|
|
 Staða: Súperstjarna
Skráði sig: 16.04.09 Bréf: 129 Staður: Reykjavík
|
http://fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=115600Sjálfur væri ég mjög mikið til í að halda Jónasi og fá svo einn bakvörð, miðjumann og einn almennilegan markaskorara og þá erum við flottir. Hvað finnst ykkur? Ræðið.
Koma Valur - stolt Reykjavíkur - skorum mörkin og vinnum alla leiki!!
|
|
 Staða: Nýliði
Skráði sig: 14.05.09 Bréf: 4 Staður: Rvk
|
Er hjartanlega sammála p-sæm 2-4 nýjir leikmenn miðjumaður, bakvörður og 2 úber sóknarmenn þá gætum við jafnvel gert tilkall um titla á næsta tímabili.....
Koma svo Valur.....
|
|
Staða: Súperstjarna
Skráði sig: 02.09.10 Bréf: 110 Staður: Leifsgata 30 R
|
Ekki safna skuldum!
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 14.08.11 Bréf: 27 Staður: Reykjavik
|
Sammála P-Sæm, Jónas Tór Næs var sannkallaður happadráttur fyrir okkur Valsmenn. Ég man varla eftir slökum leik hjá kappanum í sumar,ég er búinn að sjá 18 leiki í sumar hjá okkar mönnum. Hrikalegur baráttujaxl og öruggur, og löngu innköstin frábær hjá honum. Varðandi Pól og Christian þá eru þeir ekki leikmenn sem hafa hrifið mig í sumar því miður og mega þeir fara mín vegna.Varðandi miðjuna þá eru Andri Fannar og Rúnar Már okkar framtíðar miðjumenn þeir hafa staðið sig vel finnst mér í sumar,þeir þurfa eðlilega að öðlast meiri reynslu, það kemur með aukinni ábyrgð. Hörður Sveinsson hefur litlu sem engu skilað og hann verður látinn fara.Kolbeinn ungi er alveg örugglega framtíðar senter hjá okkur,en hann þarf að fá annan reynslubolta með sér fyrir næsta sumar.
Við erum með flotta markmenn þá Halla, Sindra og Ásgeir Þór,engin vandamál þar á ferð. Okkur vantar þá tilfinnanlega öflugan v-bakvörð,sem getur hlaupið, það var akkelesar hæll sumarsins hjá okkur,ásamt sentersstöðunni. Annars erum við með góðan hóp.það sannaðist alveg ágætlega í sumar. Arnar Sveinn þarf meiri reynslu og það sem honum skortir er meiri gredda og baráttuandi,en það kemur. Hann karl faðir hans var nú ekki þekktur fyrir annað á sínum ferli. Svo við þurfum ekki að örvænta með strákinn þann.
|
|
 Staða: Meðlimur
Skráði sig: 13.10.09 Bréf: 28 Staður: Reykjavík
|
Mér lýst vel á það sem ég hef heyrt þjálfarann segja, að það verði engar heildsölubreytingar á milli ára eins og hafa komið í kjölfarið á nýjum þjálfurum síðustu tvö ár. Þrír leikmenn ættu að nægja til að gera góða atlögu að titlum næsta ár ef við höldum flestum frá í sumar.
Jónas Næs var einn allra besti leikmaður liðsins í sumar, en hinir tveir Færeyingarnir voru vonbrigði. Mouritsen er ég til í að gefa annan sjens, en Pól virkar ekki í þessari stöðu, Mér fannst hann alltaf út úr stöðu sama hvar hann spilaði og allt of hægur í vinstri bak. Þar væri ég til í að sjá Brynjar Kristmundsson, eða hreinlega svissa Jónasi þangað og fá Brynjar yfir.
Á miðjunni erum við með einn af bestu miðjumönnum deildarinnar í Hauki Páli, sem komplementar Guðjón Pétur fullkomnlega. Eitt af því jákvæðara í sumar var stígandinn í leik Rúnars Más, sem endaði sumarið á að vera valinn í U21 landsliðið og svo Andra Fannars þegar Rúnar meiddist. Þessir fjórir gefa okkur mjög breiða miðju og ættu að keppa um þrjár stöður þar.
