|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 10.03.09 Bréf: 1 Staður: Reykjavík
|
Sæll Börkur! Mér finnst dapurlegt að þú skulir ekki telja það svaraverða spurningu hvernig stjórn knattspyrnudeildar hyggst axla ábyrgð á slælegu gengi liðsins. Við höfum nú þegar séð þjálfara og leikmenn axla ábyrgð. Ég tel það því vera góða, gilda og svaraverða spurningu hvernig stjórnin, sem hefur mikla aðkomu að stefnumörkun liðsins og því stóra og ábyrgðarfulla verkefni sem rekstur knattspyrnuliðs er hyggst axla ábyrgð. Við hljótum að vera sammála um að árangur síðustu tveggja tímabila er ekki ásættanlegur fyrir félagið okkar einkum og sér í lagi ef horft er til þeirra gríðarlegu fjármuna sem varið hefur verið til liðsins. Nú stefnir í að þriðja tímabilið í röð skili liðið árangri sem er undir væntingum bæði liðsins, stjórnar og stuðningsmanna. Ef þér finnst ég vega að þér með spurningu minni máttu vita að það er ekki meiningin. Það sem miig langar að vita er hvort stjórnin hafi á einhverjum tímapunkti leitað inn á við og hugleitt hvort eitthvað í þeim stjórnunarháttum og stefnumörkun sem þaðan kemur geti reynst vera hlekkur í þeirri orsakakeðju sem veldur því að liðinu gengur eins og því gengur. Mig langar að vita hvort stjórnin hafi á einhverjum tímapunkti velt fyrir sér einhverri endurskipulagninu á innviðum félagsins og velt því fyrir sér að endurskoða eitthvað þær leiðir sem hún velur að markmiðum sínum.
Þetta hlýtur að vera svaravert.
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 25.08.09 Bréf: -1
|
Jæja góðu valsmenn þá þakka ég ykkur fyrir málefnalegar spurningar og líflega umræðu. Til að enda þetta á góðum nótum þá bíð ég ykkur öllum að koma á morgunn/fimmtudag kl.19.00 á Hlíðarenda. Ég hefði viljað ganga með ykkur um svæðið, sýna ykkur húsakynnin, aðstöðuna og kynna starf knattspyrnudeildar. Í lokin getum við tyllt okkur niður og spjallað.
Hlakka til að sjá ykkur alla/öll spræk á morgunn.
Valskveðja Börkur
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 28.10.08 Bréf: 1 Staður: Reykjavík
|
Sæll Börkur,
Þakka svörin, margar spurningar og mörg svör.
Þykir mér þó sum þeirra ansi snubbótt. Nú hefur komið á daginn að Íþróttadeild Ríkisútvarpsins stendur við frétt sína frá því í kvöld.
Þar er meðal annars fullyrt að Gunnlaugi hafi verið boðið að segja upp störfum nú þegar eða hætta að loknu tímabili í haust.
Er þetta algjör steypa?
Heiðarlegt svar óskast
Það vita allir að Gulli og Hjörtur Júlíus íþróttafréttamaður eru góðir vinir. Þarf engan nóbelsverðlaunahafa til þess að setja samasemmerki þarna á milli.
Þetta er úr lausu lofti gripið?
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 25.08.09 Bréf: -1
|
Borko, Borko skrifaði:Sæll Börkur! Mér finnst dapurlegt að þú skulir ekki telja það svaraverða spurningu hvernig stjórn knattspyrnudeildar hyggst axla ábyrgð á slælegu gengi liðsins. Við höfum nú þegar séð þjálfara og leikmenn axla ábyrgð. Ég tel það því vera góða, gilda og svaraverða spurningu hvernig stjórnin, sem hefur mikla aðkomu að stefnumörkun liðsins og því stóra og ábyrgðarfulla verkefni sem rekstur knattspyrnuliðs er hyggst axla ábyrgð.
Ef þú átt við að þeir örfáu sjálfboðaliðar sem starfa af heilindum fyrir klúbbinn fari og hætti störfum að þvi að Valur sé ekki toppnum þá held ég ekki nei. Við hljótum að vera sammála um að árangur síðustu tveggja tímabila er ekki ásættanlegur fyrir félagið okkar einkum og sér í lagi ef horft er til þeirra gríðarlegu fjármuna sem varið hefur verið til liðsins. Nú stefnir í að þriðja tímabilið í röð skili liðið árangri sem er undir væntingum bæði liðsins, stjórnar og stuðningsmanna.
Sammála já/nei - var hann ásættanlegur fyrir árið 2004? Þér er tíðrætt um fjármuni, knd Vals hefur til að mynda selt leikmenn fyrir áður óþekktar upphæðir og samið við styrktaraðila þannig að starfsemin og veltan hefur aukist gríðarlega á undanförnum árum.
