|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 25.08.09 Bréf: -1
|
Reykjavík, 27. ágúst 2010.
Við undirritaðir stjórnarmenn knattspyrnudeildar Vals höfum ákveðið að segja af okkur stjórnarmennsku þar sem trúnaðarbrestur hefur orðið á milli stjórnar knattspyrnudeildar Vals og aðalstjórnar félagsins. Við höfum unnið að heilindum síðan við tókum sæti í stjórn knattspyrnudeildar Vals árið 2003 þegar meistaraflokkur karla lék í fyrstu deild. Með miklu og samstilltu átaki tókst að byggja upp öfluga knattspyrnudeild sem hefur náð frábærum árangri á síðustu árum bæði í karla- og kvennaflokki.
Innan félagsins hefur hins vegar ýmislegt gengið á undanfarin misseri. Ákveðnir einstaklingar, sem við töldum samherja okkar, hafa gert okkur erfitt um vik við áframhaldandi uppbyggingu knattspyrnudeildarinnar. Þeir hafa að vissu leyti tekið yfir stjórnarstörf okkar sem erum þó lýðræðiskjörnir stjórnarmenn. Við teljum að slík vinnubrögð séu knattspyrnufélaginu Val ekki til framdráttar og höfum því ákveðið að stíga til hliðar til að skapa frið um störf félagsins.
Á þessum tímamótum langar okkur að þakka þeim fjölmörgu Valsmönnum sem hafa starfað með okkur og félaginu að því mikla uppbyggingarferli sem hefur átt sér stað undanfarin ár innan knattspyrnudeildarinnar. Við erum afar stoltir að hafa byggt upp sterkasta meistaraflokk kvenna í sögu félagsins og þökkum bæði fyrrverandi og núverandi þjálfurum þeim, Elísabetu Gunnarsdóttur og Frey Alexanderssyni fyrir frábært samstarf. Við erum einnig þakklátir Willum Þór Þórssyni sem þjálfaði meistaraflokk karla þegar Valur varð bikarmeistari 2005 og Íslandsmeistari 2007.
Við þökkum einnig núverandi þjálfarateymum meistaraflokks karla og kvenna fyrir samstarfið, þeim Frey Alexanderssyni, Þórði Jenssyni, Orra Sigurðssyni og Ragnheiði Jónsdóttur hjá kvennaliðinu og þeim James Bett, Friðriki E. Jónssyni, Birni Zoega, Sævari Gunnleifssyni og Halldóri Eyþórssyni hjá karlaliðinu. Að endingu viljum við þakka leikmönnum kvenna- og karlaliðs Vals í knattspyrnu fyrir frábært samstarf og hvetjum liðin áfram til árangurs.
Með miklu átaki hefur tekist að gera Val að stórveldi í íslenskri knattspyrnu á nýjan leik, félagi sem hefur unnið marga titla á undanförnum árum bæði í karla- og kvennaflokki.
Við erum og verðum alltaf Valsmenn og dyggir stuðningsmenn félagsins.
Áfram Valur!
Virðingafyllst
E. Börkur Edvardsson
Jón Grétar Jónsson
Bragi G. Bragason
Jón Höskuldsson
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 27.08.10 Bréf: 0
|
Af hverju er Gulla ekki þakkað í þessari yfirlýsingu ykkar?
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 17.10.08 Bréf: 14 Staður: 105 Reykjavík
|
Fyrir mína parta vil ég nú bara þakka stjórninni kærlega fyrir vel unnið og óeigingjarnt starf.
Menn standa ekkert í löngum bunum til að fá að vinna sjálfboðastörf fyrir íþróttafélög, og þau eru yfirleitt launuð með litlu þakklæti. Það er nú bara þannig og verður sennilega alltaf.
Með valskveðju
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 28.10.08 Bréf: 1 Staður: Reykjavík
|
Tek undir með Valþóri.
Það er samt greinilega eitthvað mikið að hjá þessu félagi, held það mætti alveg útskýra frekar hvað gerðist. Hvort sem það væri hér á spjallinu eða annarsstaðar.
Valskveðja,
breki
|
|
 Staða: Meðlimur
Skráði sig: 17.10.08 Bréf: 40 Staður: Ipswich
|
Eitthvað hefur gengið á síðustu daga en þetta kemur samt frekar á óvart.
Börkur og félagar eiga hrós skilið fyrir það sem þeir gerðu vel, þótt margt hafi auðvitað verið umdeilt í þeirra stjórnartíð. Eftir standa eftirminnileg ár þar sem skiptust á skin og skúrir. Ég þakka þeim félögum fyrir magnaðar minningar.
