Styrmir Þór nýr framkvæmdastjóri Vals


Aðalstjórn Vals hefur ráðið Styrmi Þór Bragason í starf framkvæmdastjóra félagsins. Styrmir sem hefur komið víða við á starfsferli sínum er reyndur stjórnandi sem hefur byggt upp mörg öflug fyrirtæki hér á landi og erlendis. Styrmir kemur til okkar frá Arctic Adventures sem hann átti hlut í og starfaði þar m.a. sem framkvæmdastjóri á miklum uppbyggingarárum félagsins.

Þessi reynsla Styrmis er eitthvað sem við teljum afar mikilvægt  í þeim flóknu verkefnum sem fylgja því að reka íþróttafélag af þeirri stærðargráðu sem Valur er.

"Þetta er verkefni sem ég er afar spenntur fyrir enda hef ég alla tíð borið miklar og sterkar taugar til félagsins. Ég er grjótharður Valsari og fylgist afar vel með öllu sem hér er í gangi. Knattspyrnufélagið Valur er félag sem á að vera í fremstu röð og það verður verkefni mitt að halda áfram því frábæra starfi sem hér hefur verið unnið," segir Styrmir Þór.

Um leið og Styrmir Þór tekur við starfi framkvæmdastjóra mun hann láta af starfi varaformanns knattspyrnudeildar Vals.

Við bjóðum Styrmi Þór velkominn til starfa og væntum mikils af samstarfinu við hann í framtíðinni.

Styrmir tekur við starfinu af Sigursteini Stefánssyni sem sagði starfi sínu lausu á dögunum.  Við þökkum Sigursteini fyrir samstarfið og óskum honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.

Hörður Gunnarsson, formaður Vals

Styrmir Þór Bragason