Ef þér finnst ég vega að þér með spurningu minni máttu vita að það er ekki meiningin. Það sem miig langar að vita er hvort stjórnin hafi á einhverjum tímapunkti leitað inn á við og hugleitt hvort eitthvað í þeim stjórnunarháttum og stefnumörkun sem þaðan kemur geti reynst vera hlekkur í þeirri orsakakeðju sem veldur því að liðinu gengur eins og því gengur. Mig langar að vita hvort stjórnin hafi á einhverjum tímapunkti velt fyrir sér einhverri endurskipulagninu á innviðum félagsins og velt því fyrir sér að endurskoða eitthvað þær leiðir sem hún velur að markmiðum sínum.
Starf knd. er í sífellri endurskoðun enda er félagsstarfið dýnamískt og kröfurnar gríðarlegar.
Þetta hlýtur að vera svaravert.
Vona að ég hafi svarað þér skilmerkilega?
Sjáumst hressir á morgunn, kv.Börkur
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 27.02.09 Bréf: 33
|
Blessaður Börkur Hvernig skýrir þú það að Valur tapar fyrir kr með fjórum mörkum gegn einu þar sem þeir voru (og eru) miklu betri. Kr náði einum skalla yfir Valsmarkið og síðan fjögur ótrúlega góð grísaskot hjá þeim. Ég sá svo ekki afganginn af leiknum. En sem sagt, Valur miklu betri. Geta þetta verið álög.
Áfram Valur
|
|
Staða: Alvöru Valsari
Skráði sig: 20.10.08 Bréf: 73 Staður: Reykjavík
|
Sæll Börkur og takk fyrir að kíkja við á spjallborðið. Ég því miður sá ekki í gær að þú hefðir tekið þig til við skrif og missti af þessu. Vona að þú sjáir þér þó fært að svara spurningum mínum.
1. Eru laun og launatengd gjöld þau sömu nú og 2009 eða hafa þau lækkað/hækkað?
2. Gæti slakur mórall innnan liðsins átt að eitthverju leiti orsakir í hvernig það var tekið á agabroti Danni og Martin?
3. Var orðið vandamál að fá góða leikmenn til félagsins af þeirri ástæðu að Willum var þjálfari liðsins?
4. Fyrir nokkru nefndi ég það á spjallinu að ég hefði heyrt að Valur væri farið að líta um eftir nýjum þjálfara. Getur þú sagt það 100% að alls engin hreyfing hafi átt sér stað er varða þjálfaramál meistaraflokks Karla?
5. Af hverju er James Bett ekki lengur með 2. flokk karla?
6. Kom aldrei til greina að semja aftur við Dennis Bo Mortensen?
7. Hver eru meðallaun leikmanns í meistaraflokki karla?
Vona að ég komist síðan í kvöld í fræðsluferð um Hlíðarenda =)
Takk fyrir mig.
ÁFRAM VALUR !!
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 23.10.08 Bréf: 27 Staður: 101
|
Persónulega finnst mér margar spurningarnar hérna út í hróa, menn eru að yfirfæra mikið af einmitt vandamálum þjálfaranns á stjórn Vals. Ég held að það sé öllum ljóst að Gulli velur liðið og það að hann sem ákveður hvort þessi eða hinn spili leikina. Sjálfur vill ég sjá Gulla áfram en eins og ég hef áður sagt þá hefur hann að mínu mati verið mistækur, staðan í dag er óásættanleg enda á Valur að minnsta kosti að vera berjast um evrópusæti hvert einasta ár. Seinustu þrjú ár höfum við verið með lið sem eiga að skila inn að minnsta kosti evrópusæti en það hefur ekki skilað sér þar þó allt ætti að vera til staðar fyrir það. Menn hljóta líka spyrja hvað veldur því að góðir leikmenn hafa ekki skilað sínu besta undir stjórn síðustu tveggja þjálfara Vals.
Held að flestar spurningar um leikmenn sem samið er við og annað eigi ekkert við í spurningum til stjórnarformanns. Það var spurt akkuru samið var við Arnar og Bjarka í fyrra, svarið við því að Atli Eðvalds lagði ríka áherslu að fá þá, reyndar held ég að Arnar Gunnlaugs hefði mikið getað lagt til við Valsliðið í dag. Gunnlaugur taldi að liðið þyrfti framherja fyrir tímabilið og því var Danni König fengin, Gunnlaugur hefur ákveðið að velja ekki ákveðna leikmenn í leiki en ekki stjórnin. Með þetta Gauja Þórðar mál þá lýtur þetta út eins og ein útblásin leigubílasaga. Vel má vera að ákveðnir menn innan Vals vilji fá Guðjón en ekkert bendir til þess að núverandi stjórn vilji fá hann.
Flestar spurningarnar hérna eru einfaldlega ekki í takt við umræðuna og sjálfur finnst mér þetta spjallborð engin vettfangur fyrir þessa umræðu.
|
|
|
Guest |