Ágústa og Ísold í úrtakshópi U16

Þórður Þórðarson landsliðsþjálfari U16 ára kvenna í knattspyrnu valdi á dögunum hóp sem kemur saman til úrtaksæfinga sem fara fram í Miðgarði Garðabæ dagana 5. og 6. febrúar næstkomandi. 

Í hópnum eru tveir Valsarar, þær Ágústa María Valtýrsdóttir og Ísold Hallfríðar Þórisdóttir. Við óskum stelpunum góðs gengis og til hamingju með valið.