Lengjubikar karla í kvöld, Valur - ÍA kl. 18:00

Valur mætir Skagamönnum í hreinum úrslitaleik um efsta sæti þriðja riðils í Lengjubikar karla í knattspyrnu kl. 18:00 að Hlíðarenda í kvöld. 

Liðin eru jöfn í fyrsta og öðru sæti með 12 stig en Valsmenn eru með betra markahlutfall. 

Flautað verðu til leiks kl. 18:00 og beint í kjölfarið er hægt að kíkja á leik Vals og Hamars í úrslitaeinvígi 1. deildar karla í körfubolta sem hefst kl. 19:30.