YNGRI FLOKKAR | FRIÐRIKSSJÓÐUR
Knattspyrnufélagið Valur hefur sett á laggirnar styrktarsjóð sem
hlotið hefur nafnið Friðrikssjóður í höfuðið á séra Friðriki
Friðrikssyni, stofnanda Vals.
Hlutverk sjóðsins er að tryggja að allir núverandi og framtíðar
iðkendur Vals geti staðið straum af þeim kostnaði sem fylgir því að
stunda íþróttir í Val og tryggja að ekkert barn sem vilji stunda
íþróttir verði meinað að gera slíkt sökum fjárskorts á heimili
sínu.
Allar umsóknir eru trúnaðarmál sem aðeins stjórn Friðrikssjóðs
hefur aðgang að. Þrír skipa stjórn sjóðsins, einn er tilnefndur af
aðalstjórn Vals, annar af stjórn Barna- og unglinasviðs Vals og
þriðji er starfandi framkvæmdastjóri félagsins.
Stjórn Friðrikssjóðs er sem hér segir fyrir árið
2020-2021:
- Alda Ægisdóttir, framkvæmdastjóri Vals
- Gunnar Örn Arnarson, tilnefndur af barna- og unglingasviði
Vals
- Þorgrímur Þráinsson, tilnefndur af aðalstjórn Vals
Öllum umsóknum skal
skilað rafrænt á netfangið alda@valur.is eða í
umslagi merktu Friðrikssjóður á skrifstofu
Vals.