Valur - Selfoss Pepsídeild kvenna

Föstudagskvöldið 18 Maí kl 19.15 eigast við meistarflokkur kvenna frá knattspyrnufélaginu Val og ungmennafélagi Selfoss á Vodafonevellinum.

Valur tapaði sínum fyrsta leik í hávaðaroki í Vestmannaeyjum á meðan að Selfoss gerði jafntefli við knattspyrnufélag Reykjavíkur 3-3.

Áræðanlegar heimildir herma að blásið verði til sóknar/samba bolta að hálfu Vals í leiknum og má því reikna með fyrirtaksskemtun sem að enginn Valsari ætti að láta fram hjá sér fara.

Dóra María spilar sinn fyrsta heimaleik í langan tíma og Dagný og Telma eru mættar eftir vetrardvöl í Bandaríkjunum.

Fálkar verða á sínum stað með eðalhamborgara og pylsur á sjóðheitu grillinu og því er um að gera að mæta snemma anda að sér stemmingunni fá sér gott að borða og umgangast aðra Valsara.

Sýnum nú stelpunum okkar stuðning í verki fjölmennum á leikinn og hvetjum okkar konur til sigurs.