Sumarbúðir í borg | Sumarið
2023
Hinar margrómuðu Sumarbúðir í Borg verða á sínum stað þetta
sumarið en um er ræða sumarleikjanámskeið sem býður upp á
fjölbreytta dagskrá fyrir börn á aldrinum 6-11
ára eftir hádegi á virkum dögum.
Á dagskrá verður meðal annars:
- Vettvangsferðir og ratleikir
- Fyrirtækjaheimsóknir
- Strand- og fjöruferðir
- Safnaferðir
- Bókasafnsferðir
- Pylsupartí í lok hvers námskeiðs
Lögð er áhersla á fjölbreytta íþróttaiðkun þar sem unnið er með
skyn- og hreyfiþroska barna í gegnum fjölbreytta leiki.
Helsta markmið námskeiðsins er að veita börnunum fjölbreytt
íþróttauppeldi og byggja upp hjá þeim heilbrigðar og hollar
lífsvenjur í öruggu, jákvæðu og skemmtilegu umhverfi.
Líkt og undanfarin ár geta þátttakendur valið um að fá heitan
mat í hádeginu og er rík áhersla lögð á hollan og góðan
heimilismat. Með þeim hætti geta þátttakendur verið í
knattspyrnu-handbolta- eða körfuboltaskóla Vals fyrir hádegi og í
Sumarbúðunum eftir hádegi.
Dagsetningar Sumarbúða í borg 2023
- Námskeið 1: 12. júní - 16. júní
- Námskeið 2: 19. júní - 23. júní
- Námskeið 3: 26. júní - 30. júní
- Námskeið 4: 3.júlí - 7. júlí
- Námskeið 5: 10. júlí - 14. júlí
Verð per námskeið (verð miðast við fullt námskeið sem
er 5 dagar):
- Sumarbúðir eftir hádegi........................ 6.000
- Hægt er skrá iðkanda í hádegismat..... 5.000 (*vika í senn
ekki hægt skrá per dag).
Hagnýtar upplýsingar um Sumarbúðir í
Borg
- Fyrir börn á aldrinum 6-11 ára
- Milli 12:30 og 16:00 alla virka daga eftir að skóla lýkur í
júní og í júlí
- Gæsla fyrir börn milli 16-17
- Hægt að kaupa hádegismat fyrir þátttakendur, maturinn byrjar
klukkan 12:00
- Hægt er að boltaskólum Vals fyrir hádegi og sumarbúðum eftir
hádegi
- Ef þú lendir í vandræðum með skráningu sendu tölvupóst á
gunnar@valur.is eða hringdu í 414-8005
- Smelltu hér til að skrá barn
í Sumarbúðir í borg