Stórtónleikar Valskórsins

Hinir árlegu stórtónleikar Valskórsins verða í Háteigskirkju miðvikudaginn 9. maí kl. 20:00
Valsmærin Marta Kristín Friðriksdóttir mun syngja nokkur lög með kórnum.
Aðrir gestir munu stíga á stokk og mun m.a. Lúðrasveit Reykjavíkur, sem er 90 ára á árinu, leika nokkur lög með kórnum.
Allir Valsarar - og aðrir - eru hvattir til að koma og njóta tónlistar í hæsta gæðaflokki.
Aðgangseyrir er aðeins kr. 1500 og eru ljúffengar veitingar innifaldar að tónleikunum loknum í Valsheimilinu.













