandi ástand þarf klúbburinn á miklum leiðtoga að halda. Í dag er hann hvorki innan vallar né utan svipað ástand og var áður en Willum kom

Eina svarið sem ég sé er Guðjón bæði er þetta rétti tíminn fyrir hann og fyrir klúbbinn.Ég veit að menn verða að spyrja sig treysta menn að vinna með honum ég veit ef einhver formaður getur það þá er það Börkur

Spurningar

1. Hvað telur þú að þurfi til að varna því að sagan endurtaki sig ekki að valur sogist í einhverja meðalmennsku með falldrauginn hangandi yfir sér ár eftir ár

2.Ertu sammála mér í því að þessi hópur sé mjög sterkur og ef já hvað teljiði valda þessu hryllilega andleysi eins og sást á mánudag

3. 95% stúkunnar hefði aldrei sætt sig við að tapa fyrir KR og hvað þá svo stórt og sína ekki vígtennurnar spjald eða eitthvað...95% leikmanna virtist vera nákvæmlega sama.......kannski fáranleg spurning en er ekki hægt dæma á þessum leik ef leikmenn skilja ekki mikilvægi leikja Vals og KR fyrir klúbbinn þá er eitthvað sem ekki er í lagi?


Takk fyrir þetta framtak
Valur1911
Skráð: 25. August 2010 20:49
Staða: Nýliði

Skráði sig: 25.08.10
Bréf: 0
Staður: Reykjavík
Valsmenn nær og fjær!!!

Kynning á Gunnlaugi fyrir tæpu ári síðan sem þjálfara Vals var gerð með pompi og prakt - mikið talað um að nú ætti að byggja til framtíðar, setja upp samræmda þjálfun í gegnum yngri flokkana þar sem James Bett átti að spila lykilhlutverk. Er þessi fallega framtíðarsýn nú brostin á innan við 11 mánuðum? Er stjórn knattspyrnudeildar ekki heldur óþolinmóð - Gunnlaugur er klárlega efnilegur þjálfari sem að mínu mati við eigum að gefa tíma, nema Börkur geti upplýst okkur um eitthvað sem hefur farið úrskeiðis.

Mitt mat er að liðið er ekkert betra en staða þess í deildinni gefur til kynna - fremur hæg vörn, enginn alvöru sóknarmaður þó að Arnar Sveinn hafi sýnt góð tilþrif á kantinum en miðjan hefur verið okkar sterkasti hluti með Hauk Pál sem hinn nýja Bjössa.

Hugmyndin, var að ég held, að byggja upp nýtt lið byggt á heimamönnum eins og hægt væri. Stundum þarf að fórna tímabilum í uppbyggingarstarf og mér finnst þessu tækifæri hafa verið sóað að nokkru leyti. Haraldur markvörður, Einar varnarmaður, Steini, Þórður og Arnar Sveinn eru þeir sem ég hafði gert ráð fyrir að sjá í hverjum leik tímabilsins en það hefur ekki gengið eftir.

Þetta eru meira hugleiðingar en spurningar en gaman væri að sjá Börk koma með sýn stjórnarinnar á þetta.

Áfram Valur.
brelog
Skráð: 25. August 2010 21:03
Staða: Nýliði

Skráði sig: 28.10.08
Bréf: 1
Staður: Reykjavík
Er stjórn knd kunnugt um að einhver utan hennar, góður og gildur Valsmaður, hafi rætt við Guðjón Þórðar um áhuga hans á starfinu?

Með öðrum orðum, fékk stjórninn einhvern valsmann sem ekki situr í stjórn til þess að ræða við G-man?
Heiða í Dal
Skráð: 25. August 2010 21:15

Staða: Meðlimur

Skráði sig: 13.10.09
Bréf: 28
Staður: Reykjavík
Stjórn knattspyrnudeildarinnar hefur borið til baka frétt RÚV um að Gunnlaugur sé að fara og Gaui að koma. Reyndar orðalagið þannig að þetta sé svona akkúrat núna, ekki beint vote of confidence á ferðinni.

