Sveinn Aron og Sindri til æfinga með U21
Eyjólfur Sverrisson þjálfari U21 árs landsliðs Íslands í knattspyrnu valdi á dögunum hóp til að taka þátt í úrtaksæfingum laugardaginn 4. mars.
Í hópnum eru Valsararnir Sveinn Aron Guðjohnsen og Sindri Scheving sem gekk til liðs við félagið að nýju í vikunni.
Valur.is óskar strákunum til hamingju með valið og góðs gengis.