Hreinsum í kringum okkur

Nú ætla Valsmenn og Meyjar að storma á Hlíðarenda laugardaginn 5. maí kl. 10:00 - 15:00 til að hreinsa, fegra og bæta umhverfið okkar.
Ætlar þú ekki örugglega að vera með ?
Það getur enginn Valsmaður með sjálfsvirðingu misst af þessum einstæða viðburði. Nú getur sjálfboðaliðaþörfin í þér fengið útrás og nýtt kraftana í að gera Hlíðarenda að betri og hreinni stað fyrir gesti og gangandi.
Þú mætir og tekur alla fjölskylduna með ÞIÐ
fáið góða útiveru og gerið félaginu ykkar gagn. Hlökkum til að
taka á móti fjölda sjálfboðaliða og hreinsa,fegra og bæta
Hlíðarenda fyrir sumarið.
Nefndin.