Spurningar í svona opnum þræði (n.b. gott framtak hjá Berki) ættu því í bili að snúast um annað.

1 - Hver innan félagsins hefur lokavald í leikmannamálum, þjálfari, stjórn eða aðrir?
2 - Hver er stefnan fyrir næsta tímabil í samningamálum þeirra sem eru með lausa samninga/gætu hugsað sér að leita á aðrar slóðir?
3 - Hefur verið samið við einhverja leikmenn eða er það í pípunum (gæti að sjálfsögðu verið viðkvæmar upplýsingar)?
4 - Er stefnan að fá handfylli af erlendum leikmönnum til liðs við félagið eins og undanfarin ár, með afar misjöfnum árangri?

Basically - hvernig sér stjórn knattspyrnudeildarinnar stóru myndina á næstu misserum? Hvert er stefnt og hvernig?
borkur
Skráð: 25. August 2010 21:21
Staða: Nýliði

Skráði sig: 25.08.09
Bréf: -1
Gisliólafs skrifaði:
Hvernig kom það til að Viktor Unnar fékk að fara þegar Köning var með klásúluna sem reyndi svo á í samninginum sínum? Ætluðu menn bara að vona það besta um að Köning fengi engin tilboð?


Sæll Gísli, í stuttu máli þá vildi Viktor ekki framlengja sinn samning við Val sem var að renna út að loknu þessu tímabili að auki var hann búinn að fara fram á að fara, þjálfarinn gaf grænt ljós á hann væri, Selfoss gerði okkur tilboð og því var tekið.
borkur
Skráð: 25. August 2010 21:23
Staða: Nýliði

Skráði sig: 25.08.09
Bréf: -1
Audunn skrifaði:
Af hverju er ekki lagt meiri áhersla á að rækta upp eigin leikmenn heldur en að fá leikmenn frá öðrum félögum?


Sæll Auðunn,

Þetta er bæði fullyrðing og spurning sem þú leggur hér fram, Valur leggur áherslu að ala upp leikmenn í öllum deildum og leggur mikla fjármuni í það verkefni og metnað.
borkur
Skráð: 25. August 2010 21:24
Staða: Nýliði

Skráði sig: 25.08.09
Bréf: -1
valur2004 skrifaði:
Er verið að skipta um þjálfara?


Sjá yfirlýsingu á valur.is.
borkur
Skráð: 25. August 2010 21:30
Staða: Nýliði

Skráði sig: 25.08.09
Bréf: -1
Sæll Breki,

Svar mitt birtist á milli spurn.


brelog skrifaði:
Flott Börkur.

Umræða á svona spjallvefjum verður oft svolítið skrýtin. Menn gagnrýna, létta á sér og segja kannski hluti sem þeir hefðu betur sleppt.

Já já svo framarlega að umræðan sé ekki meiðandi þá sleppur þetta.

Vona því að þessi þráður verði málefnanlegur.

Í fyrsta lagi langar mig að vita hvort eitthvað sé til í því að Guðjón Þórðarson sé að taka við Valsliðinu.

Sjá yfirlýsingu.


Spurning mín varðandi það er því þríþætt.
1. Hefur stjórn knd Vals rætt við Gunnlaug Jónsson um að hann hætti störfum.
2. Ef svo er, hefur Gunnlaugur gefið ykkur svar.
3. Hefur verið rætt við Guðjón Þórðarson um að taka við liðinu/ eða einhvern annan, hvern þá?

Í öðru lagi væri gaman að heyra frá þér hvaða væntingar stjórn knd Vals gerði til liðsins í sumar, og hvort árangurinn sé eftir því?

Einhversstaðar kom fram í viðtali við mig að ég gerði mér vonir um og trúði að Valur gæti verið við toppinn þetta árið og tryggt sér evrópusæti, ég minni á það er en tækifæri til þess.

Og ein í lokin. Hvernig upplifir stjórnin stemmninguna í hópnum?

