Verðskuldaður sigur á Fram

Það er mikið annríki sem fylgir því að vera virkur stuðningsmaður Vals þessa dagana. Auk þess að fylgjast með liðinu keppa þá er verið að ræsa út mannskapinn í tiltekt, stefnumótunarvinnu, tónleika og vorgleði. En svo illa vill til að sumir dagar eru yfirbókaðir. Kvöldið í kvöld var eitt þeirra en þá áttust við kvennalið Fram og Vals í úrslitakeppninni í handbolta en á sama tíma kepptu karlalið félaganna í fyrsta leik sínum á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Við vorum ekki mjög hrifnir stuðningsmennirnir sem ætluðum að fylgjast með hvoru tveggja hand- og fótboltanum.
Eins og ávallt að undanförnu þá mætti manni grilllyktin af svölunum á Hlíðarenda. Lyktin varð vitaskuld til þess æra upp í manni hungrið og ekki annað að gera heldur en að skófla í sig borgara svo maður yrði hlaðinn orku til að láta heyra í sér af pöllunum. Enda kannast allir við orðatiltækiðfánýtir eru fastandi stuðningsmennsem gæti verið úr Njálu en þar kemur Hlíðarendi nokkuð við sögu.
Þar sem lið Vals og Fram höfðu sinn hvorn sigurinn í farteskinu þá var rimma liðanna nánast á byrjunarreit. Ekki þó alveg þar sem sigur Valsstelpna eftir framlengingu í síðasta leik hefur án nokkurs vafa fyllt þær bjartsýni.
Fyrir leik frétti ég að Þorgerður Anna væri búin að vera lasin og því litlar líkur til þess að hún yrði til stórræðanna að þessu sinni. Það var því þvert á þessi ótíðindi að Þorgerður skoraði fyrstu tvö mörk Vals í leiknum. En Framstelpur svöruðu með þremur mörkum og var það í síðasta skiptið í leiknum sem þær komust yfir. Framliðið er hins vegar betra en svo að það láti bugast við að lenda 2 - 3 mörkum undir. Í hálfleik var staðan 11 - 8 fyrir Val.
Framstelpur skoruðu fyrsta mark seinni hálfleiks en því var svarað með þremur mörkum Vals sem aftur var svarað með þremur mörkum Fram. En í framhaldinu skoruðu Valsstelpur tvö mörk fyrir hvert mark sem Fram skoraði. Leiknum lauk því með sex marka verðskulduðum sigri Vals, 23 - 17.
Hrafnhildur var að mati undirritaðs að spila sinn besta leik í úrslitakeppninni. Hún skoraði 5 mörk, átti 4 stoðsendingar bara í fyrri hálfleik, barðist eins og ljón í vörninni og hvatti okkur stuðningsmennina áfram í hvert skipti sem hún skoraði. Það skyldi enginn vanmeta hvatningu til stuðningsmanna. Þorgerður Anna var einnig í góðum málum. Mjög ákveðin og ógnandi í sókninni og skoraði 5 mörk en var einnig mjög öflug þegar hún spilaði vörn. Valsvörnin var mjög öflug og þar voru þær Dagný, Anna Úrsúla, Ragnhildur, Kristín og Ágústa allar að spila vel. Anna Úrsúla er með 7 bolta sem hún varði í hávörn. Augljósasti árangur Valsvarnarinnar sést best á því að Stella komst ekkert áfram og stelpurnar lokuðu mjög vel á línuspil Framara.
Tilþrif leiksins eiga þær Sunneva sem kom inn á í fyrri hálfleik og varði víti á mikilvægum punkti í leiknum og ekki síður Karólína sem kom hlaupandi meðfram Framvörninni úr horninu og stökk hátt upp fyrir framan vörnina. Það hélt hver einasti maður í húsinu að Karólína ætlaði að senda á samherja en þeir voru dekkaðir og því lét hún vaða á markið og skoraði með algjörri bombu niðri í nærhornið. Karólína sem er sennilega lágvaxnasti leikmaður Valsliðsins sýndi okkur þarna hæfileika sem hún hefur farið sparlega með. En ég fullyrði að við stuðningsmennirnir værum alveg til í að sjá meira af þessu.
En það var auðvitað liðsheildin sem skóp þennan sigur. Markaskorunin sýnir það líka að árangurinn er ekki byggður á einni stórri stelpu í stuði. Þið eigið þetta allar sem ein. Ekki vil ég vera með nein leiðindi en sárt þótti mér að sjá 5 hraðaupphlaupssendingar fara í súginn. Látum það ekki gerast aftur.
Helstu tölur: Jenný varði 13 skot, Sunneva varði 1 víti. Mörk: Hrafnhildur 5, Þorgerður Anna 5, Anna Úrsúla 4, Dagný 4, Ragnhildur 2, Karólína 2 og Ágústa 1.
Næsti leikur er í Safamýrinni kl. 19:30 á miðvikudag. Við stuðningsmenn Vals skulum fjölmenna og fylla húsið í rauðum treyjum og klára mótið þá. Stelpurnar verðskulda það að við hjálpum þeim með hvatningu til að hafa Íslandsmeistaratitilinn áfram á Hlíðarenda.
Áfram Valur!