Greinilegur veikleiki í sumar var hæg sókn. Við erum í raun bara með einn mann sem getur hlaupið eitthvað af viti og það er Matti Guðmunds og vonandi heldur hann áfram í sama ham næsta sumar. Jón Vilhelm vil ég alls ekki missa því hann er lang mest skapandi sóknartengiliður okkar.
Þessir að ofan eru kjarninn sem við eigum að byggja á, en ég myndi ekki sjá mikið eftir Herði Sveinssyni, Pól eða Mouritsen.
Það sem þarf að bæta við er vinstri bakvörður/backup í hafsent og fljótur sóknarmaður.
Fyrir utan þetta þá erum við með helling af ungum leikmönnum sem kannski gleymist í umræðunni um yngri flokka starf Vals. Ingólfur Sig, Kolbeinn Kára, Arnar Sveinn, Guðmundur Steinn, Þórir Guðjóns og fleiri geta allir komið sterkir inn á næsta ári.
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 17.10.08 Bréf: 14 Staður: 105 Reykjavík
|
Ekkert peningasukk og ekkert rugl takk fyrir!, Ef Næs er tilbúinn að vera áfram á því sem er í boði núna, þá er það gott mál.
Það er gjörsamlega banalt að ætla að ana útá þennan ofborgaða íslenska leikmannamarkað og ætla sér að næla í einhverja bita. Ef valið stendur á milli þess að Valur spili neðarlega í efstu deild eða jafnvel í næstefstu deild, og þess að félagið fari í gjaldþrot þá er valkosturinn augljós.
Menn þurfa bara að gyrða sig í brók og sníða sér stakk eftir vexti. Þennan gegndarlausa fjáraustur í laun og "kaup" á leikmönnum þarf að stöðva og breyta einfaldlega kúltúrnum.
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 07.07.09 Bréf: 1 Staður: 101
|
Sammála öllum um það að agi í fjármálunum er aðalmálið. Ef einhverjir peningar eru til þá finnst mér þeir eiga að fara í uppbyggingu barna- og unglingastarfsins og að halda þeim góðu leikmönnum sem fyrir eru. Matti er t.d. að verða samningslaus og skv. fotbolti.net þá standa samningaviðræður yfir. Ég vona innilega að það taki ekki langan tíma og að menn komist að góðu samkomulagi. Mér hefur Matti hafa sýnt miklar framfarir í sumar, hann hefur barist allra manna best og greinilegt að hann leggur sig fram fyrir félagið.
Ekki gera þau mistök sem ég hef séð of oft að neita uppöldnu leikmönnunum um þúsund kalla til þess eins að borga aðkeyptum leikmönnum hundrað þúsund kalla sem oft skila svo minna inn á vellinum.
Uppaldnir leikmenn sem hafa sýnt það inn á vellinum að þeir vilji vinna eru leikmenn sem við viljum, þurfum og ættum að hafa.
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 06.11.08 Bréf: 6
|
Lykil atriði að hafa meiri stöðugleika. Alltof mikið rót á milli ára sl 4 ár. Ef við höldum núverandi mannskap á næsta ári með kannsk 1-3 leikmönnum í viðbót þá erum við í fínum málum. Núverandi hópur getur ekki annað en orðið enn betri.
|
|
 Staða: Súperstjarna
Skráði sig: 16.04.09 Bréf: 129 Staður: Reykjavík
|
EinsiB skrifaði:Ekki gera þau mistök sem ég hef séð of oft að neita uppöldnu leikmönnunum um þúsund kalla til þess eins að borga aðkeyptum leikmönnum hundrað þúsund kalla sem oft skila svo minna inn á vellinum.
Uppaldnir leikmenn sem hafa sýnt það inn á vellinum að þeir vilji vinna eru leikmenn sem við viljum, þurfum og ættum að hafa. Amen!
Koma Valur - stolt Reykjavíkur - skorum mörkin og vinnum alla leiki!!