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 26.05.09 Bréf: 0
|
Ætli gulla sé nokkuð þakkað þar sem þeir eru að gefa í skyn að hann sé ekki lengur þjálfari vals og Guðjón sé að taka við.eða tekin við............................
það er mín ágiskun
En að öðru þetta eru skelfileg tíðindi ef rétt sé að vinnubrögðin séu svona
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 17.10.08 Bréf: 14 Staður: 105 Reykjavík
|
Tilvitnun:Af hverju er Gulla ekki þakkað í þessari yfirlýsingu ykkar? Það hlýtur að hafa verið yfirsjón, trúi engu öðru.
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 11.05.10 Bréf: 1 Staður: reykjavik
|
er þetta nokkuð nýtt á hlíðarenda,,,var ekki Njáll Eiðsson rekinn í beini í sjánvarpi af ákveðnum aðila.
aldreio gott að vita af því að menn séu að vinna gegn kostnum stjórnum í lýðræðislegum félögum..
Vill samt sem áður þakka þeim fyrrum stjórnarmönnum óeigingjart starf og allt það góð sem þeir hafa gert okkar félagi. þó svo ég hafi ekki alltaf verið þeim sammála þá hafa þeir gert markt stórfenglegt fyrir félagið og oft fengið harða gagnrýni frá okkur sem stundum ef ekki oftast er sögð í pirringi yfir lélegum úrslitum.
takk fyrir allt..
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 22.04.09 Bréf: 13
|
Leitt að heyra,þessi stjórn er virkilega búinn að standa sig og komið Val á alvöru stall.Stjórnin á miklar þakkir fyrir. En félagið er mililvægara en men og einstaka persónur. Nú þarf að grafa stríðsöxina, og vona að ekki verði langvarandi leiðindi um að ræða.
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 23.10.08 Bréf: 27 Staður: 101
|
Ég vil þakka stjórninni fyrir vel unnið óeigingjarnt starf, karlaliðið var rifið upp svo um munaði og unnust tveir stórir titlar eftir ansi langa bið. Árangurinn hjá Kvennaboltanum sem oft vill gleymast hjá mörgum hefur verið einstakur, fyrir mína parta eru þetta ekkert sérstaklega góðar fréttir en ber þó von að þeir sem taki við skilji hvað felst í því að vera við stjórnvölin hjá Val. Saga Vals snýst um titla og frábæran árangur og því verður að viðhalda við.
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 02.07.09 Bréf: -1
|
Leitt að sjá þetta og það getur ekki verið annað en áfall fyrir félagið að missa þessa 4 á einu bretti, efa að allir átti sig á hvað þeir hafa unnið mikið fyrir klúbbinn. Ég þurfti annars að leita eitt ár aftur í tímann til að finna út hvaða notandanafn ég hafði sett hérna inn, en síðast skrifaði ég hérna er tilkynnt var að Gulli yrði næsti stjóri Vals!! Það er alveg voðalega mikið mál að bæði ráða og svo kannski núna reka Gulla greyið, ættuð held ég frekar að losa ykkur við Gróu á Leiti sem getur ekki setið á sér með stórfréttirnar heldur en þessa sem skipað hafa stjórn síðan 2003 já eða Gulla sem þarf auðvitað að fá smá meiri tíma en þetta (",) Burtséð frá því þá gætu einhverjir hér haft gaman að þessu ( upphitun fyrir leikinn) og eins hvet ég Heiðu í dal til að skoða vinnumailið þegar hann sér þetta. Sjáumst á Selfossi Babú
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 26.08.09 Bréf: 2 Staður: Reykjavík
|
Valþór skrifaði:
Það hlýtur að hafa verið yfirsjón, trúi engu öðru.
Einmitt !! Hvaða líkur eru nú á því að telja upp alla og gleyma aðalþjálfaranum? Heldurðu að þeir væru ekki búnir að leiðrétta það? það þarf ekki mjög bjarta peru til að lesa í gegnum þetta.
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 28.10.08 Bréf: 31 Staður: Kópavogur
|
Margt viðrist benda til þess að þeir stjórnarmenn nú hafa látið af störfum hafi ekki stutt ráðningu Gulla. Og líkurnar á því að Gulli verði þjálfari liðsins á næsta tímabilun eru hverfandi. Það verður erfitt kannski ómöglegt að leggja Gumma Ben. og þeirra pilta á Selfossi -
|
|
|
Guest |