Merki Knattspyrnufélagsins Vals    Sumarstarf Vals | Sumarið 2023

 

Hér má sjá námskeiðin sem eru í boði:

  • Sumarbúðir í Borg fyrir 6-11 ára - 5. námskeið í júní og júlí
  • Boltaskóli Vals fyrir 6-10 ára - 3. námskeið í júní
  • Knattspyrnuskóli Vals fyrir 6-10 ára - 6. námskeið í júní og júlí
  • Handboltaskóli Vals fyrir 6 - 10 ára - 3 námskeið í júní & 2 í ágúst
  • Handboltaskóli Vals fyrir 11-13 ára - 3 námskeið í júní og 2 í ágúst
  • Körfuboltaskóli Vals fyrir 6-10 ára - 3 námskeið í júní & 2 í ágúst
  • Körfuboltaskóli Vals fyrir 11-13 ára - 3 námskeið í júní & ágúst
  • Nánari upplýsingar um námskeiðin má finna hér að neðar á síðunni

Skráning opnar 4. maí - Smelltu hér til að skrá iðkanda á námskeið

Sumartafla 2023 - Fótbolti (tekur gildi 12. júní )

Sumaræfingatafla 2023


- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Sumarbúðir í borg | Sumarið 2023

Hinar margrómuðu Sumarbúðir í Borg verða á sínum stað þetta sumarið en um er ræða sumarleikjanámskeið sem býður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir börn á aldrinum 6-11 ára eftir hádegi á virkum dögum. Á dagskrá verður meðal annars:

  • Vettvangsferðir og ratleikir
  • Fyrirtækjaheimsóknir
  • Strand- og fjöruferðir
  • Safnaferðir
  • Bókasafnsferðir
  • Pylsupartí í lok hvers námskeiðs

Lögð er áhersla á fjölbreytta íþróttaiðkun þar sem unnið er með skyn- og hreyfiþroska barna í gegnum fjölbreytta leiki.

Helsta markmið námskeiðsins er að veita börnunum fjölbreytt íþróttauppeldi og byggja upp hjá þeim heilbrigðar og hollar lífsvenjur í öruggu, jákvæðu og skemmtilegu umhverfi.

Líkt og undanfarin ár geta þátttakendur valið um að fá heitan mat í hádeginu og er rík áhersla lögð á hollan og góðan heimilismat. Með þeim hætti geta þátttakendur verið í knattspyrnu-handbolta- eða körfuboltaskóla Vals fyrir hádegi og í Sumarbúðunum eftir hádegi. 

Dagsetningar Sumarbúða í borg 2023

  • Námskeið 1: 12. júní - 16. júní
  • Námskeið 2: 19. júní - 23. júní
  • Námskeið 3: 26. júní - 30. júní
  • Námskeið 4: 3.júlí - 7. júlí
  • Námskeið 5: 10. júlí - 14. júlí

 

Verð per námskeið (verð miðast við fullt námskeið sem er 5 dagar):

  • Sumarbúðir eftir hádegi........................ 6.000
  • Hægt er skrá iðkanda í hádegismat..... 5.000 (*vika í senn ekki hægt skrá per dag).

Hagnýtar upplýsingar um Sumarbúðir í Borg 

  • Fyrir börn á aldrinum 6-11 ára
  • Milli 12:30 og 16:00 alla virka daga eftir að skóla lýkur í júní og í júlí
  • Gæsla fyrir börn milli 16-17
  • Hægt að kaupa hádegismat fyrir þátttakendur, maturinn byrjar klukkan 12:00 
  • Hægt er að boltaskólum Vals fyrir hádegi og sumarbúðum eftir hádegi
  • Ef þú lendir í vandræðum með skráningu sendu tölvupóst á gunnar@valur.is eða hringdu í 414-8005 
  • Smelltu hér til að skrá barn í Sumarbúðir í borg

 

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - 

Knattspyrnuskóli Vals | Sumarið 2023

Knattspyrnuskóli Vals verður líkt og undanfarin sumur starfræktur fyrir hádegi og er ætlaður börnum 6-10 ára. Í knattspyrnuskólanum kynnast börnin grunntækni í knattspyrnu í gegnum leik og lögð er áhersla á að fyrstu kynni barnanna af íþróttinni séu jákvæð og skemmtileg.

Skipt verður í hópa eftir aldri og unnið í litlum hópum til að hámarka fjölda snertinga við boltann hjá hverjum iðkanda. Unnið er eftir kennsluskrá knattspyrnudeildar Vals sem leggur áherslu á að æfingar barna á þessum aldri séu fjölbreyttar og stuðli að bættum skyn- og hreyfiþroska.

