Valdimar Fannar framlengir

Valdimar Fannar Þórsson skrifaði í dag undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild Vals. Það eru góðar fréttir fyrir okkur Valsmenn að Valdimar verði áfram í okkar röðum, enda einn allra besti handknattleiksmaður deildarinnar.