Stemmniginn er fín hjá leikmönnum og þeim sem að liðinu standa, ég hinsvegar hefði viljað sjá meiri stuðning og meiri gleði hjá okkur sem erum fyrir utan völlinn og að við séum að fylla hina glæsilegu stúku okkar á Vodafonevellinum á hverju einasta heimaleik.

með Valskveðju,
Breki
Borko
Skráð: 25. August 2010 21:31
Staða: Nýliði

Skráði sig: 10.03.09
Bréf: 1
Staður: Reykjavík
Hvernig fellir stjórn knattspyrnudeildar kaup á erlendum leikmönnum með æði misjafna samninga og lán á uppöldum leikmönnum að uppbyggingarstefnunni sem boðuð var síðasta haust?
Hvernig hyggst stjórn knattspyrnudeildar axla ábyrgð á slælegu gengi liðsins síðastliðin 3 sumur?
Hvaðan kemur þessi Íri?
borkur
Skráð: 25. August 2010 21:41
Staða: Nýliði

Skráði sig: 25.08.09
Bréf: -1
Sæll King,

Ég hef sama háttinn á hér þ.e svara þér á milli spurn.

King skrifaði:
Sæll Börkur

Fyrst vil ég segja við valsmenn að vera kurteisir við menn sem vilja starfa "frítt" fyrir Val. Þetta er sami formaður og tók þátt í endurreisn Vals sem endaði loks með langþráðum titli sem við höfðum ekki séð í 30 ár......

Nú er hætta á því að Valur sogist í sama farið og á árunum 1993-2003 þar sem við soguðumst í miðja deild síðan fall með þeirri niðurlægingu sem því fylgdi

Ég tel að miðað við núverandi ástand þarf klúbburinn á miklum leiðtoga að halda. Í dag er hann hvorki innan vallar né utan svipað ástand og var áður en Willum kom

Eina svarið sem ég sé er Guðjón bæði er þetta rétti tíminn fyrir hann og fyrir klúbbinn.Ég veit að menn verða að spyrja sig treysta menn að vinna með honum ég veit ef einhver formaður getur það þá er það Börkur

Spurningar

1. Hvað telur þú að þurfi til að varna því að sagan endurtaki sig ekki að valur sogist í einhverja meðalmennsku með falldrauginn hangandi yfir sér ár eftir ár

Þetta er góð spurning og ég hef velt henni ótal sinnum fyrir mér. Það er sjálfsagt ekkert eitt svar til við henni en það má nefna mál eins og: Stuðning við liðið og stuðning við þá sem eru að starfa af heilindum fyrir klúbbinn og trúa því í einlægni að þeir séu að gera rétt. Það má ekki gleymast að það er um 25-30% aukning iðkenda hjá yngri flokkum í fótbolta og mikilvægt er að hlúa vel að ungviðinu ásamt því að viðhalda þeim metnaði og krafti sem hefur einkennt starf knd amk síðan 2004. Það hefur oft borið við í okkar ágæta klúbbi hvað menn gefast fljótt upp og byrja að rífa niður og gagnrýna með neikvæðum formerkjum það starf sem unnið er og jafnvel ganga svo langt að persónugera hlutina uppá sjálfboðaliða til að þeir hrökklist frá störfum, ef við náum þeim þroska að geta starfað saman í blíðu jafnt sem stríðu þá kvíði ég ekki fyrir framtíð Vals.

2.Ertu sammála mér í því að þessi hópur sé mjög sterkur og ef já hvað teljiði valda þessu hryllilega andleysi eins og sást á mánudag 95% stúkunnar hefði aldrei sætt sig við að tapa fyrir KR og hvað þá svo stórt og sína ekki vígtennurnar spjald eða eitthvað...95% leikmanna virtist vera nákvæmlega sama.......kannski fáranleg spurning en er ekki hægt dæma á þessum leik ef leikmenn skilja ekki mikilvægi leikja Vals og KR fyrir klúbbinn þá er eitthvað sem ekki er í lagi?

