Valur - Breiðablik, Oddaleikur í kvöld kl. 19:30
Valur og Breiðablik mætast í kvöld í Oddaleik sem sker úr um
hvort liðið mætir Hamar frá Hveragerði í úrslitum um laust sæti í
Dominosdeild karla í körfuknattleik.
Fyrri leikir liðanna hafa verið hreint rafmagnaðir og ljóst að
liðin munu skilja allt eftir á gólfinu.
Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19:30 og fer fram í Valshöllinni
að Hlíðarenda. Valur.is hvetur stuðningsmenn til að fjölmenna og
styðja liðið til sigurs. Mikil stemmning hefur verið á leikjum
liðanna til þessa og ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi
stuðningsmanna í leikjum sem þessum.
Allir á völlinn - Áfram Valur!