Valssigur í fyrsta leik!
Valur - Víkingur Ólafsvík 2 - 0 (0 - 0)
Íslandsmótið í knattspyrnu, Pepsi-deild karla, 1. umferð. Valsvöllurinn að Hlíðarenda, sunnudaginn 30. apríl 2017, kl. 19:15
Aðstæður: Góðar, hitastig 7°c, norð-vestan andvari, 2-3 m/sek. Áhorfendur: 1079
Dómari: Pétur Guðmundsson. Aðstoðardómarar: Gylfi Már Sigurðsson og Gunnar Helgason.
Fjölmennt var að Hlíðarenda og tilhlökkun í loftinu þegar fyrsti leikur Vals á Íslandsmótinu hófst. Öll umgjörð var til fyrirmyndar og leikskilyrðin mjög góð. Valur tefldi fram sterku liði, liði sem best allra hefur staðið sig í vetrarleikjunum. Anton Ari Einarsson stóð í markinu, Bjarni Ólafur Eiríksson og Arnar Sveinn Geirsson skipuðu bakvarðastöðurnar og miðverðir voru að vanda þeir Rasmus Christiansen og Orri Sigurður Ómarson. Haukur Páll Sigurðsson, fyrirliði og Einar Karl Ingvarsson voru á miðjunni og fyrir framan þá, í holunni, lék Nicolas Bogild. Sigurður Egill Láuusson og Dion Acoff voru á sitt hvorum vængnum og Kristinn Ingi Halldórsson var í miðherjastöðunni.
Hversu vel varamannabekkurinn var skipaður sýnir best breiddina í liðinu nú um stundir en þar sátu þeir Jón Freyr Eyþórsson markvörður, Andri Fannar Stefánssson bakvörður, miðjumennirnir Nicolaj Beier Køhlert, Sindri Björnsson og Guðjón Pétur Lýðsson ásamt sóknarmönnunum Sveini Aroni Guðjohnen og Nikolaj Andreas Hansen, ekki amalegur hópur!
Leikurinn fór af stað með látum. Sóknarþungi Vals var gífurlegur í upphafi og markið lá í loftinu. Á fyrstu þremur mínútum leiksins sköpuðu þeir sér þrjú gullin marktækifæri sem ekki nýttust. Öll komu þau úr hröðum sóknum upp hægri kantinn. Á fyrstu mínútu komst Kristinn Ingi upp hægra megin en sending hans fór aftur fyrir Sigurð Egil sem var í ákjósanlegu færi. Á annari mínútu, eftir fallega sendingu frá Arnari Sveini, átti Sigurður Egill hörkuskot sem ekki rataði inn og tæpri mínútu síðar, eftir góða sókn, barst knötturinn til Einars Karls Ingvarssonar, fast skot hans sleikti þverslána ofanverða.
Eftir frábæra byrjun Valsmanna fyrstu fimm mínúturnar upphófst mikill þæfingur þar sem hvorki gekk né rak í um tuttugu mínútur. En á 25. mínútu komst sóknarleikurinn aftur í gang og rak hver sóknin aðra næstu mínúturnar án þess að skila marki. Flestar komu þær upp hægri kantinn en voru allar sama marki brenndar, annaðhvort var síðasta sending inn í teig ónákvæm eða markskotið misheppnað, þannig fóru tólf tækifæri í fyrri hálfleik forgörðum.
Breyting varð á í seinni hálfleik. Sigurður Egill varð að yfirgefa völlinn vegna meiðsla og í hans stað kom Sveinn Aron. Sveinn fór í stöðu hægri útherja og Dion skipti yfir í vinstri útherja. Víkingar áttu fyrsta færið í seinni hálfleik,komust í gegn hægra megin á 48. mínútu en Anton varði í horn.
Valsmenn svöruðu með fallegri sókn á 50. mínútu, Sveinn Aron fann Dion Acoff í fæturna með fallegri sendingu en skot Dions fór framhjá markinu. Skömmu seinna renndi Rasmus knettinum upp í vinstra hornið á Bjarna Ólaf, hann gaf góða sendingu inn í teiginn á Kristinn sem lagði boltann á Svein Aron en skot hans á mitt markið var auðveldlega varið. Það hljóp mikið fjör í leikinn næstu mínútur og á 59. mínútu átti Sveinn Aron hörkuskot upp í vinstra hornið sem markvörður Ólafsvíkinga varði naumlega.
Á 65. mínútu kom Nikolaj Hansen inn í miðherjastöðuna á í stað Kristins Inga og á sömu mínútu sá fyrsta markið dagsins ljós. Orri Sigurður sendi fastan bolta inn í teiginn, hann hrökk af varnarmanni fyrir fætur Nikolaj Hansen sem ekki náði til hans en Dion Acoff kom aðvífandi að fjarstönginni og sendi knöttinn örugglega í netið, 1 - 0. Skömmu seinna átti Arnar Sveinn góða fyrirgjöf en skalli Dions Acoff fór naumlega framhjá.
Víkingar voru alls ekki búnir að játa sig sigraða og færðust allir í aukana er á leið, eins marks forysta Valsmanna var því nokkuð tæp. En auðséð var að innkoma Sveins Arons og Nikolaj Hansens hafði bætt sóknarleikinn til muna og það var einmitt samvinna þeirra sem gerði út um leikinn.
Á 80. mínútu brutu Valsmenn sókn Ólafsvíkinga á bak aftur og komu knettinum fram á Svein Aron. Hann lék fram og með vel tímasettri glæsilegri stungusendingu skapaði hann Nikolaj Hansen upplagt marktækifæri. Skot Nikolaj hafnaði í stönginni, knötturinn hrökk út fyrir fætur hans og Nikolaj brást ekki bogalistin öðru sinni og sendi knöttinn af öryggi markið, 2 - 0. Það var sem allur vindur væri úr Víkingum við þetta mark og Valsmenn stýrðu sigrinum heim af öryggi síðustu mínúturnar.
Þetta voru ánægjuleg úrslit og betri byrjun en síðasta sumar þegar fyrstu tveir leikirnir töpuðust. Það er engum blöðum um að fletta að við höfum sterku liði á að skipa. Vörnin og markvarslan voru óaðfinnanleg. Miðvarðaparið er geysi öruggt og bakverðirnir sterkir og Anton er öryggið uppmálað í markinu. Haukur Páll og Einar Karl eru góðir saman miðjunni, fastir fyrir og vinnusamir.
Nikolaj Bogild hefur oft fundið sig betur en í þessum leik og á örugglega eftir að sýna sig betur í mótinu. Guðjón Pétur Lýðsson leysti hann af hólmi síðustu tíu mínútur leiksins. Dion Acoff er sterkur leikmaður, fljótur og áræðinn sem gefur sóknarleiknum góða vídd. Sigurður Egill náði ekki nema öðrum hálfleiknum vegna meiðsla. Kristinn Ingi skapaði oft hættu með hraða sínum en var ekki á skotskónum að þessu sinni.
Sveinn Aron kom inn á í upphafi seinni hálfleiks, stóð sig mjög vel og ekki er ólíklegt að hann verði byrjunarliðsmaður á næstunni. Sömu sögu má segja um Nikolaj Hansen, hann er alltaf líklegur til að skora, er með góðar staðsetningar og gott auga fyrir samspili. Valsliðið lofar vissulega góðu fyrir sumarið. Næsti leikur er gegn Akurnesingum uppi á Skaga þann 8. maí. ÁFRAM VALUR!