Valur - Selfoss Pepsídeild karla
Á morgun fimmtudag er fyrsti heimaleikur okkar Valsmanna á Vodafonevellinum Hlíðarenda. Mótherjar okkar verða frá Selfossi en þeir sitja á toppi Pepsídeildarinnar ásamt okkur eftir sigur á ÍBV í opnunarleik.
Leikurinn hefst kl. 19:15 og hvetjum við alla Valsara til að mæta og styðja við bakið á strákunum. Mætum í rauðu og þá verður Hummel-verslun opin fyrir leik og tilvalið að kaupa sér trefil, fána eða annan Valsvarning fyrir leik.
Athugið að miðaverð er 1.500 kr og kostar 500 kr fyrir 12-16 ára. Eins viljum við minna fólk á að seld verða árskort á staðnum en þau gilda á alla heimaleiki í Pepsídeild karla og kvenna - Alls 20 leikir á einungis 14.000.- kr og kaffikort fylgir.
Áfram Valur.













