Leikmannakynning

Fimmtudagskvöldið 3.maí verður haldinn leikmannakynning á leikmönnum meistaraflokks karla og kvenna hjá Val fyrir tímabilið sem er að hefjast.

Hverjir spila fyrir Val í sumar ?

Verður Haukur Páll no. 7 ?

Verður Pála með ?

Ætlar Guðjón Pétur að skarta skeggi í sumar ?

Verður einhver eldri en 18 ára í kvennaliðinu ?

Þessum spurningum og mörgum öðrum verður svarað á stórskemtilegri leikmannakynningu á morgun fimmtudag 3.maí kl. 19.00 í Lollastúku í Vodafonehöllinni.

Mætum öll, hittum leikmenn, þjálfara,  aðra Valsara og njótum lífisins á fögru vorkvöldi sem að eru hvergi fallegri en á Hlíðarenda.