Skráningar í sumarstarfið í fullum gangi

Tvö námskeið verða í Sumarbúðum í Borg og hefst það fyrra þann 6. júní. Námskeiðin í Knattspyrnuskóla Vals verða fjögur og standa í tvær vikur hvert þeirra. Hægt verður að vera í Knattspyrnuskólanum fyrir hádegi og Sumarbúðunum eftir hádegi eins og áður. Í ágúst verða svo námskeið í handbolta og körfubolta. Nánari upplýsingar er að finna undir flipanum Börn og unglingar og svo Sumarstarf Vals 2012. Skráning fer fram á https://valur.felog.is