Knattspyrnufélagið Valur

Velkominn, gestur Leita | Mest lesið | Notendur | Innskráning | Nýskráning

Valur-Fylkir í kvöld 27.01.2012 Valkostir
Siggi Gunn
Skráð: 27. January 2012 09:26
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 27.01.12
Bréf: 5
Staður: Kópavogur
Vildi bara minna á leikinn í kvöld hjá meistarafl.karla á móti Fylki. Staðurinn er Eigillshöll kl.21.00


Leifur Ben.
Skráð: 28. January 2012 21:45
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 14.08.11
Bréf: 27
Staður: Reykjavik
Tap fyrir Fylkismönnum í öðrum leik okkar í Reykjav.mótinu,og jafntefli við Þrótt sem spilar í annari deild. Er þetta ásættanlegt í upphafi nýs tímabils? Með gjörbreytt lið frá síðasta ári,eru þetta úrslit sem valda mér nokkrum vonbrigðum. Auðvitað tekur tíma að slípa liðið saman og ná stöðugleika.

Halli markmaður er á förum til Sarpsborgar í Noregi,og við taka Sindri og Ásgeir Þór báðir mjög öflugir markmenn. Þessi staða á ekki að trufla næsta sumar. En enn sýti ég brottför Jónasar Þórs Næs besta h.bakverði sem við höfum haft lengi. Ákvörðun kn.deildarinnar að losa hann undan samningi er mér hulin ráðgáta. Kanski spila launamálin þar inn í,hvað veit ég?

Eftir að hafa skoðað myndskeið frá leik okkar við Fylki er eitt ljóst að varnarvinna okkar er ekki sú sama og sl. tímabil. En hún var yfirhöfuð afar góð í fyrra.Slæmar dekkingar í aðdraganda marka Fylkis er eitthvað sem við þurfum að bæta.

Rúnar Már átti greinlega frábæran leik,markið sem hann skoraði úr aukaspyrnunni var frábærlega útfært. Við verðum að koma brjálaðir til leiks gegn Fjölnismönnum næstu helgi og sýna hvað í okkar liði býr.

Áfram Valur,stolt Reykjavíkur......................
Notendur að skoða þetta bréf
Guest


Þú getur ekki skrifað bréf.
Þú getur ekki svarað bréfum.
Þú getur ekki eytt þínum skrifum.
Þúgetur ekki breytt þínum skrifum.
Þú getur ekki búið til kannanir.
Þú getur ekki tekið þátt í könnunum.

SoClean Theme Created by Jaben Cargman (Tiny Gecko)
Knúið af Yet Another Forum.net, útgáfa 1.9.1.8 (NET v2.0) - 29.03.08
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.