Jú ég var ekki sáttur við leik okkar manna amk ekki síðari hálfleikinn, en ég veit að leikmenn voru það ekkert heldur og ekki má gleyma því að allir leikmenn mæta til leiks með það að leiðarljósi að sigra.
Takk fyrir þetta framtak
Pétur Óli
Skráð: 25. August 2010 21:43
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 29.05.09
Bréf: 6
Staður: Rvk
Sæll Börkur og takk fyrir innlitið.

Mig langar að rifja upp að vera okkar í efstu deild, eftir að við komumst síðast upp hefur verið gloppótt.

Fyrri hlutinn var ásættanlegur tvisvar annað sætið og svo titillinn. Seinni hlutinn er hreinlega ekki nógu góður. Á síðustu þremur árum þá höfum við fengið 1,34 stig í leik, við höfum skorað 1,66 mark og fengið 1,66 mörk á okkur. Að meðaltali má segja að við höfum lent í 7. sæti.

Að fá 1,34 stig í leik er alveg glatað. Það þarf ekkert að ræða það mikið frekar. Þrjú árin þarna á undan fengum við 1,85 stig í leik.

Mikil starfsmannavelta hefur ekki verið talin heppileg og það sama á við um boltann. Ég er langt frá því hrifinn að skipta alltaf um þjálfara, og er það fínt mál ef frétt kvöldsins er bara kjaftasaga. Ég taldi Gunnlaug reynslulausan fyrir klúbb eins og Val, en víst hann vara valinn þá verðum við að standa og falla með honum.

En hefur veltuhraði leikmanna Vals ekki verið of mikill? Börkur er hann meiri en hjá öðrum félögum? Hver er þín tilfinning fyrir því hjá leikmönnum (almennt séð) að spila fyrir Val? Líta menn á það sem jákvætt fyrir sinn feril, eða eru það bara peningarnir sem tala?

Nú er fer að líða að því að okkar helsti Valsari kemst á aldur. Sérðu einhvern í liðinu geta tekið hans stöðu? Þá á ég við félagslega séð? Þurfum við ekki fleiri svona menn í okkar lið?

Ég vona að stjórnin sýni þolinmæði og kjark til að gefa gulla tækifæri til að sanna sig.
Keano
Skráð: 25. August 2010 21:44

Staða: Meðlimur

Skráði sig: 17.10.08
Bréf: 40
Staður: Ipswich
Þið í stjórninni tókuð mikla áhættu þegar þið réðuð Gunnlaug Jónsson sem var með eins árs reynslu sem þjálfari. Ég verð að segja að mér finnst Gunnlaugur hafa ráðið illa við verkefnið sem var kannski full viðamikið fyrir reynslulausan mann. Ég geri mér grein fyrir að þetta er alltaf ákveðið happdrætti þegar kemur að þjálfara ráðningum og leikmannakaupum. Endar samt ekki ábyrgðin alltaf hjá ykkur sem tókuð þá áhættu að ráða Gunnlaug?


Nú eru nánast allir helstu styrtkaraðilar félagsins gengir úr skaftinu eftir góðæris tímabilið. Willum Þór kom ansi vel út í síðasta tekjublaði Frjálsrar Verslunnar en samkvæmt þessari frétt var þetta ansi skotheldur samningur að hans hálfu. Ofan á það má telja upp marga hátt skrifaða knattspyrnumenn sem litlu hafa skilað til baka á síðustu tímabilum.
Því spyr ég;
Fara sjóðir félagsins ekki að verða þurrausnir eftir öll fjárútlátin sem litlu hafa skilað?

Höfum við efni á að styrkja hópinn að einhverju ráði fyrir 100 ára afmæli Vals á næsta ári?

kv
Tryggvi
borkur
Skráð: 25. August 2010 21:49
Staða: Nýliði

Skráði sig: 25.08.09
Bréf: -1
Sælir,


Heiða í Dal skrifaði:
Stjórn knattspyrnudeildarinnar hefur borið til baka frétt RÚV um að Gunnlaugur sé að fara og Gaui að koma. Reyndar orðalagið þannig að þetta sé svona akkúrat núna, ekki beint vote of confidence á ferðinni.

Spurningar í svona opnum þræði (n.b. gott framtak hjá Berki) ættu því í bili að snúast um annað.