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 10.09.10 Bréf: 4
|
Sýnir nú kannski umræðuna hér sem er algjörlega á kolröngum forsendum og byggð á mikilli vanþekkingu......t.d að Matti hafi sýnt miklar framfarir í sumar.....hann er 30 plús ára.....auðvitað verður að styrkja liðið, við erum ekki að fá nægjanlega mikið upp úr flokkunum okkar að halda öðru fram er grín og kannski hvatning til þeirra sem slíkt gera að kynna sér málin aðeins......Er kannski verið að segja að Haukur Páll sem er ekki uppalinn Valsmaður sé inná vellinum með það hugarfar að ,,vinna ekki" leiki......Valur á að vera með það gott lið að það geti keppt um þá tital sem eru í boði, frábært ef allir væru uppaldnir en slíkt er bara ekki hægt og er varla til hja neinum klúbbi......timi kominn fyrir nokkra hér að kyngja því. EinsiB skrifaði:Sammála öllum um það að agi í fjármálunum er aðalmálið. Ef einhverjir peningar eru til þá finnst mér þeir eiga að fara í uppbyggingu barna- og unglingastarfsins og að halda þeim góðu leikmönnum sem fyrir eru. Matti er t.d. að verða samningslaus og skv. fotbolti.net þá standa samningaviðræður yfir. Ég vona innilega að það taki ekki langan tíma og að menn komist að góðu samkomulagi. Mér hefur Matti hafa sýnt miklar framfarir í sumar, hann hefur barist allra manna best og greinilegt að hann leggur sig fram fyrir félagið.
Ekki gera þau mistök sem ég hef séð of oft að neita uppöldnu leikmönnunum um þúsund kalla til þess eins að borga aðkeyptum leikmönnum hundrað þúsund kalla sem oft skila svo minna inn á vellinum.
Uppaldnir leikmenn sem hafa sýnt það inn á vellinum að þeir vilji vinna eru leikmenn sem við viljum, þurfum og ættum að hafa.
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 07.07.09 Bréf: 1 Staður: 101
|
valur2003 skrifaði:Sýnir nú kannski umræðuna hér sem er algjörlega á kolröngum forsendum og byggð á mikilli vanþekkingu......t.d að Matti hafi sýnt miklar framfarir í sumar.....hann er 30 plús ára..... Það sem ég átti við er að mér hefur Matti þótt standa sig frábærlega í sumar eftir mikið meiðslasumar í fyrra og það sem mest hefur hrifið mig er að hann hefur verið að berjast um og elta alla bolta. valur2003 skrifaði:auðvitað verður að styrkja liðið, við erum ekki að fá nægjanlega mikið upp úr flokkunum okkar að halda öðru fram er grín og kannski hvatning til þeirra sem slíkt gera að kynna sér málin aðeins...... Ég ætla ekki að reyna að halda öðru fram, ég er frekar að benda á sama punkt með öðrum áherslum. Ef það eru ekki að koma nógu margir upp úr yngri flokkunum þá skulum við gera vel við þá sem koma upp og hafa sýnt að þeir hafa getuna og viljann til að spila fyrir Val. valur2003 skrifaði:Er kannski verið að segja að Haukur Páll sem er ekki uppalinn Valsmaður sé inná vellinum með það hugarfar að ,,vinna ekki" leiki...... Alls ekki, og ekki túlka orð mín sem sleggjudóm yfir alla aðkomna Valsara. Ég er ekki haldinn þeim fordómum að menn þurfi helst að hafa fæðst á Hlíðarenda til að geta talist Valsarar. Ég hef hins vegar séð það í fleiri en einu liði á Íslandi að uppaldir leikmenn fá fáa möguleika og lítinn stuðning þangað til þeim er skipt út fyrir aðkeypta leikmenn sem skila litlu nema lélegu gengi og háum skuldum. valur2003 skrifaði:Valur á að vera með það gott lið að það geti keppt um þá tital sem eru í boði, frábært ef allir væru uppaldnir en slíkt er bara ekki hægt og er varla til hja neinum klúbbi......timi kominn fyrir nokkra hér að kyngja því. Ég á ekki neinum erfiðleikum með að kyngja því að það er mjög erfitt að vinna titla eingöngu á uppöldum leikmönnum. Margir af okkar bestu leikmönnum í gegnum árin hafa komið til Vals frá öðrum félögum, ég hugsa til dæmis alltaf hlýlega til Gumma Ben þegar ég heyri hann lýsa leikjum í sjónvarpinu. Sannur listamaður á vellinum sem átti ekki lítinn hlut í titlunum 2005 og 2007. En það er kannski líka kominn tími á að kyngja því að það er líklega jafn erfitt að vinna titla bara á aðkeyptum leikmönnum. Það tekst stundum, en það skilur venjulega eftir sig háan reikning sem er erfitt að greiða niður.
