Ragnhildur Edda með U19 til Spánar

Kári Garðarsson, þjálfari U-19 landsliðs kvenna í handbolta valdi á dögunum þær 16 stúlkur sem taka þátt í undankeppni Evrópumótsins sem fer fram á Spáni 17.-19. mars n.k. 

Í hópnum er Valsarinn og vinstri hornamaðurinn Ragnhildur Edda Þórðardóttir auk þess sem markvörðurinn Ástrós Anna Bender er til vara. 

Í riðli Íslands eru Spánn, Rúmenía og Litháen en tvö efstu liðin fara áfram í lokakeppni mótsins sem fer fram í Sóveníu næsta sumar.