Getraunaleikur Vals og 66 Norður

Í síðustu viku lauk vorleik getraunastarfsins og af því tilefni var haldið skemmtilegt lokahóf þar sem að 3 efstu sætin í hvorri deild fengu vegleg verðlaun frá 66°NORÐUR, Veiðikortinu og knattspyrnufélaginu Val. Var heildarverðmæti vinninga um það bil 200 þúsund kr. Á meðfylgjandi mynd má sjá flesta af þeim sem reyndust getspakastir á vordögum. Að sjálfsögðu verður svo tekið til við nýjan leik með haustinu og full ástæða til að hvetja sem flesta til að taka þátt í þessum skemmtilega fjölskylduleik.













