|
|
 Staða: Meðlimur
Skráði sig: 23.10.08 Bréf: 34 Staður: Rivertown
|
Sælir félagar, eru einhverjar pælingar í gangi um rútu á leikinn á selfossi? Eða einhver á leiðinni sem gæti tekið með sér eins og einn farþega :)
kv Bjöggi.
|
|
 Staða: Meðlimur
Skráði sig: 13.10.09 Bréf: 28 Staður: Reykjavík
|
Upphitun komin inn á síðuna (sjá hér), fríar rútuferðir frá Hlíðarenda klukkan 16:30 (sjá hér) og andstæðingurinn bíður spenntur eftir okkur (sjá hér og hér).Áfram Valsmenn - sjáumst í rútunni!!
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 02.03.09 Bréf: 7 Staður: Reykjavík
|
Glæsilegt að ná þremur stigum í kvöld. Ég held að menn geti farið að einblína á jákvæðu hliðarnar frekar en þetta eilífa væl. Valur er einu stigi ofar en Stjarnan og Keflavík sem var spáð mun betra gengi en Valur fyrir sumarið.
Verum jákvæð og styðjum okkar lið Áfram Valur
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 22.04.09 Bréf: 13
|
Fyrir mót fannst mér ásættanlegt að vera kringum 6 sætið eftir hryllinginn í fyrra. Ekki væri verra að komast eitthvað ofar á töflunni.
|
|
 Staða: Súperstjarna
Skráði sig: 16.04.09 Bréf: 122 Staður: Reykjavík
|
Núna þegar við vinnum vill enginn tjá sig? Annars er maður auðvitað sáttur með 3 stig, Steini og Arnar að skora og menn láta greinilega allt þetta fjölmiðlafár í kringum klúbbinn ekki á sig fá. Óþarflega tæpt reyndar gegn liði eins og selfoss en það hafðist. Örugglega ánægðastur með það að skora í næstu sókn eftir að þeir skoruðu úr víti. Maður var eiginlega að búast við einhverju fíaskó sem við höfum nú séð svo oft áður.
En það slæma náttúrulega að fá þessi 2 mörk á sig og eins og vanalega komu þau í seinni hálfleik. Menn þurfa að vera aðeins sprækari á upphafsmínútum seinni hálfleiks, svo virðist sem allt fari úrskeðis þar.
Koma Valur - stolt Reykjavíkur - skorum mörkin og vinnum alla leiki!!
|
|
 Staða: Meðlimur
Skráði sig: 13.10.09 Bréf: 28 Staður: Reykjavík
|
Mér fannst fyrri hálfleikurinn á Selfossi einn sá skemmtilegasti sem ég hef séð í sumar. Flæðið fremst á vellinum var mjög mikið, þar sem þar var eins og enginn sérstakur væri að spila á toppnum heldur allir út um allt.
Selfyssingar komu náttúrulega kolvitlausir út úr hléinu og ég mig grunaði ekki í eina mínútu að þeir myndu spila leikinn án þess að skora.
Eins og menn voru að tala um í stúkunni þá fengum við svo sannarlega eitthvað fyrir peninginn, og mér fannst stuðningurinn við liðið líka flottur.
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 01.07.09 Bréf: 7 Staður: 101 Rvk
|
Frábær sigur hjá strákunum og ekki skemmdi fyrir að þetta var gegn Selfyssingum sem við vorum vonandi að senda niður.
Jón Vilhelm hefur virkilega verið að koma til eftir frekar dapra byrjun.
Ég vil enda þetta tímabil fyrir ofan Fram, ég bið ekki um meira.
Áfram Valur!
|
|
|
Guest |