1 - Hver innan félagsins hefur lokavald í leikmannamálum, þjálfari, stjórn eða aðrir?

Þjálfari hefur fyrsta og síðasta orð í þeim málum svo framarlega að það sé innan fjárhagsramma.

2 - Hver er stefnan fyrir næsta tímabil í samningamálum þeirra sem eru með lausa samninga/gætu hugsað sér að leita á aðrar slóðir?

Við erum ekki byrjaðir að skoða þau mál, eiblínum á að klára þetta tímabil með sæmd.

3 - Hefur verið samið við einhverja leikmenn eða er það í pípunum (gæti að sjálfsögðu verið viðkvæmar upplýsingar)?

nei - en sjálfsagt munum við skoða þessi mál þegar nær dregur hausti.

4 - Er stefnan að fá handfylli af erlendum leikmönnum til liðs við félagið eins og undanfarin ár, með afar misjöfnum árangri?

Nei alls ekki og það hefur aldrei verið stefna, það er alltaf hálfgert happadrætti að fá góðan erl.leikmann og oftar en ekki er það lokaúrræði sem farið er í þegar öll sund hafa lokast.

Basically - hvernig sér stjórn knattspyrnudeildarinnar stóru myndina á næstu misserum? Hvert er stefnt og hvernig?


Stóra myndin er einföld, að Valur sé með besta liðið í meistaraflokkum karla og kvenna í knattspyrnu, berjist um alla titla sem í boði eru og hafi til þess lið sem er hæft til að gera þessar atlögur.
borkur
Skráð: 25. August 2010 21:55
Staða: Nýliði

Skráði sig: 25.08.09
Bréf: -1
Sæll Borko,

Oftar en ekki koma erl.leikmenn fyrir tilstuðlan klúbba sem við erum í samstarfi við og/eða umboðsmenn, samningar eru misjafnir og ef þú ert að vitna til þess að Danni Köning fór frá okkur á miðju tímabili þá er það nú stundum þannig að erlendir klúbbar taka þátt í að borga stóran hlut í launum viðkomandi leikmanns og þ.a.l hafa þeir rétt á að kalla þá tilbaka eða selja án okkar aðkomu.

Þjálfarar taka alfarið ákvörðun um að lána leikmenn og rökstyðja það til stjórnar.

Hitt er ekki svaravert.

Borko skrifaði:
Hvernig fellir stjórn knattspyrnudeildar kaup á erlendum leikmönnum með æði misjafna samninga og lán á uppöldum leikmönnum að uppbyggingarstefnunni sem boðuð var síðasta haust?
Hvernig hyggst stjórn knattspyrnudeildar axla ábyrgð á slælegu gengi liðsins síðastliðin 3 sumur?
Hvaðan kemur þessi Íri?
borkur
Skráð: 25. August 2010 21:59
Staða: Nýliði

Skráði sig: 25.08.09
Bréf: -1
Sæll Pétur Óli,


Pétur Óli skrifaði:
Sæll Börkur og takk fyrir innlitið.

Mig langar að rifja upp að vera okkar í efstu deild, eftir að við komumst síðast upp hefur verið gloppótt.

Fyrri hlutinn var ásættanlegur tvisvar annað sætið og svo titillinn. Seinni hlutinn er hreinlega ekki nógu góður. Á síðustu þremur árum þá höfum við fengið 1,34 stig í leik, við höfum skorað 1,66 mark og fengið 1,66 mörk á okkur. Að meðaltali má segja að við höfum lent í 7. sæti.

Að fá 1,34 stig í leik er alveg glatað. Það þarf ekkert að ræða það mikið frekar. Þrjú árin þarna á undan fengum við 1,85 stig í leik.

Mikil starfsmannavelta hefur ekki verið talin heppileg og það sama á við um boltann. Ég er langt frá því hrifinn að skipta alltaf um þjálfara, og er það fínt mál ef frétt kvöldsins er bara kjaftasaga. Ég taldi Gunnlaug reynslulausan fyrir klúbb eins og Val, en víst hann vara valinn þá verðum við að standa og falla með honum.

