Hildigunnur framlengir

Í gær skrifaði Hildigunnur Einarsdóttir undir nýjan tveggja ára samning við Val. Hildigunnur hefur verið frá allt þetta tímabil vegna meiðsla en stefnir á að mæta tvíefld til leiks í haust. Þetta eru gleðitíðindi fyrir Valsara enda Hildigunnur ein af öflugustu hanknattleikskonum landsins.













