Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts meistaraflokks kvenna

Valur og Fylkir leika til úrslita í Reykjavíkurmóti meistaraflokks kvenna í knattspyrnu fimmtudaginn 23. febrúar. 

Leikurinn fer fram í Egilshöll og hefst klukkan 20:30. Stelpurnar gerðu góða ferð til Akureyrar um liðna helgi þar sem liðið bar sigurorð af Þór/KA 0-3. Mörk Vals gerðu þær Elín Metta Jensen, Vesna Elísa Smiljkovic og Margrét Lára Viðarsdóttir.

Valur.is hvetur stuðningsmenn til að fjölmenna í Egilshöll á fimmtudagskvöld.