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 17.10.08 Bréf: 14 Staður: 105 Reykjavík
|
Ég endurtek: Ef valið stendur á milli þess að Valur spili í botni efstu deildar, eða jafnvel í neðri deildunum annarsvegar, og hinsvegar að félagið verði gjaldþrota (líkt og það var næstumþví orðið hér fyrir rúmum 10 árum síðan), þá er valkosturinn augljós.
Við getum ekk haldið áfram að eyða peningum sem við ekki eigum og verðum að hætta öllu titlarúnki sem leiðir félagið okkar í fjárhagslegt öngstræti. Að nota hagnað af sölu lands eða eigna í rekstur er óðs manns æði til langs tíma
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 10.09.10 Bréf: 4
|
Tel hæpið og óraunhæft að stilla málum upp með þessum hætti, en tek undir að menn eiga að fara varlega fjárhagslega. Valþór skrifaði:Ég endurtek: Ef valið stendur á milli þess að Valur spili í botni efstu deildar, eða jafnvel í neðri deildunum annarsvegar, og hinsvegar að félagið verði gjaldþrota (líkt og það var næstumþví orðið hér fyrir rúmum 10 árum síðan), þá er valkosturinn augljós.
Við getum ekk haldið áfram að eyða peningum sem við ekki eigum og verðum að hætta öllu titlarúnki sem leiðir félagið okkar í fjárhagslegt öngstræti. Að nota hagnað af sölu lands eða eigna í rekstur er óðs manns æði til langs tíma
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 02.07.09 Bréf: 9 Staður: Reykjavík
|
Við megum ekki gleyma að það getur líka verið býsna kostnaðarsamt að falla úr efstu deild. Það viljum við að sjálfsögðu forðast í lengstu lög.
|
|
Staða: Súperstjarna
Skráði sig: 29.10.08 Bréf: 180 Staður: reykjavík
|
Ég myndi persónulega vilja sá meiri uppbyggingu eða að byggja upp sterkari annan og þriðja flokk. Það er þekkt dæmi að lið sem ganga vel í meistaraflokki hafa góða unglingaflokka dæmi Breiðablik,KR, og Breiðablik. Annars finnst mér alveg í lagi að einhverjir leikmenn fari annað t.d. er Jón Vilhelm talin vera á leiðinni heim á skagann. Hörður Sveinsson gæti farið í Keflavík, og svo eru flestir erlendu leikmennirnir líklegast að fara annað. Valur er með flott lið en ég myndi vilja sjá þetta svona 4-6 sæti næsta ár en uppbygging í gangi. Svipað næstu 2-3 árin en svo eftir kannski fimm ár myndi Valur vera með sterkt lið frá meistaraflokki og niður í fjórða flokk. 60 % á heimamönnum.
|
|
 Staða: Meðlimur
Skráði sig: 13.10.09 Bréf: 28 Staður: Reykjavík
|
Ég held að það væri óðs manns æði að láta Jónas Tór Næs fara annað. Hann var í mínum bókum einn af þremur bestu leikmönnum sumarsins, með ódrepandi baráttu og sigurvilja.
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 07.10.10 Bréf: 13
|
Skv fótbolta.net verður Jón Vilhelm annað hvort hjá Val eða ÍA á næsta tímabili. Það væri skelfilegt að missa þennan öfluga leikamann. Klára samning við Jón Vilhelm strax, takk fyrir.
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 02.07.09 Bréf: 9 Staður: Reykjavík
|
Ef hugur Jóns Vilhelms stefnir annað og Skagamenn eru til í að bjóða honum betri samning en við ráðum við þá er lítið við því að gera.
Margir leikmenn liðsins eru gríðarlega mikilvægir - ekki síst Halli, Atli, Halldór og Matti - en í mínum huga er bara einn leikmaður sem er algjörlega bráðnauðsynlegt að halda í og réttlætanlegt að gera jafnvel betur við en áður til að halda honum hjá liðinu. Það er Haukur Páll Sigurðsson.
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 14.08.11 Bréf: 27 Staður: Reykjavik
|
SHelg.