Reyndir þjálfarar og leikmenn Vals miðla reynslu sinni á faglegan og skemmtilegan hátt. Valur leggur áherslu á að skapa kjöraðstæður fyrir iðkendur til að njóta sín og hafa gaman af leik og keppni, óháð aldri og getu.

Í boði er að vera í knattspyrnuskóla fyrir hádegi og Sumarbúðum í Borg eftir hádegi. Hádegisverður er ekki innifalinn í verði en hægt er að kaupa heitan hádegisverð. 

Kennsla í Knattspyrnuskólanum fer fram sem hér segir: 

  • Mánudaga: 10:30-12:00 
  • Þriðjudaga: 10:30-12:00
  • Miðvikudaga: 10:30-12:00
  • Fimmtudaga: 10:30-12:00 
  • Föstudaga: 10:30-12:00 

Dagsetningar Knattspyrnuskólans

  • Námskeið 1: 12.júní - 16.júní
  • Námskeið 2: 19.júní - 23.júní
  • Námskeið 3: 26.júní - 30.júní
  • Námskeið 4: 3.júlí - 7.júlí
  • Námskeið 5: 10. Júlí - 14. júlí
  • Námskeið 6: 17. júlí - 21. júlí 

Verð per námskeið:

  • Knattspyrnuskóli Vals ................................................. 6.000
  • Hádegismatur...............................................................5.000  

Hagnýtar upplýsingar um Knattspyrnuskóla Vals

  • Fyrir börn á aldrinum 6-10 ára
  • Milli 10:30 og 12:00 mánudaga - föstudaga.
  • Æfingar hjá 7. og 6. flokki eru frá 09:00-10:00 (Nestispása milli 10 og 10:30)
  • Gæsla fyrir börn frá 8-9 (fram að æfingu sem byrjar 09:00) og 16-17
  • Aukagæsla á föstudögum frá 9:00-10:30 (fram að knattspyrnuskóla)
  • Hægt að vera í knattspyrnuskóla fyrir hádegi og Sumarbúðunum eftir hádegi (Sér skráning fyrir sumarbúðir)
  • Ef þú lendir í vandræðum með skráningu sendu tölvupóst á gunnar@valur.is eða hringdu í 414-8005 
  • Smelltu hér til að skrá barn í knattspyrnuskóla Vals

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - 

Boltaskóli að eigin vali (Einungis í boði í júní)

Boltaskóli að eigin vali er námskeið sem er hugsað fyrir iðkendur á aldrinum 6-10 ára vilja prófa fleiri en eina boltagrein.

Iðkendur á þessu námskeiði geta valið um hvort þeir fara í handbolta, fótbolta eða körfuboltaskóla Vals frá 10:30-12:00 mánudag- föstudags. Hægt er að prófa alla skólana (fótbolta, handbolta og körfubolta) á heilu námskeiði (1 viku).

Kennsla í boltaskóla Vals fer fram sem hér segir:

  • 10:30 og 12:00 mánudag-föstudags.

Dagsetningar boltaskóla Vals:

  • Námskeið 1: 12.júní - 16.júní
  • Námskeið 2: 19.júní - 23.júní
  • Námskeið 3: 26.júní - 30.júní

Verð per námskeið:

  • Boltaskóli ................................................................. 6.000  

Hagnýtar upplýsingar um Boltaskóla Vals:

  • Fyrir börn á aldrinum 6-10 ára
  • Milli 10:30 og 12:00 mánudag-föstudags
  • Hægt að vera í Sumarbúðum í borg eftir hádegi - Velur Sumbarbúðirnar sér á skráningasíðu Vals
  • Ef þú lendir í vandræðum með skráningu sendu tölvupóst á gunnar@valur.is eða hringdu í 414-8005 
  • Smelltu hér til að skrá barn í boltaskóla Vals

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - 

Handboltaskóli Vals 6-10 ára (1. - 4. b)

Um er að ræða námskeið fyrir krakka í  6-10 ára bæði stelpur og stráka þar sem haldið verður áfram að kenna grunnatriði handboltans í gegnum leiki og skemmtilegar boltaæfingar.

Farið verður yfir öll helstu grunnatriði handboltans ásamt því að að spila og fara í skemmtilega leiki. 

Frábært námskeið fyrir þá sem vilja prófa nýja íþróttt og þá sem hafa æft áður og vilja nýta sumarið í að bæta sig.

