Breiðablik - Valur Pepsídeild karla

Í dag þriðjudaginn 15.maí kl 19:15 eigast við á Kópavogsvelli Breiðablik og Valur í 3. umferð Pepsídeildar karla. Valsmenn eru efstir í deildinni ásamt ÍA eftir fyrstu tvær umferðirnar á meðan að Breiðablik situr í tíunda sæti með eitt stig. Leikir þessara liða hafa í gegnum tíðina verið mikil skemmtun og hvetjum við alla Valsara að fjölmenna í Kópavoginn í kvöld og styðja drengina.