Valur - KR Pepsídeild karla
Á sunnudag er Reykjavíkurslagur af bestu gerð þegar grannar okkar í KR koma í heimsókn. Leikir þessarar liða hafa í gegnum tíðna verið mikil skemmtun og ljóst að á sunnudag verður engin breyting þar á.
Búist er við miklum fjölda á leikinn þannig að við höfum ákveðið að bjóða uppá forsölu í Vodafonehöllinni Hlíðarenda á miðum á leikinn. Endilega nýtið ykkur þetta tækifæri og hjálpumst að við að lágmarka raðir sem óhjákvæmilega geta myndast þegar um þetta stóran leik er að ræða.
Við viljum einnig vekja athygli ykkar á að einum og hálfum tíma fyrir leik mun Hamborgarafabrikkan grilla hamborgara, Pepsi verður með uppákomu í hálfleik, Íslands og bikarmeistarar Vals í kvennahandbolta verða heiðursgestir á leiknum og margt fleira.
Mætum snemma og styðjum okkar lið og hjálpumst að við að gera þennan leik að stórkostlegri skemmtun.
Verið velkominn á Vodafonevöllinn.
Áfram Valur.













