Kári Alexandersson með Reykjavíkurúrvalinu á Norðurlandamótið

Kári Daníel Alexandersson var á dögunum valinn í Reykjavíkurúrvalið sem mun keppa fyrir hönd Reykjavíkurborgar á Norðurlandamóti höfuðborga dagana 28. maí - 2. júní næstkomandi. 

Kári leikur með 4. flokki Vals og eru næstu æfingar hópsins 10. - 15. -22. og 26. maí. 

Valur.is óskar Kára til hamingju með valið og góðs gengis á mótinu.