Arnar Sveinn til Ólafsvíkur

Arnar Sveinn Geirsson til Ólafsvíkur - Hefur tekið þá ákvörðun að spila knattspyrnu að nýju.
Knattspyrnufélagið Valur óskar Arnari Sveini velfarnaðar í framtíðinni en þessi efnilegi leikmaður hefur tekið þá ákvörðun um að spila með Víking frá Ólafsvík í sumar. Arnar Sveinn tók sér frí frá knattspyrnuiðkun en hefur nú ákveðið að taka fram skóna að nýju. Félagaskiptin voru gerð í mesta bróðerni og vonar knattspyrnufélagið Valur að Arnar Sveinn finni gleðina að nýju og slái í gegn í sumar. Um leið og við óskum honum velfarnaðar og góðs gengis hjá Ólafsvíkingum, vonast Valsmenn til að sjá hann aftur fljótlega í Valstreyjunni að leika listir sínar að Hlíðarenda.













