Valur Íslandsmeistari 2012

Í dag varð Valur Íslandsmeistari kvenna í handknattleik þriðja árið í röð eftir sigur á Fram í hreinum úrslitaleik 24-21.
Leikurinn var jafn framan af og spennustig leikmanna hátt enda mikið í húfi. Valskonur sigu þó jafnt og þétt fram úr og lönduðu að lokum öruggum 24-21 sigri og Íslandsmeistaratitillinn tryggður áfram að Hlíðarenda.
Til hamingju stelpur.
Tölfræði Vals: Hrafnhildur Skúladóttir 8/1, Þorgerður Anna Atladóttir 6. Karólína Bæhrenz Lárusdóttir 5. Guðný Jenný Ásmundsdóttir 12/2 varin skot.















