Eva María til æfinga með U19
Eva María Jónsdóttir leikmaður Vals var á dögunum valin í æfingahóp U19 ára landsliðsins í fótbolta en liðið kemur saman til æfinga helgina 3.-5. mars næstkomandi.
Æfingar fara fram undir stjórn Þórðar Þórðarssonar þjálfara U19 kvenna og bæði verður æft í Kórnum og Egilshöll.
Valur.is óskar Evu góðs gengis og til hamingju með valið.