En hefur veltuhraði leikmanna Vals ekki verið of mikill? Börkur er hann meiri en hjá öðrum félögum? Hver er þín tilfinning fyrir því hjá leikmönnum (almennt séð) að spila fyrir Val? Líta menn á það sem jákvætt fyrir sinn feril, eða eru það bara peningarnir sem tala?

Jú hann hefur verið mjög mikill og nánast erum við að byggja upp nýtt lið á hverju ári sem er erfitt fyrir alla. Valur hefur verið mjög aðlaðandi klúbbur fyrir leikmenn að spila fyrir og menn hafa sóst í að koma til okkar enda aðstaðan glæsileg og öll umgjörð til fyrirmyndar.

Nú er fer að líða að því að okkar helsti Valsari kemst á aldur. Sérðu einhvern í liðinu geta tekið hans stöðu? Þá á ég við félagslega séð? Þurfum við ekki fleiri svona menn í okkar lið?

Bjössi er og hefur verið leiðtogi í okkar hóp og það er aðeins til einn slíkur eðalgripur.

Ég vona að stjórnin sýni þolinmæði og kjark til að gefa gulla tækifæri til að sanna sig.
borkur
Skráð: 25. August 2010 22:08
Staða: Nýliði

Skráði sig: 25.08.09
Bréf: -1
Sæll Keano/Tryggvi,

Keano var líka minn maður:)


Keano skrifaði:
Þið í stjórninni tókuð mikla áhættu þegar þið réðuð Gunnlaug Jónsson sem var með eins árs reynslu sem þjálfari. Ég verð að segja að mér finnst Gunnlaugur hafa ráðið illa við verkefnið sem var kannski full viðamikið fyrir reynslulausan mann. Ég geri mér grein fyrir að þetta er alltaf ákveðið happdrætti þegar kemur að þjálfara ráðningum og leikmannakaupum. Endar samt ekki ábyrgðin alltaf hjá ykkur sem tókuð þá áhættu að ráða Gunnlaug?

Fótboltinn er skrítinn leikur.


Nú eru nánast allir helstu styrtkaraðilar félagsins gengir úr skaftinu eftir góðæris tímabilið. Willum Þór kom ansi vel út í síðasta tekjublaði Frjálsrar Verslunnar en samkvæmt þessari frétt var þetta ansi skotheldur samningur að hans hálfu. Ofan á það má telja upp marga hátt skrifaða knattspyrnumenn sem litlu hafa skilað til baka á síðustu tímabilum.
Því spyr ég;
Fara sjóðir félagsins ekki að verða þurrausnir eftir öll fjárútlátin sem litlu hafa skilað?

Veit nú ekki hverju þú ert að ýja að og um launamál Willums verður þú að ræða við hann um, ég bendi þér hinsvegar á að sumir þjálfarar eru í vel launuðum störfum fyrir utan þjálfun.


Höfum við efni á að styrkja hópinn að einhverju ráði fyrir 100 ára afmæli Vals á næsta ári?

Já við höfum það.

kv
Tryggvi
borkur
Skráð: 25. August 2010 22:12
Staða: Nýliði

Skráði sig: 25.08.09
Bréf: -1
brelog skrifaði:
Er stjórn knd kunnugt um að einhver utan hennar, góður og gildur Valsmaður, hafi rætt við Guðjón Þórðar um áhuga hans á starfinu?

Nei

Með öðrum orðum, fékk stjórninn einhvern valsmann sem ekki situr í stjórn til þess að ræða við G-man?


Nei
Notendur að skoða þetta bréf
Guest


Þú getur ekki skrifað bréf.
Þú getur ekki svarað bréfum.
Þú getur ekki eytt þínum skrifum.
Þúgetur ekki breytt þínum skrifum.
Þú getur ekki búið til kannanir.
Þú getur ekki tekið þátt í könnunum.

SoClean Theme Created by Jaben Cargman (Tiny Gecko)
Knúið af Yet Another Forum.net, útgáfa 1.9.1.8 (NET v2.0) - 29.03.08
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.