Námskeiðið verður haldið samhliða Sumarbúðunum í borg í júní svo krakkar geta verið í handboltaskólanum fyrir hádegi og Sumarbúðirnar á eftir hádegi.  

Kennsla í handboltaskólanum í júní og ágúst fer fram sem hér segir: 

  • Mánudag-föstudags 10:30-12:00 

Dagsetningar Handboltaskólans í júní

  • Námskeið 1: 12. júní - 16. júní
  • Námskeið 2: 19. júní - 23. júní
  • Námskeið 3: 26. júní - 30. júní

Dagsetningar Handboltaskólans í ágúst

  • Námskeið 4: 8. ágúst - 11. ágúst 
  • Námskeið 5: 14. ágúst - 18. ágúst 

Verð per námskeið:

  • Handboltaskóli Vals ................................................. 6.000 (*miðast við fullt námskeið 5 daga)

Hagnýtar upplýsingar um Handboltaskóla Vals

  • Fyrir börn á aldrinum 6-10 ára
  • Hægt er að vera í handboltaskóla fyrir hádegi og sumarbúðum eftir hádegi í júní.
  • Hægt er að kaupa hádegismat með námskeiðinu í júní.
  • Ef þú lendir í vandræðum með skráningu sendu tölvupóst á gunnar@valur.is eða hringdu í 414-8005 
  • Smelltu hér til að skrá barn í barn í handboltaskóla Vals

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Handboltaskóli Vals 11-13 ára (5. - 7. b)

Um er að ræða námskeið fyrir 11 - 13 ára stelpur og stráka sem vilja bæta sig öllum þátttum handboltans (fintur, skot og tækniæfingar).

Frábært námskeið fyrir iðkendur sem vilja bæta sig og nýta sumarið í að ná enn meiri framförum.

* Stelpur & strákar æfa: Mánudaga - Föstudaga frá 09:00-10:30

Dagsetningar Handboltaskólans í júní

Dagsetningar Handboltaskólans í ágúst

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - 

Körfuboltaskóli Vals | 6-10 ára (1.-4.b)

Körfuboltaskóli Vals er fyrir áhugasama körfuboltakrakka á aldrinum 6-10 ára. Um er að ræða skemmtilegt námskeið fyrir bæði stelpur og stráka, hvort sem iðkendur eru byrjendur eða lengra komnir.

Farið verður yfir öll helstu grunnatriði körfuboltans ásamt því að að spila og fara í allskonar skemmtilega leiki. 

Frábært námskeið fyrir bæði þá sem vilja prófa nýja íþrótt og þá sem hafa æft áður og vilja nýta sumarið í að bæta sig.

Námskeiðið verður haldið samhliða Sumarbúðunum í Borg í júní svo krakkar geta verið í körfuboltaskólanum fyrir hádegi og Sumarbúðirnar á eftir hádegi. 

Kennsla í körfuboltaskólanum í júní og ágúst fer fram sem hér segir: 

Dagsetningar Körfuboltaskólans í júní

  • Námskeið 1: 12.júní - 16.júní
  • Námskeið 2: 19.júní - 23.júní
  • Námskeið 3: 26.júní - 30.júní

Dagsetningar Körfuboltaskólans í ágúst

  • Námskeið 4: 8. ágúst -11. ágúst 
  • Námskeið 5: 14. ágúst - 18. ágúst

Verð per námskeið:

  • Körfuboltaskóli Vals ................................................ 6.000 (*miðast við fullt námskeið 5 daga)  

Hagnýtar upplýsingar um Körfuboltaskóla Vals

  • Fyrir börn á aldrinum 6-10 ára
  • Gæsla fyrir börn frá 8-9 og 16-17 (í júní)
  • Hægt að vera í Körfuboltaskóla fyrir hádegi og Sumarbúðunum eftir hádegi (í júní)
  • Ef þú lendir í vandræðum með skráningu sendu tölvupóst á gunnar@valur.is eða hringdu í 414-8005
  • Smelltu hér til að ganga frá skráningu

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - 

Körfuboltaskóli Vals 11-13 ára (5. -  7. b)

Um er að ræða námskeið fyrir 11 - 12 og 13 ára stelpur og stráka sem hafa brennandi áhuga á körfubolta.

Frábært námskeið fyrir iðkendur sem vilja bæta sig og nýta sumarið í að ná enn meiri framförum.

Kennsla í körfuboltaskólanum í júní og ágúst

  • Mánudag-föstudags: 09:00-10:30 

Júní námskeið 

Ágúst námskeið