Hin hliðin - Laufey Björnsdóttir

Nafn, fæðingardagur og ár?  Laufey Björnsdóttir, fædd 5. mars, 1989.

Gælunafn:Lubbi, Lukka, Láfus og fleira skemmtilegt. 

Uppáhaldsmatur?  Nautasteik með bernaise sósu, humar, humarsúpa, lambalæri, svínalundir, erfitt að gera upp á milli.

Hvernig skóm spilar þú í?  Nike, total 90. 

Hvað varstu gömul þegar þú byrjaðir að æfa fótbolta?  Ég var 6 ára.

Fylgist þú með öðrum íþróttum?  Já, finnst gaman að horfa á handbolta, frjálsar íþróttir og fleira.

Skemmtilegt atvik úr fótboltaferð?  Þegar ég var í Austurríki með Breiðablik. Liðið var í göngutúr fyrir leik þegar ein dúfan á svæðinu tekur sig til og dritar í hárið á einni okkar sem er vön að hafa hárið alltaf vel greitt og flott.

Hvaða lag kemur þér í gírinn fyrir leik?  Mörg sem koma til greina hér,  til dæmis "Howling for you" með The Black Keys.

Hvar líður þér best?  Í Öxarfirðinum þar sem amma mín og afi eiga sumarbústað.

Fallegasti/fallegasta knattspyrnumaðurinn/konan í meistaraflokki í Val?  Eru ekki allir fallegir á sinn hátt bara.

Hver er mesti sprellarinn í hópnum ?  Rakel Logadóttir hlýtur þennan heiður.

Hver er efnilegasti Valsarinn í fótbolta ?  ég æfi með mörgum af efnilegustu knattspyrnukonum landsins á hverjum degi. Þær eru margar sem koma til greina hér J

Afhverju Valur ?  vegna þess að það er mikill metnaður hér í Val og mikill sigurvilji. Ég vil vera í liði sem stefnir á toppinn.