ÆFINGAGJÖLD YNGRI FLOKKA
| VERÐSKRÁ
Skráning og greiðsla í flokkar > https://www.sportabler.com/shop/valur
Athugið bein tenging er við Rafræna Reykjavík og annarra
sveitarfélaga inn á skráningasíðunni.
Æfingagjöld fótboltans | Vor/sumar 2021
Flokkur |
jan-ágú |
jan-jún |
8. flokkur |
38.000 |
28.500 |
7. flokkur |
64.000 |
48.000 |
6. flokkur |
67.000 |
51.000 |
5. flokkur |
74.000 |
4. flokkur |
79.000 |
3. flokkur |
81.000 |
Æfingagjöld handboltans | Vor/sumar 2021
Flokkur |
jan-maí |
8. flokkur |
31.000 |
7. flokkur |
38.500 |
6. flokkur |
42.500 |
5. flokkur |
51.500 |
4. flokkur |
67.000 (*jan-jún) |
3. flokkur |
70.000 (*jan-jún) |
Æfingagjöld fyrir körfuboltann | Vor/sumar
2021
Flokkur
|
jan-maí |
|
MB 5-6-7 ára kk |
37.000 |
MB 5-6-7 ára kv |
37.000 |
MB 8-9 ára kk |
42.000 |
MB 8-9 ára kv |
42.000 |
MB 10 kk & kv |
45.000 |
MB 11 kk & kv |
45.000 |
7.-8.-9. fl. kk & kv |
50.000 |
10. fl. kk & kv |
57.000 |
Drengja & Stúlkna fl. |
57.000 |
|
Skráning og greiðsla æfingagjalda
Skráning og greiðsla æfingagjalda fer fram á netinu á
https://www.sportabler.com/shop/valur Þar
er hægt að ganga frá greiðslu með greiðsluseðli eða kreditkorti og
skipta greiðslum. Bein tenging við Rafræna Reykjavík og
annarra sveitarfélaga.
Eftirfarandi skilmálar gilda um æfingagjöld hjá öllum deildum
Vals
- Skilyrði er að æfingagjöld séu greidd í upphafi tímabils
- Greiðsla æfingagjalda er forsenda fyrir þátttöku á æfingum og
mótum flokksins.
- Iðkendur hjá Val hafa ekki þátttökurétt á mótum nema gengið
hafi verið frá æfingagjöldum.
- Allar skráningar á námskeið eru endanlegar og ekki hægt að
afskrá/afpanta á netinu.
- Skrá þarf iðkendur í Sportabler þar sem forráðamenn geta
ráðstafað frístundastyrk eða gengið frá greiðslu með öðrum
hætti.
- Skráning þarf að vera lokið fyrir 1. febrúar fyrir vorönn. Sé
ekki búið að ganga frá greiðslu fyrir þann tíma verður sendur
greiðsluseðill til forráðamanna. Ef forráðamaður óskar eftir að
breyta þeim greiðslumáta leggst 1.500 kr umsýslugjald ofaná
gjöldin.
- Ef iðkandi byrjar æfingar eftir að tímabil hefst þarf að senda
tölvupóst á gunnar@valur.is með nafni,
kennitölu og upphafsdagsetningu. Hægt er þá að aðlaga upphæð
æfingagjalda að því hvenær æfingar hófust.
- Ef iðkandi hefur mætt á æfingar í tvær vikur og ekki hefur
verið gengið frá skráningu verður sjálfkrafa sett inn skráning í
iðkendakerfi Vals og sendur greiðsluseðill fyrir æfingagjöldum. Ef
forráðamaður óskar eftir að breyta þeim greiðslumáta leggst 1.500
kr umsýslugjald ofaná gjöldin.
- Æfingagjöld eru ekki endurgreidd eftir að námskeið er hafið.
Hægt er að sækja um undanþágu frá þessu ef gild ástæða er fyrir
úrsögn, t.d. búferlaflutningar eða meiðsli/veikindi.
- Kjósi iðkandi að hætta æfingum verður úrsögn að berast með
tölvupósti á gunnar@valur.is. Það er á
ábyrgð forráðamanns að tilkynna úrsögn til skrifstofu, tilkynning
til þjálfara verður ekki tekin gild.
- Ráðstafaður frístundastyrkur sveitarfélaga er ekki
endurgreiddur.
- Ekki má flytja frístundastyrk milli systkina né milli ára.
- Einungis er hægt að ráðstafa frístundastyrk á viðeigandi
námskeið meðan það er í gildi.
- Allir greiðsluseðlar eru í kröfukaupum hjá Greiðslumiðlun og
því verða forráðamenn að snúa sér þangað ef þeir lenda í vanskilum
eða vilja semja um greiðslukjör eftirá.
- Mikilkvægt er að hafa samband við Íþróttafulltrúa ef um
fjárhagserfiðleika er að ræða. Hægt er að finna úrlausnir til að
iðkandi geti haldið áfram íþróttaiðkun, t.d. með umsókn um styrk í
Friðrikssjóð.