Góður sigur í Pepsídeild karla

Í gær lékum við Valsmenn okkar fyrsta heimaleik á tímabilinu og voru gestir okkar frá Selfossi. Leikurinn var hin mesta skemmtun og lyktaði með 3-1 sigri okkar manna sem eru nú efstir í Pepsídeildinni eftir tvær umferðir með fullt hús stiga. Hér að neðan má sjá nokkrar myndir sem að Eva Björk Ægisdóttir tók á leiknum og glöggir Valsarar þekkja ef til vill hin geðþekka fyrrverandi leikmann okkar Barry Smith sem var á vellinum í gær.