Kristinn Ingi Halldórsson og Orri Sigurður Ómarsson skrifa undir nýja samning við knattspyrnudeild Vals

Knattspyrnumennirnir Orri Sigurður Ómarsson og Kristinn Ingi Halldórsson hafa skrifað undir nýja samninga við knattspyrnudeild Vals. Samningar beggja gilda út árið 2019 sem þýðir að næstu þrjú leiktímabil hið minnsta eru þessir gæðaleikmenn áfram í treyju Vals.
Báðir hafa sannað sig sem algjöra lykilmenn hjá félaginu. Nánar er rætt við leikmennina í viðtölum sem birtast á "ValurFótbolti" á Fésbókinni.