Sammála hverju orði, en Jónas hinn færeyski fyllir líka þann flokk í mínum huga. Haukur Páll er okkur Valsmönnum sem ,,the one and only"....
|
|
 Staða: Meðlimur
Skráði sig: 17.10.08 Bréf: 40 Staður: Ipswich
|
Þetta væru nú mjög "Valsleg" kaup: http://www.fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=116198Tilvitnun: Valur og fleiri félög sýna Guðmundi Steinarssyni áhuga
Nokkur félög hafa áhuga á Guðmundi Steinarssyni leikmanni Keflavíkur en samningur hans við félagið rann út i gær.
,,Ég veit af áhuga nokkurra liða. Það eru margir kostir í boði og maður þarf að setjast niður og sjá hvað er skemmtilegt að gera," sagði Guðmundur við Fótbolta.net í dag.
Guðmundur hefur meðal annars verið orðaður við Val þar sem fyrrum þjálfari hans Kristján Guðmundsson er við stjórnvölinn.
,,Ég er búinn að heyra aðeins af áhuga þeirra en það er ekki búið að fara mjög langt. Ég er búinn að vera erlendis og þetta opnaði bara í gær," sagði Guðmundur.
Þessi 32 ára gamli framherji hefur leikið með Keflavík lengst af á sínum ferli en hann er leikja og markahæsti leikmaður félagsins frá upphafi.
|
|
 Staða: Súperstjarna
Skráði sig: 16.04.09 Bréf: 129 Staður: Reykjavík
|
Mig grunaði þetta um leið og það kom frétt um að hann væri að verða samningslaus því Kristján Guðmundson þjálfaði þennan mann fyrir nokkrum árum. En bara eins og þú segir Keano að vilja fá þennan mann minnir á innkaupastefnuna 2008-09 sem held ég enginn Valsari var ánægður með. Sé ekki tilganginn að fá 32 ára gamlann mann til okkar, akkúrat þegar félagið vinnur hörðum höndum að uppbyggingu með ungum leikmönnum.
Koma Valur - stolt Reykjavíkur - skorum mörkin og vinnum alla leiki!!
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 07.10.10 Bréf: 13
|
Þrátt fyrir að Guðmundur Steinarsson sé orðin 32 ára þá er hann ennþá mjög öflugur leikmaður. Gæti verið klókt að ná honum í hópinn. Mér sýnist á öllu að við þurfum að fá inn nokkra nýja leikmenn ef þessir leikmenn fara frá okkur
Stefán Eggertsson (var á láni) Guðjón Pétur (var á láni) Sigurbjörn Hreiðarsson (staðfest að hann fari) Christina Moritsen ? Pol Justinius ? Jón Vilhelm ? Jónas Næs ?
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 06.11.08 Bréf: 6
|
Það var full reynt með Hörð í sumar og sumarið 2009 var full reynt með ýmsum mönnum sem gátu einhvern tímann eitthvað. Aftur á móti jákvætt að Brynjar verði hjá okkur - þetta er hluti af jákvæðri uppbyggingu með unga og fljóta leikmenn http://www.fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=116210
|
|
 Staða: Meðlimur
Skráði sig: 13.10.09 Bréf: 28 Staður: Reykjavík
|
Minnka ekki líkurnar á því að Jónas Næs verði áfram ef Brilli er kominn alveg í Val? Man reyndar eftir að BK hafi tekið einn leik í vinstri bak í sumar, en hann var ekki sannfærandi þar.
Reyndar byrjaði hann sem kantmaður og er ansi fljótur, svo þetta gæti verið hluti af lausninni á steingervði sókn Vals eins og hún var í sumar.
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 23.10.08 Bréf: 28 Staður: 101
|
Hvað segja menn um Albert Inga ? Það verður samt að teljast ólíklegt enda mörg lið á eftir honum og hann er eflaust of dýr fyrir Val núna. Svekkjandi að Það skildi ekki hafa gengið upp hjá honum seinast í okkar herbúðum En hann væri fullkomin laus á framherjavandamálum okkar. Engu að síður vantar okkur smá bit í sóknina Þó ég hafi fulla trú á Arnari Sveini, Íngólfi og Kolbeini til að gera góða hluti.
|
|
|
Guest |