Valur - Fram úrslitaleikur

Í dag kl 14:00 mætast lið Vals og Fram í hreinum úrslitaleik í N1 deild kvenna. Þetta er lokaleikur og því leikið til úrslita. Það er bikar í boði og hvetjum við alla Valsara að fjölmenna til að styðja stelpurnar til sigurs.

Leikurinn fer fram í dag laugardag, kl.14.00 í VodafoneHöllinni og er um hreinan úrslitaleik að ræða um Íslandsmeistaratitil kvenna. 

Miðaverð er kr. 1.500.- fyrir fullorðna en 500.- kr fyrir börn 12-16 ára.

ATH. C aðgöngukort gilda ekki á leikinn.

Áfram Valur.