Körfuboltaveisla í kvöld

Kvenna og karlalið Vals í körfubolta verða í eldlínunni í kvöld þar sem tvíhöfði verður leikinn í  Valshöllinni. 

Klukkan 18:00 mætir kvennalið Vals stöllum sínum frá Keflavík í dominos-deild kvenna og strax í kjölfarið, eða klukkan 20:15 mætir karlaliðið Fsu í 1. deild. 

Valur.is hvetur stuðningsmenn til að fjölmenna og hvetja bæði lið til sigurs.