Þórir lánaður

Þórir Guðjónsson hefur verið lánaður til Fjölnis í 1.deild. Nárameiðsli Þóris tóku sig upp á siðari hluta undirbúningstímabils og missti hann því af leikjum í Lengjubikarnum og bráðvantar því leiktíma.
Markmiðið með láninu er að Þórir spili með Fjölni og nái sér í mikilvægar mínútur inni á vellinum og hjálpi Fjölni í baráttunni í 1 deildinni. Lánstími Þóris er einn mánuður til að byrja með.













