2. og 3. flokkur karla leika til úrslita á sunnudag
Bikarhelgin heldur áfram á morgun sunnudag, þegar 2. og 3. flokkur karla Vals leika til úrslita í Laugardalshöll.
Klukkan 12:00 mætir 3. flokkur FH og klukkan 16:00 mætir 2. flokkur Fram.
Valur.is hvetur stuðningsmenn til að fjölmenna á leikina og styðja strákana til sigurs.